Morgunblaðið - 11.08.2016, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2016
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16 - www.facebook.com/spennandi
Haust 2016
Vertu upplýstur!
blattafram.is
MÖRG ÞEKKJUM VIÐ BÆÐI
ÞOLENDUR OG GERENDUR
KYNFERÐISOFBELDIS
PERSÓNULEGA.
ERUM VIÐ AÐ SAMÞYKKJA
ÞAÐ MEÐ ÞÖGNINNI?
Stór-
útsala
Síðustu dagar
Kíktu á heimasíðuna
lifstykkjabudin.is
LAUGAVEGI 82 101 REYKJAVÍK SÍMI 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
STÓRAR
STELPUR
tískuvöruverslun
Hverfisgötu 105
www.storarstelpur.is
Munið bílastæði á bak við hús
20% aukaafsláttur
af útsöluvörum
Nýjar
vörur
Við erum á facebook
Sparidress - Sumaryfirhafnir - Peysur - Blússur - Bolir
Laugavegi 63 • S: 551 4422
SÍÐASTA
ÚTSÖLUVIKA
VERÐHRUN
60-70%
afsláttur
ÚTSÖLULOK!
60%afsláttur
Fimmtudagur 10-18
Föstudagur 10-18
Laugardagur 10-16
Sunnudagur 13-18
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Tveir karlmenn sæta gæsluvarðhaldi
í tengslum við skotárásina í Fella-
hverfinu í Breiðholti síðastliðinn
föstudag. Þeir eru 28 og 29 ára gaml-
ir íslenskir ríkisborgarar en af er-
lendu bergi brotnir. Báðir hafa þeir
áður komið við sögu hjá lögreglu.
Þetta staðfesti Friðrik Smári
Björgvinsson, yfirmaður rannsókn-
ardeildar lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu, í samtali við blaðamann
mbl.is í gær. Að sögn Friðriks er
rannsókn málsins enn í fullum gangi,
hald hefur verið lagt á eitt skotvopn
sem talið er vera vopnið sem notað
var til að skjóta á fólksbíl um kvöldið.
Þrír voru í bílnum sem skotið var á
en enginn slasaðist.
Friðrik telur allt benda til þess að
fólkið í bílnum hafi tengst deilunum,
að ekki hafi verið um handahófs-
kenna árás á almenning að ræða.
Ennfremur segir Friðrik að það eigi
eftir að koma í ljós hvort vopnið hafi
verið skráð og lögregla viti ekki til
þess að önnur vopn hafi verið sýnileg
í átökunum.
Mun færri koma í söluturninn
Um tuttugu til þrjátíu manns tók-
ust á fyrir framan söluturninn í Iðu-
felli síðastliðið föstudagskvöld. Um
þröngan hóp var að ræða og voru
hóparnir að gera upp sakir sín á
milli. Skotið var úr byssum í átök-
unum og var lögregla kölluð á svæð-
ið.
Mun færri hafa lagt leið sína í sölu-
turninn síðustu daga eftir skotárás-
ina. Annar eigenda söluturnsins seg-
ir að íbúar hverfisins séu varir um
sig.
Morgunblaðið/Freyja Gylfadóttir
Lokun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði Fellahverfinu í kjölfar skot-
árásarinnar á föstudaginn og íbúar voru beðnir um að vera ekki á ferli.
Hinir grunuðu í
gæsluvarðhaldi
Skotið var á fólksbíl í Breiðholtinu
Lögreglan í Vestmannaeyjum
hafði í nógu að snúast í liðinni
viku vegna fjögurra ólátamanna.
Aðfaranótt 3. ágúst brutust
mennirnirr, sem eru góðkunnugir
lögreglunni vegna ýmissa mála,
inn í íþróttamiðstöðina í Vest-
mannaeyjum og brutu rúðu. Voru
þeir handteknir og gistu í fanga-
geymslum lögreglu þar til þeir
voru skýrslutækir.
Þrír þeirra voru aftur á ferð-
inni að morgni 5. ágúst síðastlið-
ins, þá gekk einn þeirra í skrokk
á öðrum félaga sinna auk annars
manns sem er þeim ótengdur.
Árásarmaðurinn var úrskurðaður
í gæsluvarðhald í fjórar vikur en
hann réðst á mennina meðal ann-
ars með klaufhamri.
Fyrr um morguninn höfðu
mennirnir þrír brotist inn í reyk-
kofa fyrirtækisins Grímur kokk-
ur. Síðan var brotist inn í
geymslu hjá Eyjablikki og loks lá
leið þeirra inn í bifreið sem stóð
við Bílaverkstæði Sigurjóns. jo-
hannes@mbl.is
Gekk berserksgang vopnaður klaufhamri
mbl.is