Morgunblaðið - 19.08.2016, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016
Hússtjórnarskólinn
á Hallormsstað
Metnaðarfullt nám
- fjölbreytt fagsvið
Nýtt á haustönn - 8 vikna nám,
þrjár leiðir í boði
Haustönn 2016 hefst 22. ágúst.
Opið fyrir umsóknir á heimasíðu skólans
www.hushall.is
M
argir útskrifaðir nem-
endur hafa farið út í
meira dansnám og
fjöldi fyrrverandi
nemenda vinnur við
ólík, krefjandi verkefni á sviði
danslistarinnar innan og utan land-
steinanna,“ segir Guðbjörg Astrid
Skúladóttir, skólastjóri og stofnandi
Klassíska listdansskólans sem nú
er að hefja sitt 23. starfsár. Sjálf
nam Guðbjörg listdans í
Þjóðleikhússkólanum, og síðar í
Ósló og London, og starfaði í fjölda
ára sem atvinnudansari bæði við
Óperuna í Gautaborg og Frankfurt.
„Markmið Klassíska listdansskól-
ans hefur frá upphafi verið að
bjóða nemendum upp á ballettnám
í hæsta gæðaflokki, með áherslum
sem endurspeglast í slagorði skól-
ans: Metnaður, þjálfun, hvatning,
vellíðan, árangur. Skólinn starfar í
Álfabakka í Mjóddinni, en einnig á
Grensásvegi í 600 fermetra hús-
næði með bestu aðstöðu. Æf-
ingasalirnir eru þrír, þar af einn
tæplega 300 fermetra salur með að-
stöðu fyrir minni danssýningar og
aðra listræna viðburði.“
Jákvæð hvatning
Aðspurð segir Guðbjörg skóla-
árið fara vel af stað. „Við erum með
frábæra kennara, íslenska og er-
lenda, sem kenna bæði klassískan
ballett og nútímadans. Lögð er
áhersla á þjálfun nemenda í hinum
hefðbundna, sígilda listdansi en
jafnframt erum við vakandi fyrir
því að kynna aðra dansstíla og
áhugaverða þróun á sviði dansins.
Jákvæð hvatning og uppbygging
nemenda í minni námshópum er
stór þáttur í starfi Klassíska list-
dansskólans. Hann er heilsárs skóli
sem skiptist í tvær annir, haust- og
vorönn, og mikil breidd er í nem-
endahópnum; þeir yngstu eru
þriggja ára og þeir elstu á fram-
haldsbraut rétt yfir tvítugu.“
Forskóli, fyrir nemendur á aldr-
inum þriggja til níu ára, veitir mik-
ilvægan grunn fyrir frekara dans-
nám, að sögn Guðbjargar. „Þar er
nemendum kynntur klassískur ball-
ett; þeir læra að bera virðingu fyrir
listinni, beita líkama sínum á réttan
hátt og byggja upp dansorðaforða.
Mikið er lagt upp úr því að
kennslan sé persónuleg og að kenn-
arinn geti sinnt hverjum nemanda
af kostgæfni. Þess vegna er fjöldi
nemenda í hverjum hópi takmark-
aður. Í lok hverrar annar er haldin
nemendasýning sem allir nemendur
skólans taka þátt í og það er yndis-
leg upplifun fyrir unga og upprenn-
andi dansara að stíga á svið, fullir
af gleði og stolti eftir miklar æfing-
ar.“
Vandaðar sýningar
Að forskóla loknum tekur við
stigsnám í grunnskóla. „Stigin eru
sjö og nemendur á aldrinum 9 til 15
ára,“ útskýrir Guðbjörg. „Ástundun
nemenda eykst í samræmi við stig-
in og þeim eru kynntar fleiri náms-
greinar, svo sem karakterdansar,
þjóðdansar og spuni. Við 10 ára
aldurinn byrja nemendur að nota
táskó og kynnast Cunningham- og
Graham-tækni.
Áherslur kennara eru ávallt þær
sömu, að veita einstaklingnum
þjálfun og faglega leiðsögn við
hæfi. Markmiðið er að skapa um-
hverfi og hæfilega áskorun fyrir
nemendur til að njóta danslist-
arinnar og þroska hæfileika sína.
Mikil vinna liggur að baki nem-
endasýningunum í lok annar, en
þar sýna nemendur dansa úr
þekktum dansverkum.“
Klassíski listdansskólinn býður
loks upp á þriggja ára dansnám á
menntaskólastigi, sem býr nem-
endur undir frekara dansnám og
atvinnumennsku, og er valið um
klassíska eða nútímalistdansbraut.
Guðbjörg bendir á að gert sé ráð
fyrir að nemendur hafi náð 15 til 16
ára aldri til að komast inn á list-
dansbraut en undantekningar séu
gerðar ef nemandi búi yfir miklum
hæfileikum og góðri tæknikunn-
áttu. „Nemendur geta valið braut-
ina í samráði við þann framhalds-
skóla sem þeir stunda nám við og
fengið 51 einingu metna eftir
þriggja til þriggja og hálfs árs nám.
Grunnfög eins og íslenska,
stærðfræði, enska, danska og önnur
bókleg fög eru stunduð við viðeig-
andi framhaldsskóla. Að loknu námi
við klassíska eða nútímalistdans-
braut hafa nemendur öðlast góðan
grunn sem fleytir þeim áfram til
frekara náms á sviði danslista.
Nemendum eru allir vegir færir og
þeir geta meðal annars valið um að
verða klassískir listdansarar, nú-
tímadansarar, danshöfundar, dans-
kennarar, dansgagnrýnendur, dans-
fræðingar eða dansmeðferðar-
fulltrúar.“
Erlendir gestakennarar
Guðbjörg er spurð út í kennara
við skólann, hvort í hópnum séu
jafnvel fyrrverandi nemendur. „All-
ir kennarar okkar, bæði íslenskir
og erlendir gestakennarar, búa yfir
mikilli þekkingu og reynslu og
þeirra á meðal eru einmitt fyrrver-
andi nemendur. Ég hef fylgt mörg-
um nemendum mínum út í frekara
nám, bæði við Boston Ballet School
og Central Pennsylvania Youth
Ballet School, en sá síðarnefndi er
mikilsvirtur skóli og stofnandi
hans, Marcia Dale Weary, þekkt
nafn í dansheiminum.
Upp úr því hafa sprottið margir
góðir kennarar, sem hafa kennt hjá
okkur í lengri eða skemmri tíma.
Guðrún Svava Kristinsdóttir var til
dæmis í fyrsta útskriftarárgang-
inum í nútímalistdansi og er nú
einn af aðalkennurum framhalds-
brautar. Guðrún Svava er menntað-
ur Graham-dansari og -kennari.
Hún útskrifaðist frá Martha
Graham-skólanum í New York af
dans- og kennarabraut og það gef-
ur henni leyfi til að kenna Graham-
tækni hvar sem er í heiminum.
Af öðrum fyrrverandi nemendum
sem hafa gert dansinn að lífsstarfi
má nefna Auði Ragnarsdóttur, sem
var einnig í fyrsta útskriftar-
árgangi nútímalistdansbrautar.
Þaðan hélt hún til Kanada og lauk
BFA-gráðu í samtímadansi og
danssmíðum frá Concordia Háskóla
í Montréal. Meðfram BFA-náminu
vann hún ýmis sjálfstæð dansverk-
efni í samstarfi við aðra upprenn-
andi dansara. Auður er að ljúka
meistaragráðu í listkennslu frá
Listaháskóla Íslands og fjallar
meistaraverkefni hennar um sam-
band dans og heilsu.“
www.ballet.is
beggo@mbl.is
Ung og upprennandi
Í Klassíska listdansskólanum eru yngstu nemendurnir
þriggja ára og þeir elstu um tvítugt og að loknu grunn-
námi stendur þeim til boða dansnám á menntaskólastigi,
sem býr hæfileikaríka og metnaðarfulla nemendur undir
frekara nám og atvinnumennsku á sviði danslista.
©2016 Christopher Lund
Klassískt Bjartey Elín Hauksdóttir og Camilo Aldazabal á nemendasýningu Klassíska listdansskólans.
©2016 Christopher Lund
Gosi Vorsýning nemenda yngri deildar skólans.
’Við 10 ára aldurinnbyrja nemendur aðnota táskó.