Morgunblaðið - 30.09.2016, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2016
Þ
að getur verið krefjandi
verkefni að ætla að
breyta venjubundnum
hlutum til betri vegar,
ekki síst í stórum fyr-
irtækjum, en Stefán segir Valitor
hafa nýtt sér það umrót sem óhjá-
kvæmilega varð vegna flutninga.
Þar var gæsin gripin.
„Við nýttum tækifærið þegar við
vorum að skipta um húsnæði,“ seg-
ir Stefán, spurður um aðdraganda
þessara umbreytinga hjá Valitor.
„Við fluttum í nýtt húsnæði við
Dalshraun 3 í Hafnarfirði í nóv-
ember 2013, en vorum áður að
Laugavegi 77. Eins og maður þekk-
ir úr sínu persónulega lífi þá er
hægt að gera ýmislegt þegar maður
er að flytja sem maður er ekki van-
ur að gera annars, því það er allt á
öðrum endanum hvort eð er,“ segir
Stefán og kímir við. „Við nýttum
því tækifærið og hönnuðum ýmsa
hluti allt öðruvísi en við vorum vön
að gera á Laugaveginum.“
Breytingar til batnaðar
Stefán bætir því við að oft sé starfs-
fólk að einhverju leyti takmarkað af
húsnæði sem það vinnur í frá degi
til dags og sé meiningin að koma
breytingum til leiðar þurfi oft að
rífa niður veggi innan starfseining-
arinnar – í eiginlegri sem og óeig-
inlegri merkingu. Þegar um nýtt
húsnæði sé að ræða séu möguleik-
arnir hins vegar nánast óþrjótandi.
„Við flutninga er hægt að gera
hluti frá grunni og þetta var alveg
ómótað húsnæði sem við fluttum í.
Þar af leiðandi nýttum við tækifær-
ið til breytinga – til hins betra.“
Stefán útskýrir að á Laugaveg-
inum hafi nærfellt hver einasti
starfsmaður haft prentara við sitt
borð og ruslafötu að auki. Þetta
hafi bæði orsakað óþarfa papp-
írsnotkun og auk þess hafi verið
ógerningur að flokka sorp starfs-
manna.
„Í staðinn settum við upp flokk-
unarstöðvar í kaffistofum og við
prentstöðvar. Það voru viðbrigði
fyrir fólk, að geta ekki lengur hent
drykkjardós, bananahýði og ónýt-
um skrifstofupappír í sömu tunn-
una án þess að þurfa að hreyfa sig
úr stað. Í staðinn þurfti allt í einu
að standa á fætur og setja sorpið á
sína staði, hvert í sína tunnu. Sama
með prentarana, fólk þurfti að venj-
ast því að vera ekki lengur með eig-
in prentara hjá sér. Í dag erum við
með fimm prentara samtals í fyr-
irtækinu öllu, fyrir um 200 starfs-
menn. Og það var sjón að sjá fjallið
af prenturum sem við komum í verð
í kjölfar flutninganna!“
Reiðhjólum gert hátt undir höfði
Og Valitor lét ekki staðar numið
þar. Stefán bendir á að í húsnæði
Valitors á Laugaveginum hafi að-
staðan fyrir hjólreiðafólk ekki verið
upp á marga fiska en á því hafi orð-
ið breyting við flutningana.
„Við innréttuðum á sínum tíma
lítið horn með einni sturtu og snög-
um á Laugaveginum, en hér pöss-
uðum við okkur á því að vera með
almennilega búningsklefa með
mörgum sturtum, skápum og til-
heyrandi. Þetta er svo hugsað fyrir
fleiri en þá sem hjóla, bæði þá sem
vilja fara út að hlaupa í hádeginu,
þá sem skjótast í ræktina og koma
beint aftur í vinnuna og svo má
lengi telja. Aðstaðan er orðin mjög
fín og um leið mjög vel nýtt af
starfsfólkinu.“
Að sögn Stefáns var við sama
tækifæri tekin ákvörðun um að
bæta aðstöðu hjólreiðafólks til að
geyma hjólin. „Hér eru aftur á
móti svæði í bílakjallaranum til að
geyma hjólin á öruggum stað. Þá
keyptum við fjögur reiðhjól, ræki-
lega merkt Valitor, sem fólk getur
notað til að skreppa á fundi eða
fyrirtækjaheimsóknir í nágrenninu
– eða bara fá sér hjólahring og
ferskt loft í hádeginu um leið og
það fær sér að borða. Þetta eru
götuhjól sem henta vel og þau eru
vel nýtt af starfsfólki í styttri hjó-
latúra.“
Rafmagnið ryður sér til rúms
Fyrirtæki á borð við Valitor hafa
oftar en ekki nokkra bíla til um-
ráða fyrir starfsfólkið þegar skjót-
ast þarf í erindum fyrirtækisins og
reiðhjólið hentar ekki. Svo er líka
hjá Stefáni Ara og samstarfsfólki
hans, en gömlu bílunum hefur nú
verið skipt út fyrir rafmagnsbíla.
„Fyrirtækið á í dag þrjá raf-
magnsbíla og fyrirtækið setti upp
þrjár hleðslustöðvar í bílakjall-
aranum og þar bíða því bílarnir
fullhlaðnir þegar á þarf að halda.
Þarna leggjum við okkar af mörk-
um með því að minnka útblást-
urinn um leið og við spörum okkur
bensínkostnað sem annars félli til.
Auk þess er langoftast um það
stuttar ferðir innanbæjar að ræða
að drægi rafmagnsbílanna er miklu
meira en nóg. Það er snilldin í
þessu. Það er helst að þeir komist
síður á fundi út á land því það
vantar fleiri hleðslustöðvar við
þjóðveginn. Drægið er samt um
170 kílómetrar og það er miklu
meira en nóg fyrir innanbæj-
arferðir.“ Stefán bætir því við að
til að koma til móts við starfsmenn
á rafmögnuðum einkabíl hafi verið
sett upp aukahleðslustöð fyrir bíla
í eigu starfsfólksins.
Að hafa starfsfólkið með í liðinu
Eins og gefur að skilja geta viða-
miklar breytingar á starfsháttum
framkallað ákveðið viðnám hjá
starfsfólkinu en Stefán segir þetta
ekki hafa verið vandamál hjá Val-
itor. Lykilatriði hafi verið að hafa
starfsfólkið með í ráðum meðan á
umbreytingum stóð.
„Við mynduðum vinnuhóp, sam-
ansettan úr starfsfólki, og fengum
þaðan ýmsar hugmyndir og ábend-
ingar um hvernig við vildum hafa
hlutina á nýja staðnum. Um leið
var farið í kynningarherferð innan
fyrirtækisins svo allir voru vel
upplýstir um gang mála frá byrj-
un. Þessu var vel tekið og okkur
bárust margar ómetanlegar
ábendingar gegnum hópinn meðan
á ferlinu stóð. Fyrir bragðið voru
allir tilbúnir að taka næsta skref
þegar að því kom og ekki má
gleyma því að við fengum frábær-
an stuðning frá yfirstjórn fyr-
irtækisins meðan á verkefninu
stóð.
Þegar talið berst að endingu að
mælanlegum árangri innanhúss, er
Stefán snöggur til svars.
„Við erum í hópi hinna rúmlega
eitt hundrað fyrirtækja sem skrif-
uðu undir Parísarsamkomulagið
um loftslagsmarkmið. Í því felst að
setja sér mælanleg markmið og
eitt af því er að halda utan um
flugsamgöngur, minnka orku-
kostnað og uppsetning á grænu
bókhaldi er eitthvað sem við erum
að vinna við þessa dagana. Þar
höldum við okkar árangri til haga
og setjum okkur ný markmið í
framhaldinu. Við erum hvergi
nærri hætt,“ segir Stefán Ari Stef-
ánsson hjá Valitor að lokum.
Vænt og grænt hjá Valitor
Það færist í vöxt að
fyrirtæki hugi í auknum
mæli að umhverfis-
málum innanhúss.
Valitor hefur ekki setið
með hendur í skauti
hvað þennan málaflokk
varðar, eins og mann-
auðsstjórinn Stefán Ari
Stefánsson segir frá.
Stuðbílar „Fyrirtækið á í dag þrjá rafmagnsbíla og fyrirtækið setti upp þrjár
hleðslustöðvar í bílakjallaranum og þar bíða því bílarnir fullhlaðnir.
Betrumbót „Við flutninga er hægt að gera hluti frá grunni og þar af leiðandi nýtt-
um við tækifærið til breytinga – til hins betra,“ segir Stefán Ari.
Morgunblaðið/Ófeigur
Hressandi Valitor keypti fjögur reiðhjól sem fólk getur notað til að skreppa á fundi eða fyrirtækjaheimsóknir í nágrenninu – eða bara fá sér hjólahring og ferskt loft í
hádeginu um leið og það fær sér að borða. „Þetta eru götuhjól sem henta vel og þau eru vel nýtt af starfsfólki í styttri hjólatúra.“
Sorpflokkun Settar voru upp flokkunarstöðvar í kaffistofum og við prentstöðvar.
Það voru viðbrigði fyrir fólk, að geta ekki lengur hent drykkjardós, bananahýði og
ónýtum skrifstofupappír í sömu tunnuna, að sögn Stefáns.