Morgunblaðið - 30.09.2016, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2016
jakkafatajoga.is
ÁNÆGJA EFLING
AFKÖST
H
vað myndi gerast ef allt
kaffi í landinu myndi
hverfa? Það er næsta víst
að afköstin í atvinnulífinu
myndu minnka en Valdís María
Einarsdóttir segir þó kaffikrókinn
snúast um annað og meira en að fá
koffínskammt. „Hvort sem fólk
bregður sér inn í kaffiherbergið til
að fá sér bolla af cafe latte, vatns-
glas eða te skapast þar tækifæri til
að spjalla við vinnufélagana, slaka á
og viðra hugmyndir. Það gerast
mikilvægir hlutir fyrir framan kaffi-
vélina.“
Valdís er vörumerkjastjóri og
sölustjóri hjá fyrirtækjasviði Öl-
gerðarinnar, en þar er boðið upp á
heildstæðar drykkjarlausnir fyrir
vinnustaði. Ekki ætti að koma óvart
að kaffið er í aðalhlutverki en hlut-
ur annarra drykkja fer vaxandi.
Malað á staðnum
„Það er í raun ótrúlegt hvað kaffi-
menningin á Íslandi er ung og hvað
þróunin hefur verið hröð á skömm-
um tíma. Í dag má velja á milli
fjölda kaffitegunda og allir vilja
helst af öllu fá flóknar kaffivélar
sem mala baunirnar á staðnum og
útbúa mjólkurblandaða kaffidrykki
eftir kúnstarinnar reglum.“
Að sögn Valdísar fer það eftir
stærð og samsetningu hvers fyrir-
tækis hvers konar vélar og drykkir
eru í boði. „Í dæmigerðu skrifstofu-
fyrirtæki er undantekningalítið
boðið upp á vatn. Er þá síað vatn
tekið beint úr kaldavatnsleiðslu og
hægt að fá vatnið kælt, hitað og
jafnvel kolsýrt. Síðan er víðast hvar
hægt að finna volduga „bean-to-
cup“ kaffivél sem oftast nær býður
upp á mjólkurblandaða kaffidrykki
og kakó líka. Á stöku stað verður
fyrir valinu að koma fyrir einfaldri
baunavél en geyma G-mjólk í ís-
skápnum til að minnka þrifin á
kaffivélinni.“
Á mörgum vinnustöðum er kaffið
sem er í boði af álíka gæðum og á
kaffihúsi eða veitingastað. „Bilið er
alltaf að verða minna og minna,“
segir Valdís. „Og starfsfólkið kann
að meta gott kaffi. Þetta er einhver
síðasti staðurinn þar sem fólk vill
að sé sparað.“
Lauflétt þrif
Ekki er nóg með að fullkomnustu
vélarnar galdri fram úrval kaffi-
drykkja heldur eru þrifin líka orðin
nær sjálfvirk. „Flestar sjálfvirku
baunavélarnar biðja um þrif á 250
bolla fresti. Er þá sett þar til gerð
tafla í vélina og hreinsunarpró-
grammið ræst. Ef vélin er með
slöngu ofan í ferska mjólk er skipt
um slönguna og henni einfaldlega
stungið í uppþvottavélina og hreinni
slöngu komið fyrir í staðinn. Er
ágætis viðmið að skipta um mjólk-
urslöngu tvisvar í viku. Styttri þrif-
in taka frá einni mínútu en ítarlegri
hreinsun getur tekið lengri tíma.
Vitaskuld þarf svo að huga að vél-
inni reglulega, til dæmis tæma
korgskúffu og dropabakka.“
Hjá Ölgerðinni má taka kaffivél-
arnar á leigu og fá nýtt kaffi og
annað hráefni sent reglulega. „Er
hægt að fara mismunandi leiðir á
ólíkum stöðum í fyrirtækinu. Á
verkstæðinu er kannski hentugast
að hafa gamla góða uppáhellta
kaffið, baunavél á kaffistofu skrif-
stofufólksins og safavélar í mötu-
neytinu. Sumir gera sér jafnvel ferð
á milli deilda til að komast í þá vél
sem þeim líkar best og getur það
verið skemmtileg leið til að skapa
ný tengsl innan vinnustaðarins.“
Spekúlantarnir hafðir með í ráðum
Hvaða kaffi á svo að velja? Er ekki
hætta á að kaffispekingar fyrir-
tækisins hafi ólíkar skoðanir á því
hvernig þeir vilja hafa bollann sinn?
„Ef mest er drukkið af espresso-
kaffi mælum við með espresso-
baunum en annars þykir yfirleitt
best að velja mildari heilbaunir. Við
sendum gjarnan kaffiprufur svo að
þeir sem hafa skoðun á kaffinu geti
fundið þá tegund sem
þeim hugnast best.
Þegar kaffivélunum
er síðan komið fyrir
er iðulega hóað í
kaffispekúlantana og
þeir fengnir til að
gefa álit sitt á hvern-
ig þeir vilja láta stilla
vélina og smakka til
kaffið þangað til boll-
in er eins og hann á
að vera,“ segir Val-
dís. „Reglulega fáum
við svo fyrirspurnir
um að breyta til; prófa kannski nýj-
ar baunir tilbreytingarinnar
vegna.“
Kaffidrykkir sækja á
Valdísi virðist að Íslendingar séu að
færa sig meira yfir í mjólkur-
blönduðu kaffidrykkina og þá sé al-
gengt að bragð-
bættu sýrópi sé stillt
upp við kaffivélina
fyrir þá sem það
vilja. „Sum fyrirtæki
ganga jafnvel svo
langt að hafa sér-
stakan kaffibar í
húsinu þar sem
starfsmaður stendur
vaktina allan daginn
og útbýr kaffidrykki
eftir pöntun, bæði
fyrir starfsmenn og
viðskiptavini.“
Gæti það jafnvel gerst að bráðum
birtist í kaffikróknum vélar sem
geta útbúið flókna, kælda drykki
líkt og fólk á að venjast á vinsælum
kaffihúsakeðjum. „Það er umtalað
hjá erlendu tengiliðunum okkar að
þetta er það sem unga fólkið vill.“
ai@mbl.is
Vélar sem galdra fram alls kyns drykki
Þegar vönduð kaffivél
er fengin á vinnustað-
inn er ágætt að leyfa
kaffispekingum fyrir-
tækisins að taka þátt í
að velja réttu baun-
irnar og stilla vélina.
Morgunblaðið/Ófeigur
Hversdagslúxus Valdís María Einarsdóttir segir starfsfólk kunna að meta gott kaffi. „Þetta er einhver síðasti staðurinn þar sem fólk vill að sé sparað.“
Fullkomið Kunnugleg sjón úr kaffikróknum. Með því að ýta á hnapp er kominn vandaður drykkur í bollann. Sopi Kaffið er bæði orku- og gleðigjafi.
Í dag má velja á milli
fjölda kaffitegunda og
allir vilja helst af öllu
fá flóknar kaffivélar
sem mala baunirnar á
staðnum og útbúa
mjólkurblandaða
kaffidrykki eftir
kúnstarinnar reglum.