Morgunblaðið - 15.06.2016, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 15.06.2016, Blaðsíða 27
Karen hefur starfað nánast alla ævi sem frjálsíþróttaþjálfari, aðal- lega í Vestmannaeyjum, en einnig þrjú ár hjá Breiðabliki, eitt ár fyrir Falu IK í Svíþjóð, eitt ár fyrir Odense OGF og eitt ár sem ung- lingalandsliðsþjálfari Íslands í frjálsum. Hún hefur einnig verið íþróttakennari í Hofsstaðaskóla í Garðabæ og í Grunnskóla Vest- mannaeyja. „Í dag starfa ég hjá mínu eigin fyrirtæki, Dedicated ehf., við að aðstoða fólk við að finna lausn- ir á líkamlegum vandamálum, bæði með stuðningshlífum, kælivefjum, ásamt jurtum, vítamínum og bæti- efnum. Auðvitað er ég einnig að þjálfa frjálsar fyrir UMFÓ (Ung- mennafélagið Óðinn) í Eyjum. Karen hefur hlotið viðurkenn- ingar frá UMFÓ, bæði brons- og silfurmerki félagsins, fyrir metnað og áhuga á þjálfun og umhverfi frjálsra í Eyjum. Hún hlaut silfur- merki ÍBV einnig fyrir metnað fyrir frjálsum í Eyjum. Með sterk frjálsíþróttagen Á yngri árum urðu helstu afrekin þessi: Íslandsmeistari nokkrum sinnum í hástökki og spjótkasti inn- an- og utanhúss, náði langt í kringlukasti, grindahlaupi og hinum ýmsu greinum frjálsra íþrótta. Ég er með mikil frjálsíþróttagen þar sem móðir mín, Árný Heiðars- dóttir, er mikil afreksmanneskja í frjálsum ásamt því að vera ein af þeim sem hófu að stunda frjálsar íþróttir í Eyjum eftir langt hlé fyrir gos. Afi minn, Heiðar Árnason, var einnig öflugur og sá um þjálfun á frjálsíþróttakrökkum fyrir gos og þjálfaði meðal annars móður mína. Ég æfði allt sem ég komst í og náði nokkuð langt í sundi, fimleikum, körfubolta (með háskólakrökk- unum) og hafði hrikalega gaman af, svo það eru ekki margar íþrótta- greinar sem ég get ekki staðið mig vel í. Áhugamál mín hafa alltaf verið ferðalög. Ég ferðaðist mikið með fjölskyldunni frá 11 ára aldri, fór svo fyrst án foreldra 14 ára gömul og eftir það var ekki aftur snúið. Í dag er búið að fylla passlega vel út heimskortið og verður markmiðið að halda því áfram um ókomna tíð. Fjölskyldan er mér mjög mikilvæg og vinir en það er fátt sem jafnast á við að eiga góða vini.“ Fjölskylda Sæþór Orri Guðjónsson, f. 27.11. 1979, forstjóri Smartmedia og frumkvöðull. Foreldrar hans: Guð- jón Hjörleifsson, f. 18.6. 1955, fast- eignasali í Vestmannaeyjum, og k.h. Rósa Elísabet Guðjónsdóttir, f. 26.7. 1959, stuðningsfulltrúi. Börn Karenar og Sæþórs: Birta Sól Sæþórsdóttir, f. 6.11. 2001 í Reykjavík, Lúkas Orri Sæþórsson, f. 2.6. 2005 í Reykjavík, og Alex Ingi Sæþórsson, f. 5.9. 2007 í Óðinsvéum í Danmörku. Systkini Karenar: Guðjón Krist- inn Ólafsson, f. 16.3. 1978, heilsu- nuddari og fimleikastjarna, bús. í Kópavogi, Árni Óli Ólafsson, f. 13.7. 1983, rafvirki, tækjanörd og hljóð- tæknir, bús. í Reykjavík, Lilja Kristín Ólafsdóttir, f. 28.5. 1970, hálfsystir samfeðra, landslags- arkitekt, bús. í Reykjavík, og Diljá T. Ólafsdóttir, f. 1971, hálfsystir samfeðra, vinnur hjá Jónar transport, bús. í Hafnarfirði. Foreldrar Karenar: Ólafur Guð- jónsson, f. 26.6. 1951, fyrrv. skip- stjóri á Gæfu VE, og k.h., Árný Heiðarsdóttir, f. 2.4. 1955, fyrrver- andi gistiheimilaeigandi og frjáls- íþróttastjarna. Þau eru bús. í Vestmannaeyjum. Úr frændgarði Karenar Ingu Ólafsdóttur Karen Inga Ólafsdóttir Jensína María Nilsen húsfr., frá Kvívík í Færeyjum Guðjón Kristinn Kristinsson skipstjóri í Vestmannaeyjum Kristín Ólafsdóttir fiskverkakona í Vestmannaeyjum Ólafur Guðjónsson fv. skipstjóri á Gæfu VE Ólafur Eiríksson verkam. á Siglufirði, frá Ólafsfirði Friðrikka Björnsdóttir húsfr., úr Fljótunum Kristbjörn Árnason fyrrv. skipstjóri á Sigurði VE Þorvaldur Heiðarsson sjómaður, bús. í Kópavogi Guðmunda Ingibergsdóttir húsfr. á Stöðvarfirði Ívar Ingimarsson fv. atvinnumaður í fót- bolta, bús. á Egilsstöðum Hallgrímur Þórðarson netagerðarmeistari í Vestmannaeyjum Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari í fótbolta Gunnar Heiðar Þorvaldsson fv. atvinnumaður í fótbolta, bús. í Vestm.eyjum Ástgeir Kristinn Ólafsson (Ási í Bæ) sjómaður og rithöfundur Berglind Björg Þorvaldsdóttir landsliðskona í fótbolta Kristinn R. Ólafsson (í Madrid) rithöfundur Árni Kristbjörnsson járnsmiður í Reykjavík, frá Ásgarði, Húsavík Guðný Sigvaldadóttir húsfr. á Sandhólum á Tjörnesi Sigvaldi Heiðar Árnason verkam. og íþróttakall á Sandhólum á Tjörnesi og í Vestmannaeyjum Inga Hallgerður Ingibergsdóttir húsfr. á Sandfelli í Vestm.eyjum Árný Heiðarsdóttir íþróttakona í Vestmannaeyjum Unnur Guðjónsdóttir leikkona Árný Guðjónsdóttir húsfr. á Sandfelli Kristinn Ástgeirsson sjómaður í Vestmannaeyjum Ólafur Ástgeirsson (Óli í Litlabæ) bátasmiður í Vestm.eyjum Þórður Gíslason (Tóti meðhjálpari) netagerðarmeistari í Vestm.eyjum Ingibergur Gíslason skipstjóri í Vestm.eyjum ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016 Sigurður Jensson fæddist íReykjavík 15. júní 1853. For-eldrar hans voru Jens Sigurðs- son, f. 6.7. 1813, d. 2.11. 1872, alþing- ismaður og rektor Lærða skólans í Reykjavík, og k. h. Ólöf Björnsdóttir, f. 22.2. 1830, d. 7.12. 1874 húsmóðir. Jens var sonur Sigurðar Jónssonar prófasts á Hrafnseyri og bróðir Jóns forseta. Ólöf var dóttir Björns Gunn- laugssonar stærðfræðings og yfir- kennara við Lærða skólann. Meðal systkina Sigurðar var Jón Jensson yfirdómari og alþingis- maður. Sigurður tók stúdentspróf frá Lærða skólanum 1873 og guðfræði- próf frá Prestaskólanum 1876. Hann fór síðan í framhaldsnám í guðfræði við Hafnarháskóla 1877-1878. Sigurður var kennari við barna- skólann í Reykjavík 1873-1876 og 1878-1880. Hann var síðan prestur í Flatey á Breiðafirði 1880-1921 og prófastur í Barðastrandarprófasts- dæmi 1881-1902. Hann var póst- afgreiðslumaður í Flatey 1914-1921. Hann var oddviti Flateyjarhrepps í mörg ár, amtsráðsmaður 1901-1907 og yfirskoðunarmaður landsreikning- anna 1895-1902. Sigurður fékkst því við mörg opinber störf og var prýði- lega vel látinn og vandaður maður, segir í andlátsfregn. Sigurður var alþingismaður Barð- strendinga 1886-1908 fyrir Framfara- flokkinn, Landvarnarflokkinn, Sjálf- stæðisflokkinn eldri. Hann var varaforseti efri deildar 1899. Sigurður fékk lausn frá prestsemb- ætti vegna heilablóðfalls 1921 og fluttist þá til Reykjavíkur og var þar til æviloka. Eiginkona Sigurðar var Guðrún Sigurðardóttir, f. 20.2. 1862, d. 19.3. 1941, húsmóðir. Foreldrar: Sigurður Jónsson kaupmaður í Flatey og k.h. Sigríður Brynjólfsdóttir. Börn Sigurðar og Guðrúnar sem upp komust voru Haraldur vélstjóri á Gullfossi, Jón raffræðingur og fram- kvæmdastjórii í Reykjavík, Jens gas- stöðvarstjóri í Tönsberg í Noregi, Jón Sigurður bóndi og póstafgreiðslu- maður í Flatey, Brynjólfur gasstöðv- arstjóri í Rvík og Ólöf húsfreyja í Reykjavík. Sigurður lést 5.1. 1924. Merkir Íslendingar Sigurður Jensson 95 ára Steinunn Jónsdóttir 90 ára Anna Snorradóttir 85 ára Margrét Stefánsdóttir 80 ára Guðjón Vigfússon Hálfdán Daði Hinriksson Ingvar Hólmgeirsson Ragna Gunnhildur Jóhannesdóttir 75 ára Friðfinnur Friðfinnsson Halla Mjöll Hallgrímsdóttir 70 ára Ásgeir Guðmundsson Ásthildur G. Gunnarsdóttir Guðný Svava Gestsdóttir Maria Teresa Belles Ríkarður Örn Pálsson Rósa F. Eiríksdóttir Sturla Fjeldsted Vigantas Simkus 60 ára Anna Kanthi Axelsdóttir Haukur Hauksson Ingvar Friðbjörn Sveinsson Ingvar Kjaran Jónína Guðrún Jónsdóttir Kristín Baldursdóttir Kristján Snæbjörnsson Margrét Ásgeirsdóttir Rakel Sighvatsdóttir Sólveig Jónsdóttir Sævar Einarsson 50 ára Gunnar Birkir Guðmundsson Hildur Kristinsdóttir Hrönn Hilmarsdóttir Kristjana Vigdís Magnúsdóttir María Níelsdóttir Markús Sigurjónsson Matthías G. Þorvaldsson Óskar Ingvi Jóhannesson Valgerður Ósk Björnsdóttir Þengill Stefán Stefánsson 40 ára Gréta Hauksdóttir Guðbjörg Arnardóttir Helgi Elíasson Hera Sif Harðardóttir Hua Yang Karen Inga Ólafsdóttir Lárus Árni Hermannsson Rakel Hafberg Robert Carl Cluness Silja Rut Ragnarsdóttir 30 ára Agnar Björn Tryggvason Anton Ástvaldsson Georg Fannar Haraldsson Kristján Örn Ebenezarson Linda María Alfreðsdóttir Stefán Halldór Jónsson Styrmir Örn Arnarson Til hamingju með daginn 40 ára Silja er úr Breið- holtinu, en býr í Hafnar- firði. Hún er söngkona og tanntæknir á Tannlækna- stofunni á Grensási. Maki: Bjarni Arason, f. 1971, tónlistarmaður. Börn: Telma Ósk, f. 1995, Kamilla Rós, f. 1999, og Soffía Ísabella, f. 2012. Foreldrar: Ragnar Geir Guðjónsson, f. 1951, bús. í Breiðholti, og Guðný Maren Hjálmarsdóttir, f. 1952, bús. í Garði. Silja Rut Ragnarsdóttir 30 ára Linda er Selfyss- ingur en býr í Hveragerði, og er tölvufræðinemi í Tækniskólanum. Maki: Óðinn Freyr Þór- arinsson, f. 1983, vinnur í jarðvinnugeiranum. Systkini: Steinþór Krist- jánsson, f. 1992, Elva Hrönn Alfreðsdóttir, f. 1993, og Laufey Ása Al- freðsdóttir, f. 1996. Foreldrar: Alfreð Árna- son, f. 1964, og Bjarnþóra Íris Eiríksdóttir, f. 1966. Linda María Alfreðsdóttir 30 ára Georg er Akureyr- ingur og viðskiptafræð- ingur í fyrirtækjasölu hjá Vodafone. Maki: Heiður Ósk Þor- geirsdóttir, f. 1989, starf- ar hjá Samherja. Sonur: Anton Smári, f. 2011. Foreldrar: Haraldur Hug- inn Guðmundsson, f. 1949, vélstjóri, og Helga Elísabet Ólafsdóttir, f. 1952, vinnur við ræst- ingar. Georg Fannar Haraldsson Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Sorpkvarnir í eldhúsvaska www.kvarnir.is 20 ÁRA 1996 2016 Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhellu 9 | 221 Hafnarfirði sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is Skoðaðu úrvalið á kvarnir.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.