Morgunblaðið - 15.06.2016, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Færni sem þú tileinkar þér gerir þér
auðveldara að auka tekjurnar fyrr en síðar.
Skemmtið sjálfum ykkar sem mest og best
og öðrum um leið.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú munt að öllum líkindum lenda í
valdabaráttu við foreldra þína eða yfirmenn í
dag. Makinn er eirðarlaus og orðinn leiður á
sínum daglegu verkefnum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Einhver misskilningur gæti komið
upp milli ástvina sem þarf að leiðrétta. Ef þú
hugsar um það hversu ríkur þú ert af fjöl-
skyldu og vinum tekst þér betur að leysa
málin.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér finnst erfitt að átta þig á fram-
komu vinafólks þíns. Vertu á varðbergi gagn-
vart jákvæðum hugsunum, svo óttinn nái ekki
að læsa klónum í þig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þig langar eitt en aðstæður kalla á ann-
að. Samt sem áður má ekki láta það sem þig
langar að gera víkja alveg fyrir því sem þarf
að gera. Spreðaðu í eitthvað léttúðugt, alger-
lega óþarft og fullkomlega eftirsóknarvert.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þótt áhugi þinn á vinnunni sé mikill er
óþarfi að taka verkefnin með sér heim. En
málið er að þú einn veist hvað er rétt í stöð-
unni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Vertu stoltur af starfi þínu þótt ein-
hverjum finnist ekki mikið til þess koma.
Gættu þess vel að ganga ekki á rétt neins.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ekki láta þér sjást yfir smáat-
riðin í áætlanagerð í dag. Láttu reyna á mörk
hæfileika þinna. Sinntu starfinu af kostgæfni
og einkamálunum utan þess.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Grikkir trúðu því að persónu-
töfrar væru gjöf frá guðunum. Maður getur
verið latur án þess að vera iðjulaus. Mundu
að það getur borgað sig að gefa eftir strax í
upphafi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Gerðu hvaðeina sem þér kemur til
hugar til þess að auka við þekkingu þína.
Mundu að áhyggjur eru eins og ruggustóll.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Í hjarta þér ómar tónlist í dag –
kannski hefur það eitthvað með nýjan vin að
gera. Hugsaðu um öll smáatriðin sem skipta
svo miklu máli.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Sum verkefni verður að leysa í sam-
starfi við aðra. Taktu þér tak og kláraðu þau
verkefni, sem fyrir liggja.
Vigfús M. Vigfússon yrkir áBoðnarmiði:
Ég ætlaði að nýta mér núið
– en naumast hvað það er nú snúið.
Ég undirbjó vel
allt sem ég tel
að þurfi, en þá var’ða búið.
Grétar Hallur Þórisson var með á
nótunum:
Nú þegar núið er búið.
Mitt nýliðna andartak flúið.
Í nú lausum heimi.
Ég lifi og dreymi
um líf sem er einfalt og snúið
Vigfús M. Vigfússon svarar og
spyr:
En er þetta eitthvað svo snúið;
að afskrifa það sem er búið,
ef vandlega þá
fólk venur sig á
að una við nýjasta núið?
Kristinn R. Ólafsson hummar:
„EM … Ehemm , – KNATT-
SPYRNU)ÆSING:
Ég stífna með störu í augum,
er stjarfur, til æsingar finn;…
Ég fölna, ég roðna, er farinn á taugum:
„Æ fær ’ann, æ nær ‘ann að smeygja ‘on-
um inn?“
Kristinn heldur áfram og yrk-
isefnið er „fíkn“:
Þetta var ekkert nema fikt hjá mér fyrst,
ég fótbolta sá bæði sjaldan og lítið
en með tímanum óx svo mín löngun og lyst
að nú líð ég og kvelst ef ég fæ ekki spítið.
Og síðan yrkir Kristinn um
„tuðrur“:
Tuðru skark’ um túnin víð,
trukka, sparka, ota;
allir þjark’ í erg og gríð,
ætla í markið pota.
Hreinn Guðvarðarson er grun-
samur:
Allt þitt raus og orð ég finn
að ekki er neitt að marka
því hvernig er það, Kristinn minn,
kunnir þú að sparka?
Benedikt Jóhannsson veit um
hvað þetta snýst:
Nú byrjað er aftur allt boltunga sparkið
og býsn öll menn leggja í veraldar harkið,
menn blása og elta
boltann og velta,
já lífið það snýst um látáhann í markið
Kristján Runólfsson er með hug-
ann annars staðar:
Kindur eru bornar, nú bændur fara að slá,
býsna fagurt þykir um að litast,
búsmalinn er glaður við beitina að rjá,
og blessuð lömbin út í haga fitast.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af fótbolta, núinu
og veraldarharkinu
Í klípu
„ÞETTA VAR HJARTAÁFALL. ÉG MYNDI VILJA
HALDA ÞÉR HÉR Í NOKKRA DAGA, EN ÞÚ ERT
FRJÁLS FERÐA ÞINNA – ÞEGAR ÞÚ ERT
BÚINN AÐ BORGA TRYGGINGUNA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVAR ER GAFFALLINN ÞINN?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... upphafið á dásamlegu
ævintýri saman.
ÞÚ ÆTTIR AÐ REYNA AÐ
FJARLÆGJA BRÉFIÐ ÁÐUR EN
ÞÚ BORÐAR SÆLGÆTIÐ
ÚÚÚÚÚÚÚ… EN FÍNT
VIÐ ERUM
AÐ NÁLGAST
EYJARNAR SEM VIÐ
HEIMSÓTTUM Á
SÍÐASTA ÁRI!
ÞAR SEM
EYJARSKEGGJAR
ELSKUÐU MIG!
ERTU EKKI
AÐ ÝKJA?
NEI
Sagan getur verið miságeng viðþjóðir. Víkverji var nýverið
staddur í Póllandi, sem ítrekað hefur
orðið fyrir barðinu á stórfljóti sög-
unnar. Varsjá er aðlaðandi borg og
um margt heillandi. Ekki eru þó all-
ar byggingar í borginni fallegar.
x x x
Varsjárbúum er mörgum sérstak-lega í nöp við Höll menningar og
vísinda, sem reist var á sjötta áratug
liðinnar aldar. Byggingin er mikil
um sig og háreist, kuldaleg og sér-
lega áberandi í borginni. Víkverji
heyrði oftar en einu sinni sagt að
vildi maður njóta þess að horfa yfir
Varsjá væri best að gera það í þess-
ari byggingu því að betra væri að
horfa út úr henni en á hana.
x x x
Víkverji heimsótti safn til minn-ingar um uppreisnina í Varsjá
árið 1944 og var það átakanlegt. Þá
risu pólskar andspyrnusveitir upp
gegn hernámsliði nasista. Upp-
reisnin var gerð á sama tíma og sov-
éski herinn réðist inn í austurhluta
borgarinnar í þeirri von að hann
myndi aðstoða við að hrekja þýska
herinn á flótta. Sovétmennirnir
stöðvuðu hins vegar sókn sína þann-
ig að nasistarnir gátu náð vopnum
sínum að nýju. Gengu þeir á milli
bols og höfuðs á uppreisnarmönnum
á meðan Rauði herinn fylgdist með
hinum megin árinnar Vistúlu.
x x x
Þjóðverjarnir gengu fram af slíkrihörku að þegar yfir lauk hafði
gamli bærinn í Varsjá verið jafnaður
við jörðu. Í safninu kemur fram að
áður en uppreisnin hófst hafi 900
þúsund manns búið í gamla bænum,
en þegar hún hafði verið kveðin nið-
ur voru þúsund manns eftir.
x x x
Gamli bærinn var endurreistureftir stríðið. Mikil vinna fór í að
reisa hús, hallir og kirkjur og var
stuðst við margvíslegar heimildir til
að allt yrði eins og það var, þar á
með gömul málverk. Heppnaðist
verkið svo vel að gamli bærinn hefur
verið settur á minjaskrá UNESCO.
Mun hann vera eina eftirlíkingin á
skránni. víkverji@mbl.is
Víkverji
Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér
munuð finna, knýið á og fyrir yður
mun upp lokið verða.
(Matt. 7:7)
Frá
morgni
líkama
og sál
fyrir alla
fjölskylduna í
þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir
líkama
Laugarnar í Reykjavík