Morgunblaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2016 L anganes er áhugaverður staður að sækja heim, með sína ósnortnu náttúru, víð- áttu og fjölbreytt fuglalíf. Þangað hefur löngum verið sótt björg í bú og eggjatekja töluverð í gegnum tíðina. Leiknir sigmenn víla ekki fyrir sér að síga niður þverhnípt björgin til að nálgast svartfuglseggin, sem þykja allra meina bót, og enn luma ýmsir á svartfuglseggjum eftir eggjavertíð vorsins. Langanes þykir mikil paradís fuglaáhugamanna, t.d. er mikil súlubyggð við Skoruvíkurbjörg, í klettastapanum Stórakarli. Fyrir tveimur árum var byggður útsýn- ispallur á Skoruvíkurbjargi rétt við Stórakarl og frá honum er stór- kostlegt útsýni yfir ríki súlunnar. Um 34 km eru frá Þórshöfn að út- sýnispallinum, sem ber nafnið Járnkarlinn. Skoruvík er rétt utan við björgin og þar stóð samnefndur bær, sem fór í eyði fyrir 38 árum. Ysti oddi Langaness er Langanesfontur, í daglegu tali kallaður Fontur þar sem Langanesvita ber við himin. Frá Þórshöfn eru um 50 km út á á Fontinn og er vegurinn seinfær síðasta kaflann út að Fonti. Mikil saga á Langanesi Saga útgerðar, mannlífs, hrakn- inga og sjóslysa er einnig tengd Langanesi. Skammt frá Skoruvík, á Vatnadalnum, er kross með áletruninni „Hér hvíla 11 enskir menn“ og vitnar um harmsögu enskrar áhafnar, eftir að skip þeirra strandaði við björgin og menn náðu ekki til bæjar. Skammt frá Skoruvík eru minjar um stríðs- árin en þar stendur listaverkið Tundurdufl, eða stríðseggið, eins og það er stundum nefnt. Það er listamaðurinn Jóhann Ingimars- son, Nói, sem útfærði það en þar rís á undirstöðum gamalt tund- urdufl sem minna skal á styrjaldir og grimmd mannsins. Á stríðs- árunum sprungu tundurdufl á Skálum og ollu þar miklu tjóni og búsifjum, þó ekki hefði orðið mannskaði á landi. Frá Skoruvík liggur vegur, rúma fjóra kílómetra austur yfir nesið, yfir að Skálum þar sem mik- il útgerð var á öndverðri tutt- ugustu öld. Enn standa þar minjar um byggðina sem eitt sinn var, húsarústir og hafnarmannvirki. Gamall grafreitur er við Skála- bjarg, þangað um stundarfjórð- ungs ganga frá Skálum. Mikið út- sýni er frá Skálabjargi yfir Bakkaflóann og í björtu veðri má sjá allt austur að Héraðsflóa, til Smjörfjalla og Dyrfjalla. Heiðarfjall – Misty Mountain Að ganga um Langanesið endur- nærir líkama og sál, segir fólk. Ýmsan hátt er hægt að hafa þar á. Tilvalið er að byrja ferðina í Sauðaneshúsi, en þessi fyrrverandi prestsbústaður á merkilega sögu og er elsta steinhús í Þingeyj- arsýslum, byggt úr steini árið 1879. Þar er nú minjasafn og upp- lýsingamiðstöð fyrir ferðamenn og hægt að kaupa þar kaffi og þjóð- legt meðlæti. Heiðarfjall er rétt utan Sauða- ness, þar var áður ratsjárstöð Bandaríkjamanna. Háskólanemi vinnur nú að gagna- og heimildaöflun um lífið á fjallinu, sem hermennirnir kölluðu Misty Mountain enda var þar afar þokusamt. Í lok júlí er stefnt að opnun sýningarinnar í einu húsanna sem eftir standa frá þeim tíma, frá árunum 1959-1960. Undir austanverðu Heiðarfjalli er eyðibýlið Hrollaugsstaðir og þaðan er merkt gönguleið með- fram sjónum yfir í Skálar, það eru um tíu kílómetrar og hvergi mikill bratti. Á miðri þeirri leið er eyði- býlið Kumblavík og skammt ofan Skála er komið að gamla kirkju- garðinum. Þeir gönguglöðustu geta einnig tekið stærri áfanga, t.d. byrjað við Skoruvík og gengið út á Font, rúma tólf kílómetra. Þaðan er til- valið að gefa sér góðan tíma til að ganga meðfram bjargbrúninni yfir að Skálum, sem er reyndar nokkuð lengri leið, líklega um fjögurra tíma ganga. Gott er að hafa vatns- brúsa meðferðis því uppsprettur eru ekki á hverju strái. Á Skálum er tjaldstæði og salernisaðstaða en ekki annars staðar á nesinu, svo að þar er gott að hafa bækistöð. Rétt innan Heið- arhafnar er svo farfuglaheimilið Ytra-Lón. Á Þórshöfn er einnig gott að hvílast og hefur gistiheim- ilið Lyngholt fjölgað gistirýmum og tekur vel á móti ferðalöngum. lineysig@simnet.is Stórbrotin náttúra þrungin sögu Saga útgerðar, mannlífs, hrakninga og sjóslysa tengist Langanesi. Áður var þar töluverð útgerð en nú eru flestir bæir á útnesinu komnir í eyði. Ósnortin náttúran með sínum drifhvítu rekaviðarfjörum og hrikalegu björgum er núna paradís fuglaáhugamanna og útivistarfólks. Ljósmynd/Líney Sigurðardóttir Ríki súlunnar Mikil súlubyggð er í Skoruvíkurbjörgum, og þessar eru í klettastapanum Stórakarli. Björgin eru gullnáma fyrir fuglaskoðunarfólk. Ljósmynd/Líney Sigurðardóttir Útvörður Á ysta oddi Langaness, Fonti, ber Langanesvita við himin. Ljósmynd/Líney Sigurðardóttir Járnkarl Útsýnispallurinn á Skoruvíkurbjargi er ekki fyrir lofthrædda. Langanes – útvörður í norðaustri Ljósmynd/Líney Sigurðardóttir Tundurdufl Listamaðurinn Jóhann Ingimarsson, Nói, útfærði verkið Tundurdufl. Hafið Bláa verið velkomin útsýnis & veitingastaður 483-1000•hafidblaa.is Óseyrartanga við ósa Ölfusá, 816 Þorlákshöfn opiðkl11-21alladaga 483-3330•raudahusid.is Búðarstíg4,820Eyrarbakka opið alla daga 11:30-21/22:00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.