Morgunblaðið - 08.08.2016, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.08.2016, Blaðsíða 26
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is „Tökum Clinton. Það má segja að hann hafi gerst uppvís að hneyksli fyrir opnum tjöldum og það hafi frést af öllu sem hann gerði næsta dag. Hversu lengi hneykslismálin loða við hann á síðan eftir að koma í ljós. Kannski á þessi kafli úr forsetatíðinni eftir að dofna í sögunni og hverfa í bakgrunninn, og kannski ekki: menn eru enn að spinna upp nýjar sögur af kvennafari Kennedys. Svo eru menn eins og Johnson og Eisenhower sem hefur ekki komist upp um fyrr en löngu seinna. Ef við lítum yfir þessa 44 menn segir það okkur að mannleg náttúra er söm við sig og útilokað að í svona hópi séu ekki einhverjir sem stígi feilspor. Sumir eru kannski of mikið fyrir flöskuna, aðr- ir sækja í kvenfólkið, og enn aðrir fyrir eitthvað allt annað.“ Þannig svarar Jón Þ. Þór þegar hann er spurður hvernig hneykslismálin hafa mótað minningu hinna ýmsu forseta Bandaríkjanna. Jón Þ. Þór er sagnfræðingur og höfundur fjölda bóka af sagnfræðilegum toga. Í sumar leit nýjasta bókin dagsins ljós. Titill bókarinnar er Bandaríkjaforsetar og er það Urður sem gefur út. Um er að ræða stórt og mikið verk, yfir 430 blaðsíður að lengd, og er fjallað nokkuð ítarlega um aðalatriðin í lífshlaupi og störfum hvers einasta forseta Bandaríkjanna. Fjögurra ára verk Jón segir það aðeins skemmtilega tilviljun að bókin kemur út núna einmitt þegar einhverjar umdeildustu forsetakosningar Bandaríkjanna eru í vændum. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á allri sögu, bæði íslenskri og erlendri, en rekið mig á það við kennslustörf bæði í menntaskóla og háskóla að tiltölulega lítið er til af íslenskum bókum um annað en sögu Íslands. Smám sam- an fór ég að sanka að mér efni í þetta verk, og fyrir tveimur eða þremur árum áttaði ég mig loks á því að það væri kannski rétt að gefa bók- ina út þetta sumarið og vonandi njóta góðs af þeirri athygli sem beinist að bandarísku for- setakosningunum.“ Eru um fjögur ár liðin síðan Jón hóf að vinna að gerð bókarinnar með skipulögðum hætti. Hann segir vandann við skrifin ekki síst hafa falist í því að halda hverjum kafla nægilega stuttum og knöppum því allir eru forsetar Bandaríkjanna hver um sig efni í stóra bók. „Knappi textinn er alltaf erfiðastur og um leið þurfti ég að gæta þess að gera þeim öll verðug skil; að enginn yrði útundan né heldur að ein- hver annar fengi of mikið pláss.“ Endurspegla samtímann Athyglisvert er að Jón einblínir ekki á emb- Erum enn að uppgötva eitthvað nýtt um forseta Bandaríkjanna Morgunblaðið/Freyja Gylfa Orðstír „Það á bæði við um íslenska stjórnmálamenn og um bandaríska forseta líka að menn gleymast orðið svo fljótt. Hver man t.d. í dag eftir Gerald Ford?“ spyr Jón Þ. Þór. Það virðist sumpart ráðast af heppni (og stundum af óheppni) hvaða forsetar lifa áfram í vitund almennings. ættisverk forsetanna heldur fjallar líka um ævihlaup þeirra fyrir og eftir árin í Hvíta hús- inu. „Ég lagði á það áherslu að gera uppruna þeirra skil, og þá ekki bara hvaðan þeir væru ættaðir heldur við hvernig kjör forsetarnir ól- ust upp og hvernig aðstæður mótuðu þá. Í rauninni er þetta mjög sundurleitur hópur sem kemur úr mjög ólíku umhverfi og misjöfnum jarðvegi, en endurspegla forsetarnir samt hver á sinn hátt bandarískt samfélag síns tíma. Sumir fæddust í sárri fátækt á meðan aðrir – sérstaklega á 20. öldinni – voru synir auð- manna. Sumir gengu í fínustu skóla en aðrir voru sjálfmenntaðir. Þeir fyrstu voru bænda- synir og sjálfir bændur, enda Bandaríkin þá enn eins konar bændasamfélag. Markmiðið var þó ekki að segja sögu Banda- ríkjanna, þó að hún komi óneitanlega fram í lífshlaupi og störfum forsetanna: „Þetta er ekki formleg saga Bandaríkjanna, en segir þó tölu- vert um sögu landsins, og um leið um sögu heimsins eftir því sem Bandaríkin gera sig meira gildandi og standa loks uppi sem eina stórveldið.“ Enn að læra eittvað nýtt Er freistandi að halda að saga bandarísku forsetanna hafi þegar verið fullskrifuð; að við vitum allt sem hægt er að vita um þessa merku menn og ný vitneskja varla að koma upp á yfir- borðið úr þessu. Jón segir þetta ekki alls kostar rétt, og skilningur okkar á lífi og störfum margra Bandaríkjaforseta taki enn breyt- ingum. „Það er athyglisvert að bandarískir sagnfræðingar eru óhemjuduglegir við að skrifa ævisögur forsetanna, og eru endalaust að koma út nýjar bækur nánast um þá alla, og sífellt verið að endurskoða það sem áður var talið viðtekin sannindi. Forsetar sem áður þóttu ekki hafa staðið sig sérstaklega vel reyn- ast kannski hafa unnið merkilegra starf en fólk áttaði sig almennt á, og að sama skapi hefur dýrðlingaljóminn minnkað á sumum dáðustu forsetunum.“ Nefnir Jón nokkur dæmi: „Virðing Johns Adams hefur aukist gríðarlega á síðustu árum, og sagnfræðingar farnir að öðlast aðra sýn á Harry S. Truman. Lendir Truman í þessum  Sumir Bandaríkjaforsetar hafa ekki verið metnir að verðleikum  Dýrðarljómi annarra hefur minnk- að eftir því sem meira hefur komið í ljós um þá  Jón Þ. Þór segir forseta Bandaríkjanna hafa komið úr ólíkum áttum en allir hafi þeir endurspeglað samfélagið og samtímann hver á sinn hátt 26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2016 Vöruhús veitingamannsins allt á einum stað Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | Sími 595 6200 | bakoisberg.is Opið virka daga kl. 8.30-16.30 Eftirminnilegt kvöld Gestir tónleikanna voru ánægðir með frammistöðu hljómsveitarinnar. Enska rokkhljómsveitin Muse hélt tónleika í Laugardalshöll » Það var öllu tjaldað síðastliðið laugar-dagskvöld þegar enska hljómsveitin Muse lék listir sínar í Laugardalshöllinni. Óhætt er að segja að sveitin sé með þeim stærri í heiminum en hún hefur selt yfir tuttugu milljónir platna og unnið til tvennra Grammy-verðlauna svo eitthvað sé nefnt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.