Morgunblaðið - 30.09.2016, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.09.2016, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2016 Ý msir spyrja sig – af hverju ætti ég að vera í stétt- arfélagi? Stutta svarið – vegna þess að réttindi okkar falla ekki af himn- um ofan,“ segir Árni Leósson, for- stöðumaður þróunarsviðs VR. „Flestir sem nú eru á vinnumarkaði þekkja ekki annað en margvísleg réttindi sem talin eru sjálfsögð, en svo hefur ekki alltaf verið. Ömmur okkar og afar, langömmur og lang- afar háðu mörg hver harða baráttu á vettvangi stéttarfélaga fyrir rétt- indum sem nú þykja sjálfgefin. Til dæmis orlof og veikindaréttur. Hvað segði fólk ef það þyrfti að taka sér launalaust sumarfrí, nú eða væri án launa í miklum veikindum? Þegar minnst er á stéttarfélag á borð við VR hugsa margir oft fyrst um ýmsa þjónustuþætti, svo sem aðganginn að orlofshúsum, greiðslur úr VR varasjóði til að nið- urgreiða líkamsrækt eða endurhæf- ingu, eða það sem er mjög vinsælt, gjafabréf með afslætti í flugferðir hjá stóru flugfélögunum. Eitt það mikilvægasta sem VR gerir, ásamt kjarasamningum, er þó rekstur Sjúkrasjóðs VR, en sá sjóður veitir veikum félagsmönnum gríðarlega mikilvægt skjól þegar veikindarétti þeirra lýkur hjá vinnuveitanda.“ Árleg launakönnun Hver er helsti ávinningurinn af því að vera í VR stéttarfélagi? „Fyrir einstaklinginn er ávinn- ingurinn fyrst og fremst sá að þarna er öflugur vettvangur þar sem barist er fyrir réttindum hans og kjörum, þeim viðhaldið og þau aukin. VR gerir svo á hverju ári launakönnun og könnun á fyrirtæki ársins til viðmiðunar fyrir fé- lagsmenn, sem margir nýta sér til dæmis í launaviðtölum hjá sínum vinnuveitanda. Ég nefndi áðan Sjúkrasjóð VR en vil einnig benda á VIRK starfsend- urhæfingarráðgjöf, og svo býður fé- lagið auðvitað upp á ýmsa kjara- málaráðgjöf varðandi kaup og kjör, uppsagnarfrest, orlof, hvíldartíma og fleira. Þannig aðstoða kjara- málaráðgjafar okkar við útreikning launa, túlkun kjarasamninga og lausn ágreiningsmála á vinnustað.“ Ágreiningsmál á vinnustað, eru þau af ýmsum toga? „Aðkoma VR að slíkum málum getur verið af mörgu tagi. Margir eru óvissir um hvernig rétt skuli staðið að til dæmis vaktafyr- irkomulagi, kaffitímum, hvíld á milli vakta, hvenær eigi að borga eft- irvinnu og hvenær yfirvinnu, það geta verið endalaus vafamál sem þurfa úrlausnar. Við veitum ókeypis lögfræðiaðstoð vegna kjaramála og innheimtu launakrafna, meðal ann- ars vegna gjaldþrota fyrirtækja. Þá eru kjaramálaráðgjafar okkar í stöðugu sambandi við vinnuveit- endur til þess að aðstoða okkar fé- lagsfólk við lausn ágreinings um stærstu sem smæstu mál. Fyr- irferðamestur er ágreiningur um launamál og oft endar hann með dómsmálum.“ Styrkir til náms Hvers konar styrki veitir VR til náms eða námskeiða? „VR er aðili að tveimur starfs- menntasjóðum sem standa fé- lagsmönnum til boða, ef þeir vilja auka hæfni sína og menntun. Þar geta þeir sótt um styrki vegna starfsnáms, tómstundanáms og ferðakostnaðar samkvæmt reglum sjóðanna. Veittur er styrkur fyrir 75% af starfstengdu námi að há- marki 90 þúsund krónur á ári. Ef ekkert hefur verið sótt um í starfsmenntasjóðnum í þrjú ár í röð er hægt að sækja um styrk fyrir 75% af námskeiðsgjaldi að hámarki 270 þúsund krónur fyrir einu sam- felldu námi. Þess má geta að fé- lagsmenn geta einnig notað inneign í VR varasjóði til þess að nið- urgreiða námskostnað.“ VR varasjóður, útskýra? „VR varasjóður er ný nálgun hvað varðar styrkjagreiðslur hjá stéttarfélögum sem tók gildi hjá VR árið 2006. Í stað þess að hluti ið- gjalda félagsmanna sé end- urgreiddur í formi ákveðinna fastra styrkja, eins og til dæmis vegna gleraugnakaupa eða líkamsræktar og þá bara til þeirra sem þurfa slíkt og sækja um, ákvað VR að end- urgreiða frekar öllum sínum fé- lagsmönnum ákveðið hlutfall ið- gjalda sem sérgreinda eign í VR varasjóði, sem hver og einn getur svo safnað upp og notað þegar hon- um hentar. Útgreiðslureglur eru mjög sveigjanlegar og er hægt að nota inneign til að greiða heilsu- tengdan kostnað, kostnað vegna or- lofs og líka náms.“ Orlof í Danmörku Þjónusta við atvinnuleitendur; eru margir félagsmenn sem færa sér hana í nyt? „Þjónusta við atvinnuleitendur var mjög mikilvægur þáttur í starf- semi VR á árunum eftir hrun, þeg- ar atvinnuleysi var gríðarlega mikið meðal okkar félagsmanna. Í kjara- samningunum árið 2011 var sett af stað þriggja ára tilraunaverkefni um vinnumiðlun og ráðgjöf undir merkjunum STARF, meðal annars hér á skrifstofu VR, sem sneri að vinnumiðlun og virkum vinnu- markaðsaðgerðum til að efla atvinnuleit- endur. Því verkefni lauk í fyrra, en VR hefur ávallt lagt áherslu á að veita félagsmönnum sínum aðstoð og þjónustu hvort sem þeir eru veikir, í vinnu eða atvinnulausir. Því var ákveðið að halda áfram aðstoð við félagsmenn sem eru í atvinnuleit, en þó með breyttum áherslum. Nú eru tveir atvinnuráðgjafar starfandi hjá félaginu og er lögð áhersla á að veita hvatningu, stuðning og ráðgjöf við atvinnuleitina, svo sem við gerð ferilskrár og undirbúning fyrir við- töl.“ Orlofshús VR; komast færri að en vilja? „Síðastliðið sumar bauð VR fé- lagsmönnum til leigu 73 orlofshús og íbúðir um land allt, auk tveggja orlofshúsa í Danmörku. Það segir sig þó sjálft að í félagi sem telur um 32 þúsund félagsmenn nægir slíkt framboð ekki til að anna nema broti af eftirspurn yfir há- sumarið. Flestir vilja leigja hús á sumrin, en við höfum einnig verið að leigja út hluta okkar húsa á veturna og þá eru helgarnar mikið pantaðar. Nýting orlofshúsa með heitum pottum hef- ur verið mjög góð yfir vetrarmán- uðina, auk íbúða VR á Akureyri. Húsin og íbúðir sem við bjóðum eru vítt og breytt um landið en okkar stærsta sumarhúsabyggð er í Mið- húsaskógi, nálægt Laugarvatni, þar erum við með 25 orlofshús og auk þess stórt og fallegt tjaldsvæði. Þá eigum við sex íbúðir á Akureyri og tvær í Reykjavík.“ beggo@mbl.is Réttindin falla ekki af himnum ofan Árni Leósson, forstöðumaður þróunarsviðs VR, segir fjölmarga kosti fylgja aðild að VR stétt- arfélagi; félagsmönnum standi til boða ráðgjöf á sviði kjaramála, eigi rétt á sjúkradagpeningum og styrkjum til frekara náms, njóti aðstoðar við at- vinnuleit og hafi aðgang að orlofshúsum, bæði inn- an lands og utan. Morgunblaðið/Golli Ávinningurinn Árni Leósson: „Eitt það mikilvægasta sem VR gerir, ásamt kjarasamningum, er rekstur Sjúkrasjóðs VR, sem veitir veikum félagsmönnum gríðarlega mikilvægt skjól þegar veikindarétti lýkur hjá vinnuveitanda.“ Nýting orlofshúsa með heitum pottum hefur verið mjög góð yfir vetrarmánuðina. Morgunblaðið/Kristinn Námsstyrkir „VR er aðili að tveimur starfsmenntasjóðum sem standa félagsmönnum til boða, ef þeir vilja auka hæfni sína og menntun. ,“ segir Árni um hluta af styrkjaflórunni hjá stéttarfélaginu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.