Morgunblaðið - 15.06.2016, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016
Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að dugmiklu
fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð.
Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga
og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana.
Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is
Hafðu samband í dag
og byrjaðu launaða líkamsrækt
strax á morgun.
www.mbl.is/laushverfi
Vantar þig aukapening?
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Secret Solstice tónlistarhátíðin hefst
í Laugardalnum á morgun, stendur í
fjóra daga og verður hún sú um-
fangsmesta til þessa, skv. upplýs-
ingum frá kynningarfulltrúa hennar,
Ósk Gunnars-
dóttur. „Á síðasta
ári voru um
10.000 gestir og í
ár verða þeir um
16.000. Við fjölg-
um sviðum upp í
sjö en á síðasta
ári voru sex svið
og um 150 lista-
menn. Í ár koma
177 hljómsveitir
fram á hátíðinni,“
segir hún, spurð að því hvernig hátíð-
in í ár sé, samanborin við þær fyrri að
umfangi, þ.e. fjölda sviða, gesta og
flytjenda.
Aðalatriði hátíðarinnar er enska
hljómsveitin Radiohead, ein sú merk-
asta í sögu rokksins en hún reis ný-
verið úr dvala og sendi frá sér níundu
breiðskífuna, A Moon Shaped Pool,
sem hlotið hefur mikið lof gagnrýn-
enda.
Af öðrum merkum hljómsveitum
og flytjendum á hátíðinni má nefna
Sister Sledge, St. Germain, Action
Bronson, Goldie, Deftones, M.O.P.,
Jamie Jones, Die Antwoord, Roisín
Murphy og einnig kemur fram mikill
fjöldi íslenskra sveita og flytjenda,
m.a. Of Monsters and Men, Agent
Fresco, Högni Egilsson, Reykjavík-
urdætur, Shades of Reykjavík og
þannig mætti áfram telja.
Meira en Radiohead-tónleikar
Radiohead leikur í nýju Laugar-
dalshöllinni, sem heitir Jötunheimar
á hátíðinni, á þjóðhátíðardaginn, 17.
júní, kl. 21.30. Búast má við mikilli
mannmergð á þeim tónleikum, ljóst
að allir gestir hátíðarinnar komast
ekki fyrir í höllinni.
Ósk er spurð að því hvort skipu-
leggjendur Secret Solstice hafi engar
áhyggjur af þessu, troðningi og
óánægju þeirra sem komast ekki á
tónleikana. „Secret Solstice er ekki
eingöngu Radiohead-tónleikar, þetta
er fjögurra daga hátíð sem er með
dagskrá á sjö sviðum. Á sama tíma
og Radiohead spila í höllinni mun
Action Bronson spila á aðalsviðinu
úti og önnur svið verða í gangi. Við
mælum auðvitað með því að allra
hörðustu Radiohead-aðdáendur
mæti tímalega. Það eru litlar sem
engar líkur á því að allir hátíðargestir
vilji sjá Radiohead á sama tíma,“ seg-
ir Ósk. „Annars höfum við ekki
áhyggjur af því, nei, það eru stórar
hátíðir hér heima sem virka ná-
kvæmlega þannig að það komast ekki
allir að sjá stærstu nöfnin. Þar skipt-
ir öllu máli að koma tímanlega.“
Tónlist af allri gerð
– Fyrir hvaða tónleikum ert þú
persónulega spenntust?
„Ég er persónulega spenntust fyr-
ir M.O.P og Lady Leshurr en ætla
einnig ekki að missa af St. Germain,
Die Antwoord og Of Monsters and
Men,“ svarar Ósk.
Hipp hopp og raftónlist er áber-
andi á dagskránni og er Ósk spurð að
því hvort hátíðarskipuleggjendur
fylgi vísvitandi ákveðinni tónlistar-
stefnu. „Já, en á sama tíma erum við
að spila tónlist af allri gerð á hátíð-
inni,“ segir hún.
– En hvernig hefur sambúðin verið
við fólkið sem býr í nálægum hverf-
um? Nú hefur verið eitthvað um
kvartanir vegna hávaða.
„Við höfum breytt svæðinu í ár
með tilliti til íbúa í nágrenni við hátíð-
ina og vonum að samstarfið verði
sem vænlegast,“ segir Ósk.
Að lokum er hún spurð að því
hvort bókanir séu hafnar á flytj-
endum hátíðarinnar á næsta ári og
segir Ósk þá vinnu hafna og þegar
hafi verið bókuð „stór nöfn“ fyrir
næsta ár.
Allar upplýsingar um flytjendur
má finna á secretsolstice.is og dag-
skrá með tímasetningum tónleika má
finna í smáforriti/appi hátíðarinnar.
Sú umfangsmesta til þessa
Tónlistarhátíðin Secret Solstice haldin í þriðja sinn, 16.-19. júní Radiohead heldur tónleika í nýju
Laugardalshöllinni 17. júní Fleiri gestir, fleiri svið og fleiri hljómsveitir en á hátíðinni í fyrra
AFP
Loksins! Radiohead heldur loksins tónleika á Íslandi. Hér sést forsprakki sveitarinnar, Thom Yorke, á tónleikum Radiohead í París 24. maí síðastliðinn.
Suður-afrísk Die antwoord, eða „Svarið“, er skipað röppurunum Ninju og
Yolandi Vissers og DJ Hi-Tek. Sveitin nýtur mikilla vinsælda nú um stundir.
Áhrifamikil Melesha O’Garro geng-
ur undir listamannsnafninu Lady
Leshurr. Hún er rappari frá Birm-
ingham á Englandi og þykir áhrifa-
valdur í hipp hoppi.
Ósk
Gunnarsdóttir