Morgunblaðið - 19.08.2016, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016
Námskeið á Englandi fyrir þá sem hafa góðan grunn í ensku, en
vilja bæta stöðu sína og ná betri tökum á faglegu tungutaki. Hagnýt
þjálfun og reyndir kennarar tryggja miklar framfarir á stuttum
tíma. Form námskeiðanna er sniðið að þörfum hvers og eins;
Einkaþjálfun, smáhópur eða samsett. Lengd námskeiða; Ein vika,
eða fleiri og í boði allt árið.
Markviss enskuþjálfun
fyrir fólk í erlendum samskiptum
Excecutive
& Professional
Language Training
19.08.2016
Flest erum við opin fyrir fróðleik og bættri kunn-
áttu á ýmsum sviðum og sækjum til þess skóla
og námskeið af ýmsu tagi. Stundum er um er-
lend tungumál að ræða, ellegar trésmíði, bætta
lestrarkunnáttu eða dans. Svo er hægt að fá til
þess bæra einstaklinga að kenna manni að
borða og drekka. Eins og fyrr, bara betur.
Þetta er hálft í hvoru þema í þessu blaði.
Námskeið þar sem lærðir kenna leikum að njóta
kaffis, hella upp á og drekka; að borða osta svo
upplifunin og ánægjan sé hámörkuð; að
drekka bjór með þá vitneskju í far-
teskinu hvers konar bjórstíl er um
að ræða og hver helstu einkenni
hans eru. Flest höfum við
borðað ost og drukkið kaffi
áður, einnig bjór, en kunnum
við það örugglega? Kannski
maður kíki á námskeið?
Kanntu
þetta
örugglega?
Útgefandi
Árvakur
Umsjón
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Blaðamenn
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Bergljót Friðriksdóttir
beggo@mbl.is
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Auglýsingar
Katrín Theodórsdóttir
kata@mbl.is
Forsíðumyndina tók Golli
Prentun
Landsprent ehf.
4
Sonja Grant kennir kaffi-
sælkerum jafnt sem kaffi-
barþjónum á kaffi.
6
Lóa Hjálmtýsdóttir leiðir
okkur um víðlendur
teiknimyndasagnanna.
10
Að tala frönsku getur
opnað áður lokaðar dyr
að ýmsum tækifærum.
16
Nám í Bjórskólanum er
vinsælla en nokkurntíma
fyrr, segja prófessorarnir.
20
Núvitund nýtist víða í
námi, í leik og í starfi.
22
Muggi kennir geirneglingu
með gamla laginu á nám-
skeiði í Handverkshúsinu.