Morgunblaðið - 19.08.2016, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016
Þ
að eru nú þegar nokkur
námskeið komin inn á
heimasíðu Ostaskólans og
fleiri bætast við þegar líður
á haustið,“ segir Eirný þeg-
ar hún er innt eftir fyrirhuguðu nám-
skeiðahaldi Ostaskólans í vetur. „Það
eru ný námskeið þar á meðal en málið
er engu að síður það, að grunn-
námskeiðið okkar, 101 – fyrsta nám-
skeiðið af þeim öllum – það er ennþá
það vinsælt að við höldum því inni í
námsskránni. Margir sem hafa ein-
hvern tímann setið námskeiðið koma
aftur. Það er töluverður fróðleikur sem
þar kemur fram og mörgum finnst
hreinlega gaman að koma aftur í smá
endurmenntun,“ bætir hún við og bros-
ir. „Svo eru auðvitað fjölmargir sem
eru enn að koma á námskeiðið í fyrsta
sinn.“
Grunnurinn er til alls fyrstur
Það er ekki út í bláinn að grunn-
námskeiðið er jafnt vinsælt og raun
ber vitni því yfirkennarinn Eirný bend-
ir fólki sérstaklega á að ljúka því nám-
skeiði fyrst, áður en það skráir sig á
önnur námskeið á borð við Ostur og
vín, Ostur og bjór, Pörunarnámskeiðið
eða önnur framhaldsnámskeið. „Ég vil
að fólk komi á grunnnámskeiðið fyrst
því annars ertu að heyra alls konar
hugtök í kennslunni sem segja þér
ekki neitt og fara þar af leiðandi inn
um annað og út um hitt.“
Þetta hljómar skynsamlega; það er
auðvitað glapræði að ætla að spreyta
sig á háskóla án þess að hafa lokið
menntó fyrst!
Eirný nefnir meðal nýrra námskeiða
eitt sem hún segist hafa sett saman
ekki síst fyrir sjálfa sig, og nefnist það
hinu lystaukandi nafni „Vetrarostar og
yljandi meðlæti“.
Bragðmiklir, þungir
og þroskaðir vetrarostar
„Íslendingar eru ekki alltaf með-
vitaðir um hve mikið af ostum al-
mennt er árstíðabundið og því
langar mig að kynna fólki vetr-
arosta.“
Ekki verður hjá því komist að
inna Eirnýju eftir því hvað ein-
kenni helst vetrarosta?
„Vetrarostar eru oft mjög sað-
samir, bragðsterkir, þyngri og
þurrari, og því vel þroskaðir. Mikið
af gráðostum,“ útskýrir hún. „Þeir
eru oft með stórt og mikið bragð
sem kallar á margslungið meðlæti.
Einfaldleikinn er ekki alltaf besta
lausnin þar. Með geitarosti þarf
ekki annað en handfylli af sætum
hindberjum og með góðum, vel
gerðum Mozzarella di Bufala eru
þroskaðir og sætir tómatar það
eina sem þú vilt. En þegar þú ert
kominn út í vetrarostana flækist
málið aðeins. Þá er gaman að leika
sér; taka fáeinar plómur, velgja
þær upp í portvíni og leyfa þeim
aðeins að malla og bera svo fram
með ostunum. Í þessu námskeiði er
gaman að vera fyrir fólk sem hefur
gaman af því að bralla í eldhúsinu.
Við erum að tengja ostamenn-
inguna við eldamennsku og það að
vera gestgjafi. Það er hugmyndin á
bakvið námskeiðið, og það eiga allir
að vera í kósí stemningu þegar þeir
fara heim af námskeiðinu.“
Af öðrum lystaukandi nám-
skeiðum í Ostaskólanum má nefna
„Kampavín, freyðivín og ostar“ sem
jafnan er á námsskránni þegar líða
fer að jólum, og ekki má gleyma
„Portvín, sérrí og ostar“ svo fátt
eitt sé nefnt.
Of langt mál er að telja allt nám-
skeiðaframboðið upp hér en áhuga-
sömum skal bent á vefsvæðið
www.ostaskolinn.tumblr.com
jonagnar@mbl.is
Ljúffengar lexíur í Ostaskólanum
Ljúfmetisverslunin Búrið er sælkerum hérlendis að góðu kunn enda óvíða að finna ann-
að eins úrval af öndvegis ostum og hvers lags ljúffengu meðlæti til að hafa með þeim.
Búrstýran Eirný Sigurðardóttir er ekki bara ótæmandi brunnur fróðleiks um allt sem
lýtur að ostum heldur líka óþreytandi við að miðla af þekkingu sinni til fróðleiksfúsra.
Liður í þeirri viðleitni hennar eru girnileg námskeið í Ostaskólanum, þar sem hver lyst-
ug lexían rekur aðra.
Morgunblaðið/Eggert
Lostæti Það má leika sér á ýmsa vegu þegar kemur að því að finna rétta meðlætið með sælkeraostum.
Skólastund Það er upplifun fyrir sælkera að nema fræði Eirnýjar í Ostaskólanum, enda lexíurnar
allar í meira lagi ljúffengar. Sumir koma aftur og aftur enda endurmenntun ávallt af hinu góða.
Ostanámskeið „Íslendingar eru ekki alltaf meðvitaðir um hve mikið af ost-
um almennt er árstíðabundið og því langar mig að kynna fólki vetrarosta,“
segir Eirný í Búrinu um námskeiðið Vetrarostar og yljandi meðlæti sem er
meðal nýrra námskeiða í ostaskólanum í vetur.