Morgunblaðið - 11.08.2016, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2016
Stjórn Viðreisnar leitar að kraftmiklum, jákvæðum, traustum og
heiðarlegum einstaklingum á framboðslista flokksins fyrir komandi
kosningar. Áhersla er lögð á að á framboðslistum Viðreisnar verði fólk
með fjölbreytta reynslu og þekkingu. Konum og körlum verður skipað
jafnt til sætis á framboðslistum Viðreisnar. Ef þú átt samleið með okkur
og ert tilbúin(n) að leggja krafta þína og metnað í starfið, hafðu þá
endilega samband við formann uppstillingarnefndar í þínu kjördæmi
fyrir laugardaginn 20. ágúst:
• Reykjavík (suður og norður) - Ásdís J. Rafnar: asdis@vidreisn.is
• Suðvesturland - Vilmundur Jósefsson: vilmundur@vidreisn.is
• Suðurland - Þórunn Benediktsdóttir: thorunn@vidreisn.is
• Norðausturland - Valtýr Þór Hreiðarsson: valtyr@vidreisn.is
• Norðvesturland - Gísli Halldór Halldórsson: gisli@vidreisn.is
Jafnframt má hafa samband við Jórunni Frímannsdóttur, formann
yfirkjörnefndar: jorunn@vidreisn.is
Við leitum líka að fólki um allt land sem vill hjálpa til við að byggja upp
öflugan flokk og taka þátt í komandi kosningabaráttu. Áhugasamir
hafi samband við skrifstofu Viðreisnar að Ármúla 42 í Reykjavík í síma
415 3700 eða með því að senda tölvupóst á vidreisn@vidreisn.is.
Ármúla 42 • 108 Reykjavík • sími 415 3700 • vidreisn@vidreisn.is
www.vidreisn.is / Vidreisn
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Við fórum með bik í gámum til
Grænlands, við fluttum eiginlega
heila verksmiðju til Tasiilaq,“ segir
Sigþór Sigurðsson hjá Malbikunar-
stöðinni Hlaðbær-Colas.
Þeir eru að sinna stóru verkefni á
austurströnd Grænlands þar sem
þeir eru að malbika í stærsta bæ aust-
urstrandarinnar, Tasiilaq, sem er
ekki langt frá hinu litla þorpi Kulusuk
sem er þekktara sveitarfélag vegna
þess að þar er flugvöllur þótt þar búi
aðeins nokkur hundruð manns.
Frá höfuðborg Grænlands, Nuuk,
er svipuð vegalengd til Tasiilaq eins
og frá Íslandi, þannig að íslenska til-
boðið í malbikunina gekk upp.
Um mjög afskekkta byggð er að
ræða. Aðeins um 55 þúsund manns
búa í þessu risastóra landi og lang-
flestir þeirra búa á vesturströndinni,
þar af tæp 18 þúsund í Nuuk.
3.000 tonn af malbiki
„Verkefnið felst í því að framleiða
og leggja út um 3.000 tonn af malbiki
á götur bæjarins en í Tasiilaq búa um
2.000 manns,“ segir Sigþór.
„Árið 2014 fór Hlaðbær-Colas í
fyrsta sinn í sambærilegt verkefni en
fyrir þann tíma voru eingöngu mal-
arvegir og plön í bænum.
Verkefnið núna er að bæta við mal-
bikuðum götum meðal annars
framhjá sjúkrahúsinu og skólanum í
bænum og eftir sumarið ættu um
30.000 fermetrar af götum að vera
malbikaðar eða um 4 kílómetrar.
Verkefnið er flókið vegna þess að
flytja þarf allan búnað og tæki héðan
frá Íslandi ásamt því að flytja þarf
bikið sem blanda þarf í malbikið í sér-
stökum gámum sem hægt er að hita
upp í 150°C.
Samstarfsaðili Colas, Norðurbik á
Akureyri, útvegar færanlega verk-
smiðju sem flytja þarf með skipi til
Tasiilaq og öll önnur tæki; malbikun-
arvélar, valtarar, vörubílar, bik í gám-
um og annað sem til þarf er flutt héð-
an með Royal Arctic Line sem kemur
sérstaka ferð til Íslands til að sækja
allan búnaðinn. Steinefni í malbikið er
svo flutt frá Nuuk með prömmum.
Það er því mikið skipulag og undir-
búningur sem liggur að baki svona
verkefni.
Gert er ráð fyrir að verkefnið taki
ekki nema hálfan mánuð eftir að það
er komið af stað. Starfsmenn Hlað-
bæjar – Colas fljúga til Kulusuk en
þaðan er þyrluferð til Tasiilaq.
Það kostar sitt.“
Íslendingunum fagnað á
austurströnd Grænlands
Hvernig hafa heimamenn tekið
ykkur?
„Þeir hafa tekið okkur fagnandi og
óhætt að segja að allt samstarf geng-
ur vel og mikil ánægja hjá íbúum að fá
loksins malbikaðar götur.“
Eru fleiri svona verkefni framund-
an hjá ykkur?
„Við erum orðnir hluti af Colas-
samsteypunni þannig að þetta er orð-
ið alþjóðlegt fyrirtæki. En Hlaðbæj-
arhlutinn sér um þetta svæði sem eru
Færeyjar, Ísland og Grænland. Við
erum núna að bjóða í verkefni í Fær-
eyjum. Það verður ábyggilega fram-
hald á þessu enda samningsaðilar
ánægðir.“
Gleði Íslendingunum hefur verið vel tekið af bæjarbúum Tasiilaq, sérstaklega börnunum.
Íslendingar malbika
á Grænlandi í sumar
Flytja þarf bikið í gámum sem hægt er að hita upp í 150°C
Sleiktir Starfsmenn íslensku malbikunarstöðvarinnar hafa verið vinsælir á
meðal hundanna í Tasiilaq í Grænlandi eins og sést á þessari mynd.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Velferðarvaktin, nefnd á vegum
velferðarráðuneytisins, hefur sent
hvatningu til sveitarstjórna, fram-
kvæmdastjóra sveitarfélaga, skóla-
nefnda/fræðslunefnda, skólaskrif-
stofa og skólastjóra, um að leggja
kostnaðarþátttöku foreldra vegna
ritfangakaupa grunnskólabarna af
eða halda henni í lágmarki. Velferð-
arvaktinni er m.a. falið samkvæmt
skipunarbréfi að „...huga að velferð
og afkomu efnalítilla barnafjöl-
skyldna, sérstaklega einstæðra for-
eldra og barna þeirra og afla upp-
lýsinga um aðstæður þeirra sem
búa við sára fátækt svo draga megi
úr henni.“
Sif Friðleifsdóttir, formaður Vel-
ferðarvaktarinnar, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að hún væri
bjartsýn á jákvæðar undirtektir
sveitarfélaga í landinu við hvatn-
ingu Velferðarvaktarinnar, en
rekstur grunnskóla væri auðvitað á
ábyrgð og forræði sveitarfélag-
anna.
„Við höfum átt mjög gott sam-
starf við Samband íslenskra sveit-
arfélaga um þetta mál. Samkvæmt
þeirra könnun, sem sambandið
kynnti okkur í vor, kom á daginn að
mestur kostnaður getur lagst á
grunnskólabarn í 8. bekk, en það er
alls ekki yfir línuna. Þar sem hann
er mestur, er hann 22.300 krónur.
Þetta eru það háar tölur, að það var
tilefni fyrir okkur að senda sterka
hvatningu til sveitarstjórna og
þeirra sem eru í grunnskóla-
samfélaginu,“ sagði Sif.
Sif sagði að hún hefði fengið
ágæt viðbrögð frá skólum og skóla-
samfélaginu við hvatningu Velferð-
arvaktarinnar.
Ráða vel við kostnaðinn
„Ég tel að sveitarfélögin í land-
inu ráði vel við að greiða þennan
kostnað alfarið, vegna þess, að sam-
kvæmt úttekt Sambands íslenskra
sveitarfélaga, þá er heildarkostn-
aður vegna námsgagna grunnskóla-
barna áætlaður 300 til 350 milljónir
króna,“ sagði Sif.
Logi Már Einarsson er formaður
skólanefndar Akureyrarbæjar.
„Við munum skoða þessi tilmæli
Velferðarvaktarinnar mjög ræki-
lega og taka þau alvarlega. Þetta
hefur aðeins verið rætt í skóla-
nefndinni hjá okkur og við áttum
okkur alveg á því að það getur falist
í þessu ákveðið réttlæti og það gæti
líka komið í veg fyrir óæskilegan
meting á milli barna, ef við sjáum
alfarið um ritföngin handa þeim.
Við munum því taka mjög vel í
þetta, en hvort við náum þessu fyrir
haustið, er óvíst,“ sagði Logi Már í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Fram kemur í bréfi frá Sambandi
íslenskra sveitarfélaga til skóla-
nefnda að sambandið hafi brugðist
við erindum frá Barnaheillum,
Heimili og skóla og velferðarvakt-
inni með því að kanna hver kostn-
aður foreldra væri vegna ritfanga-
kaupa. Komið hafi í ljós að skólar
geri mjög mismunandi kröfur um
hvaða gögn nemendum ber að
koma með í skólann. Sé þar um að
ræða upphæðir allt frá 400-22.300
krónur. Kostnaður sé því mjög mis-
munandi milli sveitarfélaga og jafn-
vel milli skóla í sama sveitarfélagi.
„Velferðarvaktinni er kunnugt
um að ákveðin sveitarfélög, t.d. Ísa-
fjarðarbær og Borgarfjörður
eystra, útvegi nemendum ritföng
þeim að kostnaðarlausu og að
Sandgerðisbær tekur einnig upp
slíkt fyrirkomulag á skólaárinu sem
hefst nú bráðlega...
Velferðarvaktin telur að kostn-
aðarþátttaka foreldra, vegna rit-
fanga og annarra gagna vegna
skólagöngu barna, upp á tugi þús-
unda króna, samrýmist hvorki anda
Barnasáttmálans né grunnskólalag-
anna,“ segir m.a. í hvatningarbréfi
Velferðarvaktarinnar.
Kostnaðarþátt-
taka verði aflögð
Kostnaður vegna ritfangakaupa
barna getur hlaupið á tugum þúsunda
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Kostnaður Það kostar sitt að kaupa
ritföng fyrir grunnskólabörnin.
Sif
Friðleifsdóttir
Logi Már
Einarsson
„Þetta mun eflaust hrista upp í mínu
stuðningsmannaliði og hef ég þegar
fengið sterk viðbrögð, einkum frá
konum og yngri kjósendum, úti um
allt kjördæmi,“ segir Ragnheiður
Elín Árnadóttir, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra og oddviti Sjálfstæð-
isflokksins í Suðurkjördæmi.
Vísar hún í máli sínu til þess að
Páll Magnússon, fyrrverandi út-
varpsstjóri, hefur tilkynnt að hann
sækist, líkt og Ragnheiður Elín, eftir
oddvitasæti í kjördæminu. Segir hún
framboð Páls vera einkum til marks
um hve mikið líf er í Suðurkjördæmi.
„Þetta mun vekja athygli á próf-
kjörinu okkar og gera það meira
spennandi. Ég hef verið oddviti í sjö
ár og leitt flokkinn í kjördæminu í
gegnum tvennar kosningar. En á
þeim tíma hefur Suðurkjördæmi
orðið eitt sterkasta vígi flokksins á
landsvísu,“ segir Ragnheiður Elín.
Margir vilja vera ofarlega
Páll tilkynnti um framboð sitt í
gær og sagðist þá stefna á 1. sæti
listans. „Ef sjálfstæðismenn í kjör-
dæminu ætla mér hins vegar eitt-
hvert annað sæti á listanum, þá er
ég fús til þess að taka því. En ég býð
mig fram í fyrsta sætið,“ segir hann.
Fleiri hafa lýst yfir framboði í
efstu sæti kjördæmisins. Þannig
sækist Ásmundur Friðriksson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, eftir
1.-2. sæti listans og Árni Johnsen,
fyrrverandi þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins, eftir einhverju efstu
sætanna í prófkjörinu sem fram fer
10. september næstkomandi.
khj@mbl.is
Tekist á um oddvitasætið
Ragnheiður El-
ín og Páll vilja
bæði leiða listann
Páll
Magnússon
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
Ásmundur
Friðriksson
Árni
Johnsen