Morgunblaðið - 30.06.2016, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2016
VANDAÐUR
vinnufatnaður
frá BULLDOG
á góðu verði
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Öryggisskór
Sýnileikafatnaður
Vinnufatnaður
Vinnuvettlingar
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is
Útlendingastofnun hefur sentfrá sér tilkynningu þar sem
lýst er því viðhorfi að stofnuninni sé
ekki aðeins heimilt, heldur einnig
að nokkru marki skylt, að bregðast
við fyrirspurnum vegna mála sem
til umfjöllunar eru í fjölmiðlum.
Stofnunin telur sér einnig heimilt
að leiðrétta rangfærslur, en tekur
fram að hún hafi gætt meðalhófs og
ekki sagt frá viðkvæmum persónu-
upplýsingum.
Tilkynningin er send út vegnahælisleitendamála, en iðulega
verður uppi fótur og fit ef að veitt-
ar eru upplýsingar um slík mál.
Jafnvel þeir miðlar sem alla jafnagefa ekki mikið fyrir einkalíf
landsmanna, verða kaþólskari en
páfinn þegar kemur að einkalífi
hælisleitenda.
Nema að vísu þegar kemur aðþví að miðla því sem hælisleit-
endurnir sjálfir vilja koma á fram-
færi. Þeim upplýsingum, réttum
eða röngum, er hiklaust miðlað til
almennings.
Afleiðingin af þessu viðhorfiverður svo sú að iðulega er að-
eins dregin upp hálf myndin og sú
jafnvel bjöguð.
Vissulega er málaflokkurinn við-kvæmur, en landsmönnum er
enginn greiði gerður með því að
vera aðeins mataðir á hlið annars
málsaðilans.
Ætli það sé ekki vænlegra tilárangurs að helstu stað-
reyndir liggi á borðinu?
Önnur hliðin er
sjaldnast nóg
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 29.6., kl. 18.00
Reykjavík 13 skýjað
Bolungarvík 11 skýjað
Akureyri 14 skýjað
Nuuk 2 skýjað
Þórshöfn 11 skýjað
Ósló 19 heiðskírt
Kaupmannahöfn 18 léttskýjað
Stokkhólmur 20 heiðskírt
Helsinki 21 léttskýjað
Lúxemborg 21 heiðskírt
Brussel 20 léttskýjað
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 14 rigning
London 14 skúrir
París 22 heiðskírt
Amsterdam 19 léttskýjað
Hamborg 19 skýjað
Berlín 25 heiðskírt
Vín 28 heiðskírt
Moskva 24 heiðskírt
Algarve 23 heiðskírt
Madríd 33 léttskýjað
Barcelona 26 rigning
Mallorca 29 léttskýjað
Róm 27 heiðskírt
Aþena 30 léttskýjað
Winnipeg 22 þrumuveður
Montreal 20 skúrir
New York 25 léttskýjað
Chicago 22 heiðskírt
Orlando 30 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
30. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:06 23:59
ÍSAFJÖRÐUR 1:37 25:37
SIGLUFJÖRÐUR 1:20 25:20
DJÚPIVOGUR 2:22 23:41
Háskóli Íslands mun ekki fylla í
skarð Guðna Th. Jóhannessonar
með beinni ráðningu á næstunni
heldur munu áfangarnir sem Guðni
sá um ýmist falla niður eða færast til
starfandi kennara. Undanfarin ár
hefur Guðni gegnt stöðu dósents við
sagnfræðideild Háskólans. Hann
mun taka við forsetaembættinu 1.
ágúst næstkomandi og hefur þegar
sótt um launalaust frí að sögn Guð-
mundar Hálfdánarsonar, forseta
hugvísindasviðs. Samkvæmt
kennsluskrá Háskólans var áætlað
að Guðni hefði umsjón með fimm
áföngum. Efni þeirra var meðal ann-
ars kalda stríðið á Íslandi og fall
kommúnismans í Austur-Evrópu.
„Einhverjir kúrsar kunna að falla
niður. Þegar um er að ræða fasta-
námskeið koma aðrir í stað Guðna.
Það verða annaðhvort stundakenn-
arar eða fastakennarar. Oft er erfitt
að finna stundakennara sem geta
kennt tiltekin námskeið þannig að
sum kunna að falla niður,“ segir
Guðmundur og bætir við að fjár-
hagsstaða skólans geri deildinni erf-
itt fyrir að ráða nýjan dósent.
„Við verðum að líta á fjárhags-
stöðu Háskólans sem er ekkert sér-
staklega jákvæð. Þetta gæti orðið
hluti af sparnaðinum en tíminn leiðir
það í ljós.“ tfh@mbl.is
Ekki áætlað að ráða í stöðu Guðna
Ástæðan sögð bág fjárhagsstaða HÍ
Áfangar færðir til eða falla niður
Morgunblaðið/Eggert
Forseti Guðni verður í launalausu
fríi að því marki sem lög leyfa.
Tveir bræður á fertugsaldri hafa
verið ákærðir vegna bruna í iðn-
aðarhúsi á Grettisgötu í Reykjavík í
mars á þessu ári.
Er annar þeirra sagður hafa
kveikt í slæðu sem var á stól í her-
bergi hans í húsinu, hent stólnum á
dýnu og skilið brennandi dýnuna
eftir inn í herberginu og þannig
valdið eldsvoðanum. Er þess krafist
að hann verði dæmdur til refsingar
en til vara að hann sæti öryggis-
gæslu á viðeigandi stofnun.
Hinn er sagður hafa látið hjá líð-
ast að gera það sem í hans valdi
stóð til að afstýra eldsvoðanum, til-
kynna hann til slökkviliðs eða lög-
reglu né kanna hvort einhver væri í
húsinu þegar hann yfirgaf það.
Tryggingamiðstöðin hefur einn-
ig lagt fram 12,6 milljóna króna
skaðabótakröfu á hendur bræðr-
unum.
Ákærðir fyr-
ir íkveikju
Morgunblaðið/Golli
Eldur Slökkvilið höfuðborgarsvæð-
isins berst við eldinn á Grettisgötu.