Morgunblaðið - 11.08.2016, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.08.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2016 ÍSLENSKAR BÓKMENNTIR „Um ýmsa þætti í ævi Kristmanns fjallar Sigurjón á afar skemmtilegan og næman hátt í sögu sinni.“ Illugi Jökulsson Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Mikill fjöldi trjábola liggur á víð og dreif og er í stöflum á lóðinni Suður- landsbraut 68-70 í Sogamýri í Reykjavík eftir að nokkurra áratuga gamlar aspir voru felldar þar á dög- unum til að rýma fyrir nýbyggingu 74 þjónustuíbúða fyrir aldraða á vegum Grundar. Þórólfur Jónsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar, segir að ekki hafi þurft sérstakt leyfi til að fella trén, þar sem það hafi falist í lóð- arúthlutuninni til Grundar að aspirnar yrðu fjarlægðar. Þær voru flestar gróðursettar á níunda ára- tugnum, en í ársbyrjun 1983 mark- aði borgarráð þá stefnu að þarna yrði skógræktarsvæði í umsjón Skógræktar ríkisins. Aukin skóg- rækt í höfuðborginni var hluti af „grænu byltingunni“ sem Sjálfstæð- isflokkurinn boðaði á sínum tíma í borgarstjórnarkosningum í Reykja- vík. Nýtt deiliskipulag fyrir svæðið í Sogamýri hefur tekið gildi og er þar ekki gert ráð fyrir skógi. Fyrsta skóflustungan að þjón- ustuíbúðunum var tekin fyrir nokkr- um dögum, en framkvæmdir hefjast þegar öll trén sem voru höggvin hafa verið fjarlægð af svæðinu. Skógar- afurðir á Egilsstöðum annast það verk og verður öspunum ekki fargað heldur verða þær nýttar í fram- leiðslu á íslenskum flettiviði. gudmundur@mbl.is Aspir víkja fyrir íbúðum aldraðra Morgunblaðið/Júlíus. Grátt í staðinn fyrir grænt Skógarlundurinn fallegi í Sogamýri hefur orðið að víkja fyrir þjónustuíbúðum aldraðra.  Skógræktarsvæðið í Sogamýri heyrir nú sögunni til Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Nefndadagar hófust á Alþingi í gær. Þeir standa yfir í dag og þeim lýkur á morgun. Fjárlaganefnd fundar um frumvarpið um opinber innkaup, að sögn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, varaformanns fjárlaganefndar. „Við í fjárlaganefnd teljum að frumvarpið um opinber innkaup sé til mikilla bóta og leggjum kapp á ljúka vinnunni við það á þessum fundadögum,“ sagði Guðlaugur Þór í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann segir að ákveðin vandamál séu tengd haftaverslun Evrópusam- bandsins með lyf, og flæki lyfjainn- kaup t.d. Landspítalans. „Reglu- gerðarfarganið er yfirgengilegt og segja má að lyfjamarkaðurinn í Evrópu sé skilgetið afkvæmi þess og þess hvernig ESB gengur erinda stórra fyrirgreiðsluhópa. Markaðn- um er skipt upp þannig, að það eru ákveðnar hindranir inn á hvern markað fyrir sig, svo auðvelt sé að stýra því að lyfjaverð sé hærra, þar sem kaupmáttur er mikill,“ sagði Guðlaugur Þór. Hann segir að sérstakur áhugi sé á því að Landspítalinn taki þátt í stórum tilboðum við lyfjainnkaup, til þess að ná lyfjaverði niður, en það sé í raun ekki einfalt í fram- kvæmd. „Það var sett inn í frumvarpið sem varúðarráðstöfun, að ábend- ingu Samkeppniseftirlitsins, að slík þátttaka gæti valdið aukinni sam- þjöppun á lyfjamarkaðinum hér á landi, sem er nú þegar veruleg. Samkeppniseftirlitið átti að fram- kvæma samkeppnismat á áhrifunum af því að Landspítalinn tæki þátt í svona stóru útboði, en Samkeppn- iseftirlitið framkvæmdi ekki þetta mat, sem flækir málið í vinnslu fjár- laganefndar,“ sagði Guðlaugur Þór. Opinber innkaup undir smásjá fjárlaganefndar  Haftaverslun ESB með lyf flækir lyfjainnkaup hjá ríkinu Morgunblaðið/Ómar Alþingi Þingnefndir komu saman í gær til fundahalda eftir sumarleyfi. Fundadagar » Fastanefndir þingsins byrj- uðu þriggja daga fundahöld sín í gær. » Alþingi kemur saman til fundar á nýjan leik næsta mánudag, 15. ágúst. Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Kjarasamningur Sjómannasam- bands Íslands og Samtaka fyrir- tækja í sjávarútvegi (SFS) var í gær felldur með 445 atkvæðum gegn 223, en samningurinn var undirritaður 24. júní síðastliðinn. Hafa sjómenn nú verið samningslausir í rúm 5 ár. Hólmgeir Jónsson, framkvæmda- stjóri Sjómannasambands Íslands, segir ljóst að sjómenn vilji fá betri samning og verður samninganefndin því kölluð saman eftir helgi til að meta stöðuna og fara yfir næstu skref. Þá segist hann eiga von á því að nefndin hitti einnig viðsemjendur sína, en framundan er verkfall komi ekkert nýtt fram á fundi þeirra. Aðspurður segir Hólmgeir sjó- menn hafa verið óánægða með það fiskverð sem ræður hlut þeirra. „En það eru ýmis önnur mál sem menn vilja fá lausn á,“ segir hann og bendir á að nýfelldur samningur hafi falið í sér hækkanir á kauptryggingu, kaupleigu og hlífðarfatapeningum. Rúmlega 38% félagsmanna tóku þátt í atkvæðagreiðslu um samning- inn. „Auðvitað vildi maður sjá meiri þátttöku, en þetta þykir gott miðað við það sem gerist í dag. Ég get ekki verið ósáttur við þátttökuna sem slíka,“ segir Hólmgeir. Sjómenn eiga næsta leik Jens Garðar Helgason, formaður og starfandi framkvæmdastjóri SFS, segir niðurstöðuna vonbrigði. Aðspurður segist hann hafa átt von á annarri niðurstöðu. „Við þurfum að sjá hvað það er sem sjómenn eru ósáttir við í þessum samningi. Í framhaldinu þurfum við að athuga hvort sjómenn sjái flöt á því að tala saman aftur. Það eru þeir sem fella samninginn og ég lít svo á að það sé þeirra að koma með nýjar kröfur,“ segir Jens Garðar. Félagsmenn Farmanna- og fiski- mannasambands Íslands samþykktu hins vegar sinn kjarasamning með 56,4% atkvæða gegn 41,6%, en 54% starfandi skipstjórnarmanna greiddu atkvæði um samninginn. Sjómenn felldu kjarasamning  Hafa verið samningslausir í rúm 5 ár Morgunblaðið/Árni Sæberg Fiskiskip Sjómenn vilja betri samn- ing og felldu því hinn í gær. Atkvæðagreiðsla » Alls vildu 445 sjómenn ekki samþykkja nýgerðan kjara- samning, en 223 samþykktu. » Félagsmenn Farmanna- og fiskimannasambands Íslands samþykktu sinn samning. Einn þeirra hjólaviðgerðar- standa sem fyrir- tækið Fossberg kom fyrir á höf- uðborgarsvæð- inu í sumar hefur verið eyðilagður. Voru skorin af honum verkfæri sem hugsuð eru til viðgerða á hjólum auk þess sem klipptur var af ventill á hjólapumpunni sem fylgir standinum sem er í Elliðaárdal. Viðgerðarstandur reiðhjóla eyðilagður Skemmt Verkfær- unum var stolið. Umferðarslys varð í gærkvöld á Miklubraut þar sem fram- kvæmdir standa yfir. Slysið varð um klukkan 20.40 í gærkvöld. Skullu tveir bílar saman og voru fimm manns í bíl- unum. Einhverjir farþeganna kvörtuðu yfir lítils háttar meiðslum en eng- inn var fluttur á slysadeild. Tveir bílar skullu saman á Miklubraut Slys Enginn slas- aðist alvarlega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.