Morgunblaðið - 08.08.2016, Page 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2016
Herbert Hriberschek Ágústsson fæddist í Mürzzuschlag í Austur-ríki en þriggja ára að aldri fluttist hann með foreldrum sínumtil Graz og ólst þar upp. Sumarið 1945 var hann ráðinn sem
fyrsti hornleikari við Fílharmóníuhljómsveitina í Graz og starfaði þar
til ársins 1952. Sama ár var honum boðin staða sem fyrsti hornleikari
við Sinfóníuhljómsveit Íslands og þar starfaði Herbert til ársins 1994.
Herbert hefur víða komið við í tónlistarlífi hér á landi. Hann hefur
verið stjórnandi ýmissa kóra og unglingahljómsveitar. Hann hefur
starfað sem tónskáld og hafa fjölmörg verka hans verið flutt opin-
berlega af Sinfóníuhljómsveit Íslands og smærri verk af ýmsum
kammermúsíkhópum.
Lengst af kenndi Herbert við Tónlistarskólann í Keflavík og var hann
skólastjóri skólans árin 1978-85. Hann var einnig kennari við Nýja tón-
listarskólann í Reykjavík.
Árið 1976 var Herbert veitt heiðursorðan „Das goldene Ehren-
zeichen“ frá austurríska ríkinu fyrir störf í þágu tónlistarmála á erlend-
um vettvangi.
„Ég er í augnablikinu að venjast tilverunni heima,“ segir Herbert
sem er búinn að vera lengi á spítala. Hjónin ætla ekki að halda neina
veislu eins og er, það bíður betri tíma.
Ég hef átt mjög góðan tíma hérna á Íslandi,“ segir Herbert að-
spurður. „Ég kom hingað 1952 og ætlaði að vera í eitt ár, en þau eru
orðin nokkur síðan þá. Það var alltaf nóg að gera hjá mér í tónlistinni,
hef ekki undan neinu að kvarta og allt hefur gengið upp.“
Eiginkona Herberts er Elísabet Guðjohnsen, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri við Raunvísindastofnun Háskólans. Börn þeirra eru
Sverrir og Hildur María og barnabörnin eru 6 talsins.
Alltaf haft nóg að
gera í tónlistinni
Herbert H. Ágústsson er níræður í dag
Hjónin Elísabet Guðjohnsen og Herbert H. Ágústsson.
S
igtryggur Gíslason, oftast
kallaður Bóbó, fæddist á
Seyðisfirði 8. ágúst 1956.
Hann gekk í barna- og
gagnfræðaskóla á Seyðis-
firði en tók gagnfræðapróf frá Hér-
aðsskólanum í Reykholti í Borgarfirði
1973. Hann var í Stýrimannaskól-
anum í Reykjavík 1978-1980 og tók
meira fiskimannaprófið.
Missti fjóra fingur
Sigtryggur byrjaði snemma að
vinna við síld við lok síldaráranna á
Seyðisfirði og síðan við fiskverkun.
„Árið 1971 var mitt fyrsta sumar á
sjó, 14 ára. Í september það ár slas-
aðist ég illa, þá nýorðinn 15 ára. Þá
missti ég fjóra putta á vinstri hendi,
en löngunin til að vera á sjó var svo
sterk að ég lét þetta ekki aftra mér.
Hélt þumalnum og hluta af vísifingri
og var því enn með grip og gat áfram
gert að fiskinum.“
Sigtryggur vann við netagerð á
Seyðisfirði í fjögur ár en fór þá aftur á
sjó á Gullbergi NS. Hann fluttist á
Sauðárkrók 1983 og var sjómaður hjá
Útgerðarfélagi Skagfirðinga. Árið
1987 var hann ráðinn til Samherja á
Akureyri sem stýrimaður á Oddeyr-
ina, var síðan á ýmsum skipum Sam-
Sigtryggur Gíslason skipstjóri – 60 ára
Hjónin Sigtryggur og Anna Guðríður á Hellismannaleið árið 2013, en þau gengu 80 kílómetra á fjórum dögum.
Ekkert annað kom til
greina en sjómennskan
Fjórir ættliðir Móðir Sigtryggs, Guðborg Björk, Sigtryggur, elsta barnið
Telma og elsta barnabarnið, María Sól, við fermingu þeirrar síðastnefndu.
Friðjón Ingi, Jósep Dagur, Kolbrún Emma, Kjartan Tumi og Ester Ugla héldu
tombólu við Samkaup í Grundarfirði og gáfu Rauða krossinum á Íslandi 3.635 kr.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Veit á vandaða lausn
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
MERITENE ER ENDURBÆTT ÚTGÁFA AF BUILD-UP DRYKKNUM
OG NÝTIST VEL Í TENGSLUM VIÐ:
• Þyngdartap
• Minnkaða matarlyst
• Uppbyggingu eftir veikindi
• Þreytu og þrekleysi vegna næringarskorts
Fæst í apótekum, Hagkaupum og fleiri verslunum.
PRÓTEINRÍKUR
NÆRINGARDRYKKUR
INNIHELDUR
VÍTAMÍNOG STEINEFNI
19
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is