Morgunblaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2016
E
itt af því tilkomumesta sem
sjá má á gjörvöllu Íslandi eru
Drangaskörð á Ströndum.
Þau eru einstaklega fögur
þegar litið er til þeirra úr fjarska og
ekki dregur úr áhrifunum þegar nær
kemur. Falleg og skemmtileg
gönguleið liggur frá Ófeigsfirði og
norður í Reykjarfjörð og jafnvel
lengra ef göngufólk vill.
Sumarið 1991 gekk ég, undirrit-
aður, með góðum hópi vina þessa
gönguleið. Pétur Guðmundsson
sigldi með okkur yfir í Drangavík
þar sem við tjölduðum. Þarna er svo
margt kennt við þessa Dranga. Fyr-
ir ofan þá er fjallið sem nefnist
Drangahlíð og fyrir það og skörðin
liggur Drangagata og norðan við
þau er komið að bænum Dröngum
sem fór í eyði árið 1966. Þar hefur þó
verið búið á hverju sumri síðan. Síð-
ustu ábúendurnir voru hjónin Krist-
inn Hallur Jónsson og Anna Jak-
obína Guðjónsdóttir. Þau áttu saman
níu börn en Anna átti fyrir fimm
dætur. Kristinn lést árið 2000 og
Anna 2006. Kristinn var eft-
irminnilegur maður, afar fróður um
landið sitt og gaman að hitta hann.
Tveimur dögum síðar komum við í
Reykjarfjörð og þar hittum við hjón-
in Ragnar Jakobsson (1931-2015) og
Sjöfn Guðmundsdóttur (1937-2012)
sem voru góðir vinir og tóku alltaf
vel á móti mér og ferðafélögum mín-
um. Sjöfn, sem alltaf var kölluð
Lilla, var systir Péturs þess sem áð-
ur var nefndur og sigldi með okkur.
sigurdur.sigurdarson@simnet.is
Tilkomumikil og fjarskafögur
Náttúrusmíð Drangaskörð eru sjö misháir jarðlagastaflar yst á fjallskaga í Árneshreppi á Ströndum. Falleg og skemmtileg gönguleið liggur frá Ófeigsfirði og norður í Reykjarfjörð og jafnvel lengra.
Gönguleið Drangaskörð
Ljósmynd/Sigurður Sigurðarson
Urð Göngugarpar víla ekki fyrir sér að klífa kletta og ganga skriður.