Morgunblaðið - 19.08.2016, Side 17
gengra spurninga var til dæmis,
hversu sterkur má bjór vera áður en
hann telst vera vín? Allt sem maður
sagði var nemendum gríðarleg tíð-
indi þarna í upphafi. En síðan þá höf-
um við horft upp á gríðarlega breyt-
ingu hvað kunnáttu nemenda varðar
og eins samsetningu nemendahópa.
Hér áður fyrr voru þetta heldur
stereótýpískir hópar ungra karl-
manna, með einni og einni konu sem
hætti sér með. Í dag, sex árum
seinna, kemur alls konar fólk sem oft
spyr mjög flókinna spurninga og er
greinilega að pæla í þessum hlutum
af töluverðri alvöru.“ Sveinn tekur
undir þetta.
„Ég efast um að neinn hafi upp-
lifað breytingarnar sem orðið hafa á
bjórmenningunni hér á landi eins ná-
ið og við kennararnir. Við erum að
hitta fólkið frá viku til viku og sjáum
þróunina glögglega eiga sér stað. Að-
gangur að upplýsingum er auðvitað
svo gríðarlegur í dag að við erum að
sama skapi stöðugt að læra eitthvað
nýtt af nemendum okkar. Margt af
því er mjög gagnlegt og sumt notum
við í kennslunni.“
Þeir félagar eru sammála um að
míkróbrugghúsmenningin sem tröll-
riðið hefur bjórheimi mörlandans
síðustu árin hafi umbylt öllu bjór-
umhverfi hér á landi. Stefán hag-
ræðir gleraugunum með spekings-
legum svip og bætir því við að fyrir
um tíu árum hafi um 90% af öllum
bjór sem ég keypti í Vínbúðunum
verið frá útlöndum, 10% verið ís-
lensk. „Þetta hefur snúist við. Alger-
lega. Um leið eru neytendur, og nem-
endur okkar þar á meðal, mun
forframaðri í fræðunum en áður.“
„Það er einmitt heili tilgangurinn
með þessu,“ samsinnir Sveinn. „Ef
fólk er aðeins forvitnara, kröfuharð-
ara og meira tilbúið í að prófa eitt-
hvað nýtt er tilganginum náð og tek-
ist hefur að koma nemendum til
einhvers þroska.“
Allir græða á endanum
Því er ekki að neita að það er hug-
sjónabragur á uppfræðslu þeirri sem
Sveinn og Stefán hafa sagt hér frá.
En þegar allt kemur til alls er Stefán
alltént ekki tilbúinn að taka sjálfan
sig svo alvarlega og hann verður
kankvís á svip. „Ef þetta nám hefur
góð áhrif á bjórmenninguna, sem ég
hugsa að það geri, þá er það fínt. En í
raun réttri er þetta meira eða minna
í okkar eigin þágu því með því að
skóla fólk til í bjórfræðunum erum
við að búa til einstaklinga sem sækj-
ast eftir og kaupa flóknari bjóra, sem
þýðir að sú eftirspurn verður þess
valdandi að það er boðið upp á þessa
bjóra á börunum og í Vínbúðunum
fyrir okkur. Þegar dæmigerður
sportbar er kominn með tólf dælur af
mismunandi bjór hefur tekist að
koma einhverju til leiðar, það blasir
við.“
Þeir kumpánar viðurkenna að hafa
býsna gaman af starfinu sem kenn-
arar í Bjórskólanum, enda láta þeir
sig hafa það að kenna oft í viku þegar
mest lætur. Það er til marks um vin-
sældirnar að fólk kemur á nám-
skeiðin sem drekkur ekki bjór – eða
drekkur einfaldlega alls ekki áfengi
yfir höfuð!
„Það er satt að segja svolítið sér-
kennilegt að vera spurður um það, í
upphafi námskeiðs, hvort við eigum
ekkert annað að smakka þar eð við-
komandi finnst bjór ekki góður,“ rifj-
ar Stefán upp og brosir út í annað.
Sveinn tekur undir þetta.
„Svo spyrja margir, einkum þegar
langt er liðið á námskeiðið, hvar þeir
geti sótt um sem kennarar því þetta
sé auðsjáanlega besta djobb í heimi!“
Stefán hvessir augun á blaða-
mann.
„Þá spyr ég viðkomandi á móti –
hefurðu ekki tekið eftir því að meðan
þú bjórsmakkar frá þér allt vit er ég
hér fastur með kaffibolla, vatn og
pilsner?“ Þeir félagar hlæja dátt.
„Allir bjórskólakennarar hafa á
einhverjum tímapunkti gert þau
reginmistök að hafa verið á leiðinni á
árshátíð eða annan mannfagnað
beint eftir Bjórskólann, og ákveða
þar af leiðandi að halda í við nemend-
urna í það skiptið. Það er ekki gott,“
segir Stefán. „Þú gerir það bara einu
sinni því þú fattar mjög fljótt að það
er einfaldlega ekki gott.“
Frekari reynslusögur af slíkum
kennslustundum fást hins vegar eng-
ar. Greinilegt er að það sem gerist í
Bjórskólanum heldur kyrru fyrir í
Bjórskólanum.
Kennsla í Bjórskólanum fer fram í
Gestastofu Ölgerðarinnar og upplýs-
ingar um námið má finna á
www.gestastofa.is
jonagnar@mbl.is
org hefur margur sælkerabjórinn litið dags ljós.
’„Ef þetta nám hefurgóð áhrif á bjór-menninguna, sem éghugsa að það geri, þá erþað fínt. En í raun réttri
er þetta meira eða minna
í okkar eigin þágu.
Vinsældir Sumir sækja tíma í Bjórskólanum jafnvel þó þeir þyki bjór ekki góður!
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016 MORGUNBLAÐIÐ 17
SKÓLAVÖRUBÚÐIN ÞÍN
A4 Kringlunni / A4 Skeifunni / A4 Smáralind / A4 Hafnarfirði / A4 Akureyri / A4 Egilsstöðum
www.a4.is / Þú getur einnig fylgt okkur á Facebook ogPinterest.com/A4fondur
/ A4 Selfossi
instagram.com/a4verslanir
Skiptibókamarkaðir eru einnig á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi.
Athugið að vöruúrval er mismunandi á milli verslana. Allt vöruúrval má finna á www.a4.is.
STÆRSTI SKIPTIBÓKAMARKAÐUR A4
ER Í SKEIFUNNI
OPIÐ ALLAN
SÓLARHRINGINN