Morgunblaðið - 11.08.2016, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 11.08.2016, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2016 » Jazzhátíð Reykjavíkur varsett í 27. sinn í Hörpu í gær. Að vanda markaði svonefnd Jazzganga upphaf hátíðarinnar. Vegna veðurs fór hún fram innandyra í Hörpu en ekki frá Hlemmi að tónlistarhúsinu eins og til stóð. Harpa hýsir nær alla viðburði hátíðarinnar fram á sunnudag. Sannkölluð karni- valstemning ríkti í tónlistar- skrúðgöngunni, en fyrir göng- unni fór Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir básúnuleikari sem verið hefur með annan fótinn í Brasilíu síðustu ár og m.a. sinnt kennslu þar í landi. Alls verða 30 viðburðir og tónleikar þá fimm daga sem hátíðin stendur. Jazzhátíð Reykjavíkur sett í 27. sinn Jazzhátíð Áhorfendur fylgdust með setningunni. Ganga Tónlistarfólk fór um ganga og stiga. Morgunblaðið/Golli Innlifun Stefan Bauer víbrafónleikari á fullu. Banjóleikarinn Morgan O’Kane heldur tónleika á Kex hosteli í kvöld kl. 21. Að sögn tónleika- haldara ferðast O’Kane um allan heim með banjó- ið í farteskinu. Hann er frá Virginia-fylki í Bandaríkjunum en hefur haldið til í Brooklyn í New York undanfarin ár þegar hann er ekki á tónleikaferðum. Hann mun vera mikill hugsjónamaður sem syngur frumsamin lög er fjalla um lífið. Eitt laga hans er notað sem upphafslag sjónvarpsþáttanna Ta- ker‘s Creed. Aðgangur er ókeypis. Banjóleikari á Kex Morgan O’Kane Álfheiður Erla Guðmundsdóttir sópran og Eggert Reginn Kjart- ansson tenór koma fram á tón- leikum í Kaldalóni Hörpu í dag kl. 17 þar sem fluttar verða íslenskar einsöngsperlur. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Perlur ís- lenskra sönglaga. Samkvæmt upplýsingum frá tón- leikahaldara stundar Álfheiður nám við Hanns Eisler tónlistar- háskólann í Berlín og er Anna Kor- ondi hennar aðalkennari. Eggert nemur söng hjá Uta Schwabe við annan tónlistarháskólann í Vínar- borg. Á dagskrá tónleikanna eru lög eftir Sigfús Einarsson, Sigvalda Kaldalóns, Jón Ásgeirsson, Gunnar Reyni Sveinsson og fleiri. Píanó- leikari á tónleikunum er Sólborg Valdimarsdóttir. Ungir einsöngvarar spreyta sig í Hörpu Klassík Sólborg Valdimarsdóttir, Eggert Reginn Kjartansson og Álfheiður Erla Guð- mundsdóttir flytja sönglög í dag. 32 verkefni hlutu styrk úr Menningarnæturpotti Lands- bankans þegar úthlutað var úr sjóðnum fyrr í vikunni, en afraksturinn má sjá á Menn- ingarnótt sem haldin er í 21. sinn þann 20. ágúst nk. Sam- kvæmt upplýsingum frá Höf- uðborgarstofu voru veittir styrkir á bilinu 50-250 þúsund kr. til einstaklinga og hópa, samtals þrjár og hálf milljón kr. „Um er að ræða samstarfsverkefni Lands- bankans og Höfuðborgarstofu en bankinn hefur verið máttarstólpi Menn- ingarnætur frá upphafi. Starfshópur á vegum Höfuðborgarstofu valdi styrkþegana úr hópi 125 umsókna en þetta er í sjöunda skipti sem veitt er úr Menningarnæturpottinum. Við úthlutunina var lögð áhersla á að styrkja skemmtilega og frumlega viðburði sem tengjast Grandasvæðinu en helm- ingur verkefna sem fengu styrki er þaðan,“ segir í tilkynningu. 32 verkefni á Menningarnótt styrkt Styrkþegar Alls bárust 125 umsóknir. NERVE 5:50, 8, 10:10 LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ÍSL.TAL 4, 6 LEYNILÍF GÆLUDÝRA 3D ÍSL.TAL 4 LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ENS.TAL 4, 6, 8 BAD MOMS 8, 10:10 JASON BOURNE 10 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.