Morgunblaðið - 30.06.2016, Page 10

Morgunblaðið - 30.06.2016, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2016 Í vikunni var á Malarrifi opnuð ný gestastofa í þjóðgarðinum Snæ- fellsjökli, sem kemur í stað þeirrar sem verið hefur á Helln- um. Á nýjum stað er starfsemin í hentugu húsnæði þar sem í aðal- hlutverki er sýning þar sem brugðið er ljósi á náttúru svæðisins og nýt- ingu þess. Einnig er fjallað um sögu svæðisins, sem þykir um margt ein- stök. Sýning þessi er verk og hug- mynd Björns G. Björnssonar, sem hannað hefur margar slíkar á und- anförnum árum, meðal annars gömlu sýninguna á Hellnum. „Hér á Malarrifi eru gömul fjár- hús sem ákveðið var að breyta og fá nýtt hlutverk. Þetta kemur mjög vel út,“ segir Jón Björnsson þjóðgarðsvörður. Hann tók við starfinu fyrir skömmu og er opnun gestastofunnar nýju eitt af fyrstu verkefnum hans þar. „Náttúran er auðvitað í aðalhlutverki á sýning- unni og vitnað til sögu þessa svæð- is, sem er merk. Hér hefur fólk lif- að af náttúrunni, sótt fisk í sjó og fugl í björg. Svo sést hér mótun landsins alveg í hnotskurn; hraun- in og gamlir gígar,“ segir Jón. Í gestastofunni er, auk sýn- ingar, aðstaða landvarða, þar verða seld rit og bæklingar auk þess sem þarna er nauðsynleg snyrtiaðstaða. Allt þarf þetta að vera til staðar, en áætlað er að um 150 þúsund ferðamenn komi á ári hverju í þjóðgarðinn á Snæfells- nesi. Þar hefur líka verið gert margt til að bæta aðgengi og þjón- ustu við ferðamenn – og má þar nefna ýmsar merkingar og góða göngustíga sem lagðir hafa verið við Svörtuloft, Djúpalónssand og Öndverðarnes og víðar. Þá heldur starfsfólk þjóðgarðsins úti fræðslustarfi og er með skipulagð- ar gönguferðir þar sem greint er frá ýmsu áhugaverðu sem fyrir augu ber. Þar er svo sannarlega af nægu að taka. Áhugaverðir staðir Alls er þjóðgarðurinn Snæfellsjök- ull, á utanverðu nesinu, 170 kíló- metrar að flatarmáli og eini þjóð- garður landsins sem nær að sjó. Margir áhugaverðir staðir eru, auk þeirra sem nefndir eru hér að framan, og má þar nefna Arn- arstapa, Lóndranga, Vatnshelli, Gufuskála og svo mætti lengi áfram telja. sbs@mbl.is Gestastofa þjóðgarðs opnuð á Malarrifi Sýning Uppsetningin er skemmtileg og þar er margt fróðlegt að sjá og finna. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Gestastofa F.v. Jón Björnsson þjóðgarðsvörður, Björn G. Björnsson, sýningarhönnuður og Birna Reynisdóttir sérfræðingur. Lóndrangar Stakir og reglulegir að allri lögun. Eru yst á Snæfellsnesinu. Áhugaverð sýning í þjóðgarðinum á Snæ- fellsnesi. Vinsæll stað- ur og góð aðstaða U ndirbúningur er í fullum gangi fyrir Unglingalands- mót Ungmennafélags Ís- lands sem haldið verður í Borgarnesi um næstu versl- unarmannahelgi. Verið er að lag- færa íþróttamannvirki, hreinsa garða og útbúa risastórt tjaldsvæði. Keppni á mótinu hefst 28. júlí og því verður slitið 31. júlí. Þetta er 19. Unglingalandsmót UMFÍ og í ann- að skiptið sem það verður haldið í Borgarnesi. Skráning hefst 1. júlí. Búist við 15 þúsund manns Gert er ráð fyrir miklum fjölda fólks í Borgarnesi yfir mótshelgina, segir í frétt frá UMFÍ. Þegar mótið var haldið á sama stað árið 2010 voru keppendur tæplega 1.700 og um 15.000 manns í bænum, að talið er. Gert er ráð fyrir álíka fjölda keppenda og gesta nú. Drög liggja þegar fyrir að keppnisdagskrá, en keppt verður í körfu og fótbolta, frjálsum, glímu, ólympískum lyft- ingum, skotfimi, stafsetningu og mörgu fleiru. Landsmótið fer fram vítt og breitt um svæði UMSB í Borg- arbyggð. Keppt verður í sundlaug- inni í Borgarnesi, í íþróttahúsinu, á Skallagrímsvelli og í Skallagríms- garði, í Brákarhlíð, á golfsvæði Hamars, við Hjálmaklett, á reiðvelli Hestamannafélagsins Skugga, á skotsvæði SkotVest í Brákarey og á Hvanneyri. Þá verður keppt í and- ans greinum, upplestri, skák og stafsetningu á dvalarheimili aldr- aðra. Tjaldsvæði við Kárastaði Tjaldsvæðin verða í útjaðri Borg- arness við Kárastaði og er verið að gera þau tilbúin fyrir mótið. Þar verða salerni, leiksvæði og upplýs- ingatjald UMFÍ. Kvöldvökur verða haldnar alla mótsdagana í Borg- arnesi. Á meðal þeirra tónlistar- manna sem fram munu koma á hverju kvöldi eru Emmsjé Gauti, Úlfur Úlfur, hljómsveitin Amaba- dama, Hafnfirðingurinn Jón Jóns- son, bróðir hans Friðrik Dór, Dikta og Glowie. sbs@mbl.is Undirbúningur unglingalands- móts í gangi Verslunarmannahelgin. Búist við margmenni. Keppt í körfu, fótbolta, frjálum og glímu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Borgarnes Staður í þjóðbraut . Búist er við miklum fjölda fólks á landsmótið sem verður haldið þarna fljótlega. Körfubolti Hér sést troðið í körfuna með miklum tilþrifum. Setning Unglingalandsmót hafa yfir sér blæ hátíðleika.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.