Morgunblaðið - 08.08.2016, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.08.2016, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2016 ERU ÞAÐ HEITU LAUGARNAR? „ “ HVERNIG KEMST 330.000 MANNA ÞJÓÐ Á EM? LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR LEYNIVOPN.IS Vertu upplýstur! blattafram.is VANDINN LIGGUR OFT HJÁ OKKUR SJÁLFUM. SAMÞYKKIR ÞÚ KYNFERÐISOFBELDI? Stykkishólmi | Amtsbókasafnið í Stykkishólmi, sem var stofnað ár- ið 1847, mun flytja í ný húsakynni á næsta ári. Í vikunni var tekin fyrsta skóflustunga að viðbygg- ingu við Grunnskólann í Stykkis- hólmi. Með nýbyggingunni mun Amtsbókasafnið tengjast starf- semi Grunnskólans og verður skólabókasafnið sameinað rekstri Amtsbókasafnsins. Nýja bygg- ingin mun auka rými skólans sem mikil þörf er á. Bæjarstjórn tók ákvörðun um að sameina rekstur skólabóka- safnsins og Amtsbókasafnsins í þeim tilgangi að auka hagræðingu og bæta aðstöðu. Var skipaður sérstakur vinnuhópur um verk- efnið á síðasta ári sem hefur unn- ið að því að endurskipuleggja hús- næði Grunnskóla Stykkishólms, Tónlistarskóla Stykkishólms og bókasafnanna tveggja. Ákveðið var að byggja í tveimur áföngum við grunnskólann. Fyrsti áfangi er húsnæði sem er ætlað Amtsbókasafninu og grunnskól- anum. Hraðar hendur við stærsta verkefnið Nýja byggingin verður um 550 fermetrar að stærð. Leitað var tilboða í verkið og lægsta tilboð kom frá Skipavík ehf. í Stykkis- hólmi sem mun skila húsinu til- búnu til notkunar. Vertaki ætlar sér að hafa hraðar hendur og ljúka verkinu eftir rúmt eitt ár. Verklok verða því í september 2017 og mun þá öll aðstaða í grunnskólanum batna til muna þegar bókasöfnin verða sameinuð og Amtsbókasafnið opnað á nýjum stað. Samkvæmt tilboði er áætlaður kostnaður við framkvæmdina 247 milljónir króna. Bygging bókasafnsins er stærsta verkefni Stykkishólms- bæjar frá því fyrir 10 árum er nýr leikskóli var byggður og tekinn í notkun. Núverandi húsnæði bókasafns- ins í miðbænum hefur verið selt og þar munu ný hús rísa á næstu árum. Amtsbókasafnið í Stykkishólmi á sér merka sögu. Á næsta ári eru liðin 170 ár síðan það var stofnað að undirlagi Bjarna Thorsteins- sonar, amtmanns í Vesturamtinu. Amtsbókasafnið var rekið af Amt- inu og síðar af sýslunefnd Snæ- fellsness- og Hnappadalssýslu. Þegar sýslunefndir voru lagðar niður árið 1986 tók Stykkishólms- bær við safninu og húsnæði þess. Síðan hefur Amtsbókasafnið verið rekið sem almenningsbókasafn á vegum Stykkishólmsbæjar. Bókasöfn sameinuð í Stykkishólmi  Vinna hafin við nýja byggingu við Grunn- skólann og verður hún tilbúin að ári Morgunblaðið/GunnlaugurSkóflustungan Konur voru í aðalhlutverkum: Ragnheiður Valdimars- dóttir, Hafdís Bjarnadóttir og Hrafnhildur Hallvarðsdóttir. Framkvæmdir Byggt verður við hús Grunnskólans í Stykkishólmi. Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is „Talsmenn óbreyttrar nýtingar beita klassískum aðferðum afneit- unarfræðinnar, sem felast meðal annars í því að sí- fellt er krafist meiri rannsókna og gagna þrátt fyrir að vel rök- studd sérfræði- álit og viðamikil gögn liggi fyrir um ástand lands- ins,“ segir Ólafur Arnalds, prófessor við Landbúnað- arháskóla Íslands í leiðara í nýjasta hefti tímaritsins Náttúrufræðings- ins. Þar ræðir hann sauðfjárbeit og segir hana ekki vera með skynsöm- um hætti. Hann segir stóra hluta landsins illa gróna, einkum á gos- beltinu og öðrum svæðum þar sem jarðvegi er allra hættast við rofi. „Auðnir eru vitaskuld ekki hæfar til beitarnýtingar, þar eru hringrásir orku, næringar og vatns rofnar, virkni vistkerfanna er hrunin,“ seg- ir Ólafur. En í greininni er hann líka gagn- rýninn á nýgerðan búvörusamning sem hann telur að muni leiða til fjölgunar sauðfjár og enn meiri beitar. Fólki blöskrar ástandið Þegar Morgunblaðið náði tali af Ólafi sagði hann að verst væru svæðin við Langjökul, eystra gos- beltið frá Þjórsá og austur úr að Vatnajökli, Hornafirði og fyrir norðan Vatnajökul. Þetta séu dap- urlegustu svæðin. Gróðurhulan get- ur alveg farið niður í fimm prósent á þessum svæðum. En hvað veldur tregðu kerfisins við að bregðast við þessu? „Það er margt, það er ekki hægt að benda á eitthvað eitt. Það er mis- vægi atkvæða í landinu. Þriðjungur þingmanna er tengdur þessu kerfi, hefur verið bóndi eða tengdur land- búnaði með einhverjum hætti á meðan hlutfall landsmanna sem er tengt þessu kerfi er kannski ekki nema fimm prósent. Bændasamtök- in eru mjög öflug,“ segir Ólafur sem heldur úti heimasíðu um málefnið sem nefnist moldin.net. „Þeir sem að kynna sér þessi mál þeim blöskrar hver staðan er. Mér þykir vænt um sveitina og þá menningu sem henni fylgir en mér finnst að það þurfi að vera vit í stuðningi samfélagsins við þessa grein. Það er ekki gott fyrir neina at- vinnugrein að vera helg kýr. Þetta er að koma greininni í koll núna, hún er orðin verulega á skjön,“ seg- ir Ólafur. En í leiðaranum bendir hann á að stuðningsgreiðslur samfélagsins séu gríðarlega miklar til sauðfjár- bænda en taki ekki tillit til ástands landsins nema að litlum hluta. Að réttur sauðfjáreigenda til að beita á annars land sé furðulegur en lög um fjallskil og lausagöngu búfjár séu úrelt. Að mati Ólafs neita forsvarsmenn atvinnugreinarinnar að horfast í augu við breytta tíma, minnkandi neyslu og nauðsyn þess að laga framleiðsluna að þörfum og land- kostum. Sauðfjárbændur afneita vandanum  Prófessor gagnrýninn á sauðfjárbeit  Telur búvörusamninginn leiða til fjölgunar sauðfjár Morgunblaðið/Golli Landið Fallega rollan getur orðið vandamál þegar um ofbeit er að ræða. Ólafur Arnalds —með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.