Morgunblaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2016 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Stórleikarinn Ólafur Darri Ólafsson mátti svo til ekkert segja um hlut- verk sitt í kvikmynd Stevens Spiel- berg, The BFG, þegar blaðamaður ræddi við hann fyrir rúmu ári, enda myndin þá skammt á veg komin og mikil leynd yfir öllu saman, eins og vaninn er í kvikmyndabransanum. En núna er búið að frumsýna mynd- ina, heimsfrumsýningin fór fram á kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí sl. og Ólafur Darri var viðstaddur frumsýningu í Hollywood fyrir skemmstu. Almennar sýningar á henni hér á landi hefjast á morgun í Sambíóunum og Ólafi Darra því frjálst að tjá sig um myndina og sam- starfið við Spielberg. Handrit myndarinnar er byggt á samnefndri barnabók enska rithöf- undarins Roalds Dahl og segir í henni af ungri, munaðarlausri stúlku, Sophie, sem numin er á brott af risa sem fer með hana heim til sín í Risaland. Í fyrstu er hún dauðhrædd við risann, óttast að hann ætli að éta hana, en fljótlega kemur í ljós að hann er hinn vinalegasti (The BFG er skammstöfun á „The big, friendly giant“, þ.e. stóri, vinalegi risinn). Risinn er þeim hæfileika gæddur að geta fangað drauma og verða þau Sophie miklir vinir. Fljótlega lenda Sophie og risinn í lífshættu þegar aðrir óvingjarnlegir risar komast að því að mannsbarn sé í Risalandi, ris- ar sem eru sólgnir í mannakjöt. Líkt leikhúsi Ólafur Darri fer með hlutverk risa í myndinni, mannæturisa sem nefn- ist The Maidmasher. Sá er ekki vina- legur, enda bara einn vinalegur risi í Risalandi. Risinn birtist á hvíta tjald- inu, ásamt öðrum, í tölvuteiknaðri út- gáfu sem unnin er með sk. „motion capture“-tækni sem var m.a. beitt í Lord of the Rings til að búa til kvik- indið Gollri og í Avatar þar sem leik- urum var breytt í bláar geimverur. „Þá fer maður í sérstakan galla sem er ekkert rosalega „flattering“, alla vega ekki fyrir svona stóra og feita menn eins og mig. Svo fær maður rosalega marga punkta á sig og punktar eru líka málaðir á andlitið,“ segir Ólafur Darri um aðferðina. „Þessar senur okkar voru skotnar á svona „sound stage“ sem er í raun- inni bara stúdíó og þar eru kannski 50-70 kamerur í loftinu. Punktarnir eru hvítir, gallarnir gráir og þessar myndavélar nema endurskinið frá punktunum þannig að þær lesa hreyfingar leikarans. Svo ertu með hjálm og ein kamera tekur mynd af andlitinu á þér allan tímann. Það skrítna við að leika í svona er að það er að mörgu leyti líkara því að leika í leikhúsi en í bíómynd. Ástæð- an er einfaldlega sú að þegar þú ert í tökum er myndavélin aldrei á ein- hverjum einum, hún er alltaf á öllum allan tímann. Þegar þú stendur á sviði eru áhorfendur að horfa á allt sem þú gerir en í kvikmynd getur leikstjórinn valið á hvaða móment er verið að horfa í hvert skipti,“ segir Ólafur Darri um þessa frumraun sína í „motion capture“-leik. Hann segir það hafa tekið sig dá- litla stund að venjast þessum að- stæðum og að vinna með þessum hætti. „Ég hafði í rauninni ekki þá grunnþekkingu sem ég þurfti fyrr en ég var búinn að prófa þetta eitthvað. Þá fór ég að átta mig á því hvernig þetta virkar. En þetta var mjög skemmtilegt og ég væri alveg til í að prófa þetta aftur.“ Falleg saga -Og hvernig er svo útkoman? „Ég er bara stoltur af henni. Þetta er ofboðslega falleg mynd, bókin er mjög falleg og mér finnst myndin ná að fanga einhvern kjarna í henni, hún nær í skottið á honum. Þetta er mynd um einmanaleika, þarna eru tvær aðalpersónur sem báðar eru mjög einmana. „The big friendly gi- ant“ er eini vinalegi risinn og er þ.a.l. mjög einmana og stelpan býr á mun- aðarleysingjahæli og er líka ein- mana. Þetta er mynd um einmana- leika, vináttu, hugrekki, gömul og góð gildi,“ segir Ólafur Darri. Vinalega risann leikur Mark Ryl- ance, Ruby Barnhill leikur Sophie og meðal þeirra sem leika vondu risana eru Bill Hader, Michael David Adamthwaite, Daniel Bacon og Adam Godley. „Við risarnir vorum eiginlega alltaf saman í tökum, sem var svolítið skemmtilegt, maður var ekki mikið einn. Þetta var ekki eins og þegar menn eru að leika fyrir framan „green screen“ eða „blue screen“ eða þannig,“ segir Ólafur Darri, spurður að því hvort risarnir hafi verið teknir upp hver í sínu lagi eða saman. Breytilegar stærðir Hann segir galdurinn við „motion capture“-tæknina m.a. þann að hægt sé að stækka og minnka leikarana að vild. Þannig er Rylance miklu minni risi en mannæturisarnir, svo dæmi sé tekið, og segir Ólafur Darri að Rylance hafi verið á hnjánum þegar hann var að leika á móti mannætu- risunum, sem hafi verið nokkuð skondið. Þá sé Sophie auðvitað pínu- lítil í heimi risa og enn minni þegar hún standi frammi fyrir mannætu- risum. Stærðarhlutföllin séu því breytileg eftir því hvort atriðin fari fram í mannheimum eða heimi risa. -Mér sýnist og heyrist á öllu að þessi mynd sé mikið tæknilegt þrek- virki? „Já, hún er ofboðslega fallega unn- in,“ segir Ólafur Darri, augljóslega hrifinn og svo sem ekki við öðru að búast af meistara Spielberg. „Og frammistaða þessara tveggja aðal- leikara er mögnuð. Rylance er nýbú- inn að fá Óskarsverðlaun og er bara einn besti leikari í heimi og stelpan nær manni algjörlega.“ Skemmtilega fáránlegir dagar -En hvernig var að leika fyrir Spielberg? Dálítið súrrealískt, kannski? „Jú, þetta voru skemmtilega fá- ránlegir dagar í vinnunni, að vinna með Spielberg. Manninum sem er búinn að gera margar af stærstu kvikmyndum æsku manns. Ég nefndi það við einhverja blaðamenn að þetta væri maðurinn sem eyði- lagði sumarfrí á Spáni fyrir mér, ég var svo skíthræddur um að hvítháfur kæmi og æti mig þannig að ég þorði aldrei að fara út í sjó,“ segir Ólafur Darri og hlær innilega. „En það var bara ótrúlega gaman [að vinna með Spielberg], hann er svo ljúfur og auð- mjúkur listamaður, það var æð- islegt.“ Ólafur Darri hefur nóg að gera, svo vægt sé til orða tekið. Á vefnum Internet Movie Database (IMDb) má finna langan lista yfir kvikmyndir og sjónvarpsþætti sem hann hefur leikið í á undanförnum árum. Ein kvikmyndanna, The White King, var frumsýnd fyrir fáeinum dögum á kvikmyndahátíð í Edinborg og er Jo- nathan Pryce meðal aðalleikara í henni. Ólafur Darri segist fara með lítið hlutverk í myndinni líkt og í The BFG. -En margt smátt gerir eitt stórt … „Já, já, erum við ekki að horfa á akkúrat það núna með íslenska landsliðið á EM? Það skiptir ekki máli hvort maður er mest eða minnst með boltann heldur að liðið vinni og maður geti haldið áfram,“ segir Ólaf- ur Darri og hlær. Gott að geta valið úr Af þeim erlendu sjónvarpsþáttum sem Ólafur Darri hefur leikið í ný- verið má nefna Emerald City sem frumsýndir verða í haust. Hann segir efnivið þeirra sóttan í heim Galdra- karlsins í Oz, bókasyrpuna Land of Oz eftir L. Frank Baum. „Þeim er leikstýrt af geggjuðum leikstjóra, Tarsem Singh, hann er algjörlega brilljant,“ segir Ólafur Darri. Önnur bandarísk þáttaröð sem Ólafur Darri leikur í og verður líka frumsýnd í haust nefnist The Quarry. „Það eru þættir sem voru teknir upp í fyrrasumar og eru byggðir á sk. „pulp fiction“ bókum,“ segir leikarinn um þá röð en í henni segir af hermanni sem snýr heim úr Víetnamstríðinu. -Svo verður mögulega framhald á Ófærð? „Já, eða ég held að allir voni það.“ -Ertu ekki að lenda í sama vanda og Baltasar Kormákur, að hafa allt of mikið að gera, vera með of mörg járn í eldinum? Ólafur Darri hlær sínum vingjarn- lega risahlátri. „Það er alltaf gott að geta valið úr. Ég hef enga trú á öðru en að ég og Baltasar og allir aðrir sem komu að gerð Ófærðar finni sér tíma til að gera meira af því. Það heppnaðist vel.“ Spielberg eyðilagði sumarfríið  Ólafur Darri leikur óvingjarnlegan mannæturisa í nýjustu kvikmynd Steven Spielberg, The BFG  Tölvuteiknaður með „motion capture“-tækni  Æðislegt að vinna með Spielberg, segir leikarinn Ógnvekjandi Vinalegi risinn er hálfgert peð í samanburði við vondu risana í The BFG. Ólafur Darri leikur risann The Maidmasher. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Í Cannes Spielberg á frumsýningu með aðalleik- urum The BFG, Ruby Barnhill og Mark Rylance. AFP Þrír stórir Ólafur Darri á frumsýningu The BFG í Hollywood 21. júní sl. með tveimur leikurum kvik- myndarinnar, Bill Hader og Jemaine Clement, sem leika mannæturisa líkt og hann sjálfur. VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.