Morgunblaðið - 08.08.2016, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.08.2016, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2016 Hraunbergi 4, 111 Reykjavík, sími 530 9500 • Frí heimsending lyfja • Góð kjör fyrir eldri borgara og öryrkja • Gerðu verðsamanburð • Lyfjaskömmtun á góðu verði góð þjónusta ogPersónuleg Opið alla virka daga kl. 8:30-18:00 Heilbrigð skynsemi Heilsugæsla efra Breiðholts Gerðuberg Lyf á lægra verði Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Urriðaholtsskóli, nýr leik- og grunn- skóli í Urriðaholti í Garðabæ, mun ekki taka til starfa í haust, líkt og ráðgert var, en ástæðan er sú að enn sem komið er eru mjög fá börn í hverfinu. „Í dag eru sextán börn á aldrinum 0-16 ára með lögheimili í Urriðaholti. Börn á grunnskólaaldri í Urriðaholti fara í aðra skóla í Garðabæ þar til skólinn í hverfinu tekur til starfa og eins hafa leikskólabörn þar fengið pláss í öðrum leikskólum,“ segir í skriflegu svari frá Garðabæ. Fyrsti áfangi skólans, um 5.300 fermetrar, er þó risinn og næsta skref er að klæða húsið að utan. Í honum eru 250 pláss fyrir börn á grunnskólaaldri og um 100 heils- dagspláss fyrir leikskólabörn. Í fyrsta áfanganum verða leikskóli, al- menn kennslurými, bókasafn og stjórnunarrými skólans. Í heild er gert ráð fyrir um 640 plássum fyrir grunnskólabörn og plássum fyrir 120 leikskólabörn. Í svari Garðabæjar segir að stefnt sé að því að opna skólann á árinu 2017. „Garðabær fylgist vel með þróun mála í hverfinu og fjölda barna þar með það að markmiði að skólinn taki til starfa um leið og fjöldi barna gef- ur tilefni til,“ segir í svarinu. Guðfinna B. Kristjánsdóttir, upp- lýsingastjóri Garðabæjar, segir að búist sé við nokkurri fjölgun í hverf- inu þar til skólinn verði opnaður. „Þetta verður metið eftir fjölgun á börnum. Það eru margir að byggja og flytja inn núna á næstu mánuðum. Það mun fjölga mikið á næstu tveim- ur árum,“ segir hún. Nýr leikskóli í Úlfarsárdal Ráðgert að fyrsti áfangi nýrrar byggingar Dalskóla í Úlfarsárdal í Reykjavík, leikskóli, verði tekinn í notkun í haust. Árið 2017 er ráðgert að fyrsti hluti grunnskólans verði tekinn í notkun og í heild árið 2018. Í skriflegu svari frá Reykjavíkur- borg segir að leikskólinn verði tek- inn í notkun um tveimur vikum síðar en áætlað var, eða um mánaðamótin ágúst/september nk. „Nemendaspá haustsins gerði ráð fyrir 177-222 börnum í grunnskóla- hluta Dalskóla en þar sem uppbygg- ing hverfisins er í fullum gangi er nokkuð erfiðara að spá fyrir um nemendafjölda. Í júlí voru 160 nem- endur skráðir í skólann en búist er við að þeim fjölgi töluvert núna þeg- ar grunnskólarnir taka til starfa eftir sumarleyfi,“ segir í svarinu, en ekki er gerð árleg spá um fjölda leik- skólabarna í Reykjavík. Búist er við hraðri fjölgun nem- enda í skólanum á næstu fimm árum. „Þá gætu nemendur í grunnskóla- hluta Dalskóla orðið ríflega 300 að fimm árum liðnum. Töluverð óvissar er þó enn um uppbyggingarhraða og innflutning í hverfið,“ segir í svarinu. Dalskóli verður hluti alhliða þjón- ustumiðstöðvar fyrir íbúa í Úlfars- árdal, þar sem meðal annars verður almenningsbókasafn, íþróttastarf- semi og sundlaug. Ljósmynd/Garðabær Urriðaholt Fyrsti áfanginn hefur um 250 pláss fyrir grunnskólabörn og um 100 heilsdagspláss fyrir leikskólabörn. Nýr grunnskóli tekur ekki til starfa í haust  Of fá börn til að Urriðaholtsskóli verði tekinn í notkun Ljósmynd/Reykjavíkurborg Úlfarsárdalur Dalskóli verður hluti alhliða hverfismiðstöðvar fyrir íbúa Úlf- arsárdals. Leikskólinn verður tilbúinn til notkunar um næstu mánaðamót. Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is „Þetta er ákveðið af hverjum leik- skóla fyrir sig, það er ekkert boð að ofan um það hvenær leikskólar eiga að fara í frí,“ segir Sigrún Björnsdóttir, upplýsingafulltrúi Skóla- og frístundasviðs Reykja- víkurborgar. En margir foreldrar sem þurfa einmitt að vinna mikið í júlí pirra sig yfir því að allir leikskólar Reykjavíkur skuli einmitt loka á þeim tíma. „Þetta er samkvæmt reglum um leikskólaþjónustu að börn fái 20 daga frí. Leikskólastjóri ákveður hvenær þessir frídagar eru að höfðu samráði við foreldraráð leik- skólans. Þetta er bara samkvæmt reglugerð og leikskólalögum. En er ekki fráleitt að öllum leik- skólum borgarinnar sé lokað á sama tíma, því sumir foreldrar eru hvað mest uppteknir í vinnu í júlí- mánuði? „Það var sumaropnun í leikskól- anum Hagaborg og hann hafði ákveðna sérstöðu hvað það varðar, en það er ekki í ár. En þessar lok- anir eru ekki á nákvæmlega sama tíma, þú getur séð lista yfir lok- anir leikskólanna á vef borg- arinnar, en þetta er mjög svipað tímabil hjá þeim öllum.“ Þegar listi yfir lokanir leikskól- anna er skoðaður sést að lang- flestum leikskólanna er lokað í fyrstu eða annarri viku júlí- mánaðar en þeir hefja starfsemi síðan aftur í byrjun ágúst. Örfáar undantekningar eru þar sem leik- skólanum er lokað í blálok júní- mánaðar og opnaður aftur í seinni hluta júlímánaðar. Setja hagsmuni barnsins frek- ar en fyrirtækisins í forgang Þetta kerfi er varla byggt upp með hagsmuni barna og foreldra í huga, er þetta ekki bara byggt upp með hagsmuni leikskólakenn- ara og kerfisins í huga? „Ég get ekki svarað því,“ segir Sigrún. Þegar formaður Félags stjórn- enda leikskóla, Ingibjörg Krist- leifsdóttir er spurð sömu spurn- ingar segir hún: „Það er mismunandi á milli sveitarfélaga hvernig kerfið er en almenna regl- an er sú að börnin eiga rétt á sam- felldu 4 vikna sumarfríi. Sum sveitarfélög hafa lokað í 6 vikur samfleytt en í Reykjavík er svig- rúm til þess að velja beggja vegna við 2-3 vikna lokun að því að ég best veit. Leikskólakennarar og annað starfsfólk á allt að 6 vikur í sumarfrí en það er alltaf nokkur hópur sem á ekkert og upp í nokkra daga. Það er því ekkert endilega hags- munir starfsmanna að allir séu skikkaðir í frí á sama tíma. En það eru ótvírætt hagsmunir barnanna að það sé ákveðinn rammi um upp- haf og endi skólaársins og það er örugglega talsverð fjárhagsleg hagræðing af lokun. Leikskólinn er menntastofnun sem á að setja hagsmuni barna í fyrsta sæti. Kerfið á að laga sig að þörfum barna en ekki öfugt. Vinnuveitendur verða að taka tillit til þess að börn starfsmanna þurfi sumarfrí. Pólitíkin sér leik- skólann gjarnan sem þjón- ustustofnun fyrir vinnumarkaðinn en leikskólakennarar líta fyrst og fremst á hann sem menntastofnun. Það reynir á stórfjölskyldu og vini þegar foreldrar ungra barna verða að vinna á lokunartíma leik- skóla og vinnuveitendur verða að vera sveigjanlegir og skilnings- ríkir, en það hlýtur að vera sjálf- sagður réttur hvers barns að fá a.m.k. 4 vikur í sumarfrí frá leik- skóla. Það á að vera útgangs- punkturinn hvernig sem útfærslan er.“ Leikskólakennarar myndu vilja annan tíma fyrir frí Þegar talað er við formann Fé- lags leikskólakennara, Harald Frey Gíslason, segir hann að þessi mál komi ekki mikið inn á borð fé- lagsins. „Þetta er í höndum sveit- arfélaganna hvenær þau loka og hvenær ekki. Ef sveitarfélög fara að hafa opið um sumar þá veit ég ekki hvernig þau ætla að leysa starfsmanna- málin sín. Ég sem foreldri er ekki spennt- ur fyrir því að fá skólakrakka til að leysa leikskólakennarana af. Einhvers staðar verða starfsmenn- irnir að koma frá. Þetta eru viðkvæmar stofnanir, þetta eru ung börn sem eru við- kvæm fyrir breytingum. Aftur á móti veit ég að leikskólakennarar væru án efa til í að geta ákveðið hvenær á orlofstímabilinu þeir færu í sumarfrí. Þetta er mjög flókið en það er ekki ein hlið á þessu.“ Sveitarstjórnir ráða lokunum  Pirrings gætir hjá sumum foreldr- um út af sumarlokunum leikskóla enda eru þær allar í júlímánuði Morgunblaðið/Eggert Gleði Börnin hafa gaman af leikskólanum en ekki eru allir foreldrar ánægðir með að flestum leikskólum í Reykjavík er lokað á sama tíma. Miklu meiri líkur eru á því en áður að Geirfinns- málið verði af- greitt óupplýst nú en áður. Þetta segir Ómar Þ. Ragnarsson fréttamaður sem hefur sent frá sér bókina Hyldýpið, sem fjallar um Geirfinnsmálið. Hann skrifaði bókina að mestu fyrir 14 árum og byggir hana að stærst- um hluta á viðtölum við eina per- sónu, sem „lýsir mannshvarfi á hendur sér í lok bókar“ og „varð að leiksoppi örlaganna með því að dragast inn í þennan hræðilega at- burð“, segir í formála Hyldýpisins. Ómar segir bókina uppgjör tveggja persóna sem komu að mál- inu. Spurður hvort bókin varpi ljósi á hvað raunverulega gerðist, segir hann lesendur verða að meta það. Ómar með Hyldýpið um Geirfinnsmál Ómar Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.