Morgunblaðið - 30.09.2016, Page 20

Morgunblaðið - 30.09.2016, Page 20
Á vinnustöðum skiptir höf- uðmáli að umhverfið sé hreint og snyrtilegt, enda er það talið auka ánægju og vellíðan starfsfólks, og því fylgja ótalmargir kostir að skipta við fagaðila á borð við okkur þegar kemur að ræstingum í fyrir- tækjum,“ segir Arnar Þor- steinsson, stofnandi og fram- kvæmdastjóri hreingerningafyrirtækisins AÞ- Þrifa. „Við sem hér störfum búum yfir mikilli þekkingu og reynslu á þessu sviði og leysum öll verkefni, bæði stór og smá. Viðskiptavinir okkar vita að þeir eru í öruggum höndum hjá okkur, margir hafa haldið við okkur tryggð um árabil og sífellt bætast nýir í hópinn.“ Helsta sérsvið AÞ-Þrifa eru iðn- aðarþrif fyrir byggingaverktaka, ásamt gluggaþvotti, að sögn Arn- ars. „Jafnframt sinnum við í aukn- um mæli almennum þrifum og önn- umst daglegar ræstingar í stórum og smáum fyrirtækjum. Dag hvern þrífum við tugþúsundir fermetra hjá viðskiptavinum okkar, allt frá litlum skrifstofum upp í stórversl- anir. Við leggjum mikið upp úr vel þjálfuðu starfsfólki, faglegum og vönduðum vinnubrögðum, öflugu gæðaeftirliti og persónulegri þjón- ustu.“ Svanurinn 2010 Hreingerningafyrirtækið AÞ-Þrif er 10 ára gamalt, með aðsetur í Garðabæ, og þar starfa nú um 140 manns. „Við hlutum Svansvottun, umhverfismerki Norðurlandanna, árið 2010 og erum mjög stolt af því,“ segir Arnar. „Deildir fyrirtækisins eru fjórar; iðnaðarþrif, ræstingar, gólfþrif og gluggaþvottur. AÞ-Þrif hefur starf- að við iðnaðarþrif frá upphafi og hefur því mikla og góða reynslu af slíkum verkefnum. Iðnaðarþrif eru einna helst unnin fyrir bygg- ingaverktaka að loknum fram- kvæmdum, áður en húsnæði er af- hent nýjum eigendum eða leigjendum. Í slíkum krefjandi verkefnum, þar sem snör og vönd- uð vinnubrögð skipta öllu máli, er lykilatriði að verkefnastýring sé góð og fagleg og við ábyrgjumst að starfsmenn okkar fylgi þeim kröf- um sem gerðar eru til þeirra.“ Spurður út í ræstingar fyrir fyr- irtæki segir Arnar misjafnt hvaða leið viðskiptavinir velji, sumir láti þrífa sjö daga vikunnar, aðrir viku- lega. „Ræstingar eru alltaf skipu- lagðar eftir þörfum viðskiptavina og því hvað hentar hverjum og ein- um best. Gólfdeildin okkar sér um öll sér- hæfð gólfþrif, svo sem moppun, bón og bónleysingu, teppa- hreinsun, steinteppaþrif, hreinsun á parketi og fleira.“ Þrautreyndir sigmenn Arnar bætir við: „Gluggaþvottur er veigamikill þáttur starfseminnar og hefur verið frá byrjun. Eins og alltaf stjórnar viðskiptavinurinn ferðinni; í sumum fyrirtækjum þríf- um við gluggana daglega, hjá öðr- um vikulega og svo eru þeir sem óska eft- ir allsherjarglugga- þvotti einu sinni á ári. Við bjóðum upp á gluggaþvott jafnt utan húss sem innan, í stórum sem litlum fyr- irtækjum, fjölbýlishúsum og heima- húsum. Við þrif á gluggum er ým- ist notast við stiga, palla, vinnulyftur eða körfubíl, allt eftir aðstæðum hverju sinni. Í sumum tilvikum getur verið erfitt að komast að gluggum með hefðbundnum búnaði og þá grípa starfsmenn til þess ráðs að hanga utan á byggingum í línum og at- hafna sig þannig. Hjá okkur starfa mjög reyndir sigmenn sem leysa öll slík erfið og krefjandi verkefni, og gæta auðvitað alltaf fyllstu var- úðar.“ Arnar bendir á að AÞ-Þrif taki jafnframt að sér ýmiss konar sér- verkefni, svo sem þrif á veggjum, ristum og loftstokkum, þrif fyrir og eftir veislur og í kringum flutninga. „Ekki má gleyma að nefna myglusvepp sem er orðinn stórt vandamál hjá fyrirtækjum og stofnunum. Myglusveppur í húsum getur haft mjög slæm áhrif á heilsu og líðan fólks og því er mik- ilvægt að bregðast hratt við þegar hans verður vart. Við bjóðum upp á þrif á húsnæði þar sem fundist hefur myglu- sveppur, bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga, í samstarfi við Eflu; verkefnin eru misumfangsmikil en stundum getur jafnvel þurft að rífa innréttingar og veggi og hreinsa allt út á afmörkuðu svæði, þannig að þrifin geta breyst í stóraðgerð.“ beggo@mbl.is Hreinlætið í fyrirrúmi Morgunblaðið/Golli Myglusveppur Arnar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri AÞ-Þrifa: „Við bjóðum upp á þrif á húsnæði þar sem fundist hefur myglusveppur, bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga, í samstarfi við Eflu.“ Hreingerningafyrirtækið AÞ-Þrif sinnir fjölbreyttum verkefnum, bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga, en sérhæfir sig einkum í þrifum á iðnaðarhúsnæði fyrir byggingaverktaka, ásamt gluggaþvotti, innan húss og utan, sem oft fer fram við býsna krefjandi aðstæður. Við leggjum mikið upp úr öflugu gæðaeftirliti. 20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2016 8 Vöruflokkar · 200 PLU númer · Sjálfvirk dagsetning og tími · Hitaprentun · Rafrænn innri strimill · Mjög auðveld í notkun Verð kr. 49.900 ORMSSON.IS LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK · SÍMI 530 2800 99 vöruflokkar · Allt að 2000 PLU númer · Rafrænn innri strimill 9000 línur · Stór LCD skjár · SD kortarauf – hægt að flytja gögn yfir á PC · Sjálfvirk dagsetning og tími · Hitaprentun · íslenskur strimill· Mjög auðveld í notkun Verð kr. 74.900 99 vöruflokkar · Allt að 10,000 PLU númer · SD kortarauf – hægt að flytja gögn yfir á PC · Sjálfvirk dagsetning og tími · Hitaprentun · íslenskur strimill · Mjög auðveld í forritun Verð kr. 89.900 XE-A307XE-A207BXE-A147B ÖRUGGAR OG ENDINGARGÓÐAR 40 ÁR Á ÍSLANDI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.