Morgunblaðið - 11.08.2016, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 11.08.2016, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2016 Árin segja sitt1979-2016 Hjónin Ragnar Guðmundsson, matreiðslu-meistari og kona hans Bára Sigurðardóttir, stofnendur og eigendur Lauga-ás. Laugarásvegi 1 104 Reykjavík • laugaas.is )553 1620 Verið velkominn Lauga-ás hefur frá 1979 boðið viðskiptavinum sínum uppá úrval af réttum þar sem hráefni, þekking og íslenskar hefðir hafa verið hafðar að leiðarljósi. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú lætur í minni pokann til að bæta upp eitthvað sem gerðist í seinustu viku. Auðvitað gleður það þig ekki, en reyndu fyrst og fremst að komast að ástæðunni fyrir því að það var gert. 20. apríl - 20. maí  Naut Augu þín sjá alla fegurð og allan ljót- leika heimsins. Vertu opinn fyrir því sem má betur fara, lítil breyting getur haft mikil áhrif. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú munt fá það sem þú vilt. Láttu slag standa því þú hefur alla burði til þess að taka stór og erfið verkefni að þér. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú hefur úr mörgu að velja í við- skiptum og þarft að vera vel vakandi svo ekk- ert fari úrskeiðis. Gættu þess bara að það er misjafn sauður í mörgu fé. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Vegur ástar og rómantíkur er grýttur í dag. En maður getur verið latur án þess að vera iðjulaus. Hugsjónir hans toga hann jafn- vel að tilteknum kennara. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Morgunninn er kannski eilítið óreiðu- kenndur, en þá er mikilvægt að muna að láta ekki smáatriði slá sig út af laginu. Miðlið því sem þið getið til ungu kynslóðarinnar. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú þarft virkilega á einveru að halda svo að þú getir fullkomnað ætlunarverk þitt. Horfðu fyrst og fremst fram á veginn. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Kannski virðist fyndið að vera kaldhæðinn og meinyrtur, en það hjálpar manni ekki að ná þeim árangri sem maður sækist eftir. Gefðu þér tíma til að skoða sam- skipti þín við þína nánustu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Vertu á varðbergi gegn orkusug- um og hlauptu í burtu ef einhver þeirra verð- ur á vegi þínum. Sársauki í fortíðinni er yf- irstaðinn, en enn þarf að vinna úr gömlum minningum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Af einhverjum ástæðum ertu stað- ráðin/n í að fá þínu framgengt í vinnunni og á heimilinu í dag. Vertu ekki feimin/n. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þér eldri og reyndari manneskja ræður þér heilt í dag. Mundu bara að hóf er best á hverjum hlut. Gættu þess að skrifa ekki undir neitt sem gæti komið í bakið á þér seinna. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þessi dagur er kjörinn til þess að taka ákvarðanir er snerta fjármál eða viðskipti. Spurðu beinna og umbúðalausra spurninga og þú færð öll svörin sem þú þarfnast. Ídag eru 150 ár liðin frá fæðinguHöllu Eyjólfsdóttur á Laugabóli. Hún var ástsæl skáldkona í lifanda lífi. Vinátta var milli hennar og Sig- valda Kaldalóns, sem samdi lög við mörg af ljóðum hennar, sem slógu í gegn. Má þar nefna „Svanurinn minn syngur“ og „Endurminningu“: Ég lít í anda liðna tíð, er leynt í hjarta geymi. Sú ljúfa minning – létt og hljótt hún læðist til mín dag og nótt, svo aldrei, aldrei gleymi, Þessa kveðju sendi Halla Sig- valda: Þú sem æ af heilum hug hindrar sundrung alla, lyftu hverri list á flug! Lát þar enga falla. Halla fæddist á Múla við Gilsfjörð. Foreldrar hennar áttu 14 börn, en upp komust tvær dætur og sjö synir. Eldri dóttirin, Sigrún, ólst upp hjá afa sínum og ömmu í Tröllatungu, en Halla var elst þeirra er heima voru. Þegar hún stálpaðist var henni ætlað að fara á fjaðrafjöru, sem var innifalið í því að fara með sjónum um fjörur og tína fjaðrir þær, er álftirnar reyttu af sér og var um að gera að taka þær áður en þær skemmdust eða óhreinkuðust. Þær voru verslunarvara til 1914. Og á vorin var Halla látin vaka yfir túninu eins og þá var siður. Hún byrjaði snemma að yrkja, lék eftir tilburðum fullorðna fólksins og þótt- ist vera prestur og messaði. Hún grét yfir því að fá ekki að læra. Þessa skemmtilegu vísu orti hún innan við tvítugt: Ef fyrir mig viljið þið velja þann vin, er ég gæfi mín heit, þá ættuð þið ekki að dvelja svo einhliða í þessari sveit. Halla var sjálfstæð kona og stolt. Botninn á síðari vísunni er óvæntur og lýsandi! Afturför er mesta mein, mig vill tíðum hryggja; Ég vil standa alveg ein, engan stuðning þiggja. Örlög heimta ætíð sitt. Enginn væntir griða. Ellin notar andlit mitt eins og pappírsmiða. Halla var mikið náttúrubarn. Hér yrkir hún til sólargeislans: Þú ert glaðvær, geisli minn, gerir skugga bjarta. Kom þú hér sem oftast inn og í hvers manns hjarta! Og um vorið segir hún: Alltaf lifnar andi minn, enda fjölga sporin, þegar græni gróðurinn gægist upp á vorin. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Minnst Höllu á Laugabóli Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir …að skipuleggja stærsta dag ævinnar saman HJÁLP! DETT HVAR ER ODDI? VEIDIGGI. HANN SAGÐI EITT- HVAÐ UM TERMÍTA OG FÓR SVO. ÞESSI MAÐUR HÆTTIR EKKI AÐ MÓÐGA MIG. GEFÐU HONUM ROMM. ÞÁ HÆTTIR HANN KANNSKI. ÞAÐ VAR RÉTT… BJÖRG- ÚLFUR ÞETTA VIRKAÐI. FERDINAND „ÞÚ ÆTTIR KANNSKI VIÐ FÆRRI VANDAMÁL AÐ STRÍÐA EF ÞÚ VÆRIR EKKI ALLTAF AÐ LEITA ÞAU UPPI.“ „SEX SINNUM SEX ERU 54! ER ÞÉR EKKERT KENNT Í ÞESSUM SKÓLA.“ Með árunum hefur Víkverji fengiðvaxandi áhuga á þjóðlegum einkennum. Honum finnst í raun stórmerkilegt hvernig sumar þjóðir geta haft svo ólíka siði og ólíkar manngerðir þrátt fyrir að gena- samsetningin sé keimlík ef ekki ná- kvæmlega eins. Með áhuganum fylgir virðing fyrir staðalímyndum. Tilvist staðalímynda á fullan rétt á sér, þær eru staðfesting á fjöl- breytni mannkynsins. Víkverja finnst gaman að pirra sig á Norð- mönnum við Finna og Finnum við Norðmenn. Hann gerir sér jafn- framt grein fyrir því að Finnar og Norðmenn pirri sig á Íslendingum. x x x Það er auðvelt að sjá karakter-einkenni annarra þjóða en erf- iðara að greina sín eigin. Þá verður að treysta á gestsaugað. Á síðari ár- um hefur byggst upp þjóðarsjálfs- myndin um hinn bjartsýna og hálf- kærulausa Íslending. Víkverji hefur unnið verkefnavinnu með útlend- ingum og þá sáust skilin skýrlega. Bjartsýnina og kæruleysið má bæði flokka sem blessun og bölvun eftir því hvernig horft er á málið. Vík- verja þykir þó ógurlega vænt um þessa eiginleika enda þarf maður að læra að elska sjálfan sig. x x x Víkverja finnst merkilegt hvernigferðamenn bera söguna af ferð- um sínum til Íslands. Yfirleitt tala þeir um að Íslendingar séu mjög hjálplegir, hér pirrist enginn þegar hann sé spurður til vegar. Íslend- ingar hafa nefnilega ekki alltaf haft jafngott orð á sér fyrir gestrisni. Víkverji minnist vitnisburðar úr ís- lenskubók í Menntaskólanum í Reykjavík frá enskum ferðalangi sem kom til Íslands á 17. eða 18. öld. Það var ekki fögur lesning. Eng- lendingurinn sagði okkur vera níska og skítuga þjóð sem „lyftir ekki litla fingri án þess að krefjast einhvers í staðinn“, Hann var heldur ekki hrif- inn af kvenfólkinu, raunar alls ekki hrifinn, en Víkverji hefur gleymt lýsingarorðunum sem hann notaði því til stuðnings. Pistill þessi er góð áminning fyrir Víkverja að grafa menntaskólabókina upp úr komp- unni. víkverji@mbl.is Víkverji Þjónið Drottni með gleði, komið fyrir auglit hans með fagn- aðarsöng. (Sálm. 100.2)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.