Morgunblaðið - 15.06.2016, Qupperneq 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016
Robert Plant og Jimmy Page,
tveir af liðsmönnum rokksveitar-
innar Led Zeppelin, hafa verið
kærðir fyrir að stela upphafsstefi
eins þekktasta lags hljómsveitar-
innar, „Stairway to Heaven“, úr
lagi hljómsveitarinnar Spirit,
„Taurus“. Málaferli hófust í gær
fyrir dómstóli í Los Angeles en
kæruna lagði fram þrotabússtjóri
gítarleikarans Randy Wolfe úr
Spirit. Wolfe samdi „Taurus“ árið
1966 eða 1967 en hann lést árið
1997.
Page, Plant og félagi þeirra úr
Led Zeppelin, John Paul Jones,
munu að öllu líkindum bera vitni
fyrir rétti þó að Jones sé ekki
meðal hinna ákærðu. Led Zeppel-
in og Spirit héldu tónleika og léku
á hátíðum um svipað leyti þótt
hljómsveitirnar hafi aldrei komið
fram á sömu tónleikum.
Héraðsdómari kvað upp þann
úrskurð í apríl sl. að málið skyldi
fara fyrir dóm, eftir að hafa metið
sönnunargögn kærenda. Þóttu
þau benda til þess að liðsmenn
Led Zeppelin hefðu heyrt lag Spi-
rit áður en þeir sömdu „Stairway
to Heaven“. Samanburð á lög-
unum má m.a. finna á YouTube.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Stuldur? Robert Plant, Jimmy Page og John Paul Jones á tónleikum Led
Zeppelin í Laugardalshöll 1970. Þeir þurfa að svara ásökunum um stuld.
Er upphafsstef „Stair-
way to Heaven“ stolið?
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Það er mikilvægt að fólk taki við
þessum þjóðlagaarfi og færi hann
áfram til komandi kynslóða,“ segir
Guðrún Ingimundardóttir, fram-
kvæmdastjóri þjóðlistahátíðarinnar
Vöku sem fer fram frá 15.-18. júní á
Akureyri og að hluta á Húsavík.
Á Vöku gefst
einstakt tækifæri
til að kynnast
hefðbundinni tón-
list frá Íslandi,
Noregi, Írlandi,
Lapplandi, og
Bretlandi. Ís-
lenskur kveð-
skapur, tví-
söngvar, yfir-
tónasöngur og
joik, fjörug dans-
lög, þjóðlög, þulur og barnagælur.
Fiðlur, harpa, langspil, hurdy gurdy,
banjó, harmónika, langaleik, írsk
flauta og fleiri hljóðfæri.
Vefarinn er farinn til útlanda
En nú er þetta ekki í fyrsta sinn
sem þessi hátíð er haldin, hvert er
upphaf hennar?
„Þetta byrjaði hjá okkur árið 2014
með mjög stórri hátíð Erfðir til
framtíðar,“ segir Guðrún. „Sem
haldin var til að vekja athygli á
UNESCO-samningnum um verndun
óáþreifanlegs menningararfs.
Á þessa hátíð árið 2014 völdu öll
löndin á Norðurlöndum 10-15 lista-
menn og hér var 4 daga hátíð. Þá
voru handíðir, þjóðdansar, þjóðlaga-
tónlist og ráðstefnur. Við vorum með
3-4 málþing í gangi á sama tíma. Í
framhaldi af þessu héldum við áfram
að vera með þjóðlistahátíð á Akur-
eyri.“
En núna í ár er mest um tónlist?
„Já, í ár er mest um tónlist, við er-
um bara með eitt handíðanámskeið.
En við verðum með handíðamarkað.
En ástæðan fyrir því að það verð-
ur lítið um þjóðdansa núna í ár er að
danski danshópurinn sem kom á
Vöku 2015 bauð til sín þjóðdansara-
hópi okkar Akureyringa, Vefar-
anum. Þau halda út til Danmerkur á
morgun, fimmtudag, og halda upp á
íslenska þjóðhátíðardaginn þar.
Margir flottir tónlistarmenn koma
fram á hátíðinni. Torgeir Vassvik og
dúóið Marit Steinsrud og Stein Villa
héldu reyndar tónleika í Norræna
húsinu í Reykjavík í gær áður en þau
fóru á hátíðina á Akureyri. Hinn
norski Sami Vassvik blandar saman
hefðbundnu joiki og hljómmiklum
yfirtónasöng. Marit Steinsrud og
Stein Villa spila hefðbundna tónlist
og eigin lög á elstu þjóðarhljóðfæri
Noregs. Samhljómur hörpunnar og
langeleik er að sögn Guðrúnar Ingi-
mundardóttur ógleymanlegur og
tímalaus.
Lokatónleikar á laugardag
Þau Guðrún, Villa og Steinsrud
munu halda námskeið í íslenskum
tvísöngvum og danslögum frá Nor-
egi í Deiglunni í Listagilinu á
fimmtudaginn 16. júní klukkan
10.00- 12.00.
Laugardaginn 18. júní verða síðan
lokatónleikar í Deiglunni í Lista-
gilinu, frá klukkan 20.00-23.30 þar-
sem meðal annars Funi mun koma
fram, en það dúó skipa Chris Foster
og Bára Grímsdóttir kvæðakona.
Þjóðlagaarfurinn skiptir máli
Á Akureyri
verður þjóð-
listahátíð
Fólk og hljómar Tónlistarmennirnir Chris Foster og Bára Grímsdóttir.
Útivist Ave Kara Sillaots mun verða með námskeið í harmonikkutónlist. Skinnið handleikið Torgeir Vassvik, hinn norski Sami, er með skinntrommu.
Tónlistarséní Norðmennirnir Marit Stein og Stein Villa verða á hátíðinni.
Guðrún
Ingimundardóttir
Ryðfrí samtengi
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Varanleg tengi fyrir flestar gerðir af pípum og rörum.
Auðveld samsetning og alvöru þétting.