Morgunblaðið - 19.08.2016, Side 23

Morgunblaðið - 19.08.2016, Side 23
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016 MORGUNBLAÐIÐ 23 Einkakennsla og þjálfun í 16 ár - Talnaleikni og reikningur - Málhljóð, lestur og ritun LÆS Í VOR Foreldrar og kennarar Næsta námskeið í lestrarkennslu ásamt eftirfylgd og ráðgjöf hefst laugardaginn 17. september 2016 Námsefni úr LÆS Í VOR fylgir með Kynningar fyrir skóla og félagasamtök En hvernig er þetta gert? Fínstillt er að þörfum nemandans Námsaukinn er mældur í hverjum tíma Heimakennsla er veitt á höfuðborgarsvæðinu - þá sem eru af erlendum uppruna: Þjálfun málhljóða; hlustun, framburður og ritun Kennslutækni: - Stýrð fyrirmæli (direct instruction) - Hnitmiðuð færniþjálfun, hröðunarnám (precision teaching) - Samtengjandi hljóðaaðferð (synthetic phonics) - Talnafjölskyldur (fact families) - Þjálfun aðgreiningar (discrimination training) - Lausnaleit í heyrenda hljóði (talk aloud problem solving) - Smellaþjálfun (clicker training, tag teach) - Hraðflettispil, leifturspjöld (SAFMEDS, flashcards) - Stöðluð hröðunarkort (standard celeration charts) Fyrir: - börn og fullorðna - byrjendur og lengra komna - lesblinda og reikniblinda - þá sem þurfa almenna leiðréttandi hjálp eða - mjög sértæka þjónustu, s.s. börn með einhverfu Guðríður Adda Ragnarsdóttir Atferlisfræðingur og kennari Atferlisgreining og kennsluráðgjöf Sími 866 56 19, adda@ismennt.is H efðin hér er afar rík og námið hefur í sjálfu sér ekki breyst að ráði frá því skólinn var stofn- aður, þó það hafi auðvit- að þróast með nýrri tækni og þess háttar,“ segir Bryndís um skólann og námsefnið. „Í reynd er verið að kenna sama grunninn og sömu námsgreinarnar og lagt var upp með fyrir 86 árum. Sem dæmi um þetta má nefna að námið var fyrst skipulagt sem tveggja ára nám en er í dag sem nemur einni önn. Eðlilega er búið að stytta námið og hnitmiða það en grunnurinn í þessu öllu sam- an er eftir sem áður sá sami.“ Nám í takt við tímann Í upphafi voru til að mynda ís- lenska og stærðfræði meðal náms- greina en eru það ekki lengur, eins og Bryndís útskýrir. „Við einblínum á handverk, svo sem vefnað, fata- gerð, prjón, hekl og útsaum. Svo er- um við með matreiðslu, hreinlæt- isfræði og loks heilbrigðisfræði. Þar tengjum við til dæmis næring- arfræði inn í kennsluna. Þannig tengjum við nútímafræði inn í nám- ið. Um leið má geta þess að umönn- un ungbarna var hluti af námsefn- inu áður fyrr – enda hét skólinn Húsmæðraskólinn í þá daga.“ Nú er sem áður sagði boðið upp á fullt nám í heila önn og einnig er hægt að taka styttra nám sem tekur ekki nema helming af önninni. „Þá geturðu farið út í meiri sérhæfingu og tekið til dæmis matreiðsluáfang- ana eingöngu, eða handverksáfang- ana, eða þá valið þér blandaða leið. Eins og sjá má á heimasíðunni okk- ar undir flipanum „Námskeið“ þá eru þrjár meginnámsleiðir í boði, sem eru hússtjórnarnám, matreiðsla og handverk.“ Fullgildar framhaldsskóla– einingar fyrir námið Handverks- og hússtjórnarskól- inn á Hallormsstað er heimavist- arskóli og kennsluhúsið og heima- vistin eru í sömu byggingunni sem er reisulegt og fallegt hús, sann- kallað hjarta Hallormsstaðar eins og Bryndís bendir á. Húsið hefur hýst skólann frá upphafi enda var það beinlínis byggt í þeim tilgangi á sínum tíma. „Þá var hér á lóðinni fjós, töluvert af dýrum og búskapur í gangi. Í dag erum við þess í stað með internet,“ bætir Bryndís við og hlær. „Á heimavistinni eru pláss fyrir 22 nemendur og þar af leiðir að námið er persónulegt og nánd mikil í þessu litla samfélagi okkar. Með þessu móti myndast vinsamleg stemning auk þess sem aðgengi að kennurum er sérstaklega gott.“ Aðspurð segir Bryndís skólann vera á framhaldsskólastigi og námið þar er lánshæft. „Við erum sem sagt viðurkenndur einkaskóli á fram- haldsskólastigi þannig að allt námið hér skilar þér fullgildum framhalds- skólaeiningum sem nýta má til stúd- entsprófs. Það má einnig sækja um svokallaðan Jöfnunarstyrk LÍN þegar sótt er um nám fjarri heima- högunum og það er nú tilfellið með langflesta nemendur okkar.“ Styrk- inn frá LÍN segir Bryndís býsna há- an og gengur hann að sögn langt upp í skólagjöldin. Sagan lifir í skólanum „Það er margt búið að breytast á þeim tíma sem skólinn hefur starf- að, úr handsnúinni saumavél í raf- knúna og úr kolaeldavél í rafmagns- hellur. En það er engu að síður margt sem hefur fengið að lifa gegn- um áratugina og þar á meðal er bað- stofan, öðru nafni vefstofan, sem er í upprunalegri mynd og þannig verð- ur henni haldið enda er þar ynd- islegt að vera.“ Námið hefst mánudaginn 22. ágúst við Handsverks- og hússtjórn- arskólann. „Það er enn hægt að sækja um og það er gert inni á heimasíðunni okkar, www.hushall.is. Það er bæði opið í fullt nám í eina önn og svo 8 vikna námið og ég hvet áhugasama að kynna sér efnið á heimasíðunni,“ segir skólameist- arinn Bryndís Fiona að endingu. jonagnar@mbl.is Skólameistarinn „Við einblínum á handverk, svo sem vefnað, fatagerð, prjón, hekl og útsaum. Svo erum við með matreiðslu, hreinlætisfræði og loks heilbrigðisfræði,“ segir Bryndís Fiona Ford um námið. Sagan og handverk í heiðri haft Handverks- og hússtjórn- arskólinn á Hallormsstað stendur á gömlum merg enda fór fyrsta skólasetn- ingin fram þann 1. nóv- ember 1930, eins og skóla- meistarinn, Bryndís Fiona Ford, greinir frá. Námið er persónulegt og fjöldi nem- enda takmarkaður til að tryggja ákveðna nánd og standa vörð um stemn- inguna. Morgunblaðið / Skapti Hallgrímsson Skólahúsið Reisulegt og fallegt hús, sannkallað hjarta Hallormsstaðar. Innanhúss Vefstofan er í upprunalegri mynd og þannig verður hún áfram.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.