Morgunblaðið - 14.11.2016, Side 1

Morgunblaðið - 14.11.2016, Side 1
M Á N U D A G U R 1 4. N Ó V E M B E R 2 0 1 6 Stofnað 1913  267. tölublað  104. árgangur  TÓNLEIKA- FERÐALÖGIN ÁVANABINDANDI TÓNVERKIN ERU DÝRMÆTUR FJÁRSJÓÐUR EINHVERS KONAR SJÁLFSMYND AF DANSINUM HAMRAHLÍÐARKÓRINN 29 KATRÍN SÝNIR DANSVERK 26VALDÍS ÞORKELSDÓTTIR 12 hluti af ÞÚ ÞARFT í hádeginu 62 starfsmenn eru við nýtt atvinnufyrirtæki í Helguvík í Reykjanesbæ, kísilmálmverksmiðju United Silicon sem gangsett var í gær. Er þetta fyrsta kísilmálm- verksmiðjan sem tekur til starfa hér á landi. Einnig er verið að byggja slíka verksmiðju á Bakka við Húsavík og undirbúa aðra í Helguvík. Fjórða verksmiðjan, sem áformað er að reisa á Grundartanga, framleiðir enn hreinni kísil. Mun fleiri starfsmenn hafa verið við byggingu verk- smiðjunnar í Helguvík, eða 300 þegar mest var. Ofninn sem gangsettur var í gær er sá fyrsti af fjórum. Helgi Björn, yfirverkfræðingur United Silicon, segir að ekki liggi fyrir hvenær verksmiðjan verður stækkuð. Fyrst verði að koma fyrsta ofninum í jafnan og góðan rekst- ur og síðan að sjá hvernig kísilmarkaðurinn þróast. »2 62 störf við kísil í Helguvík Áfangi Helgi Þórhallsson forstjóri, Ragnheiður Elín Árnadóttir ráðherra, Helgi Björn og Mark Giese.  Fyrsta kísilmálmverksmiðja landsins gangsett  Stjórn Kviku banka telur að hag-fellt kunni að vera að sameina bank- ann fjármálafyrirtækinu Virðingu. Stjórnin mælir hins vegar ekki með því að hluthafar Kviku taki endur- skoðuðu kauptilboði Virðingar sem þeim barst í síðustu viku. Þar er gert ráð fyrir að við samruna verði skiptaverðmæti hlutafjár Kviku 69% á móti 31% fyrir hlutafé í Virðingu. Stjórnin telur skiptahlutfallið ekki hagstætt hluthöfum Kviku, auk þess sem fyrirvarar og skilyrði séu óað- gengileg. Markvissari leið að sam- einingu væri að Kvika gerði hlut- höfum Virðingar tilboð um kaup á bréfum þeirra í félaginu gegn greiðslu í reiðufé. »14 Telur sameiningu geta verið hagfellda Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Samkomulag tókst seint í gærkvöldi á milli útvegsmanna og hluta sjó- mannasamtakanna, samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins. Þegar blaðið hafði síðast fréttir úr Karphúsinu var verið að undirbúa undirritun samn- inga við Sjómannasamband Íslands og Verkalýðsfélag Vestfirðinga og viðræður stóðu enn við Sjómanna- félag Íslands. Hins vegar gengu fulltrúar Sjómanna- og verkalýðs- félags Grindavíkur af fundi. Verkfalli á hluta fiskiskipaflotans er því vænt- anlega frestað. „Okkur finnst ekki vera nógu mikið Fiskiskipin voru að tínast inn um helgina, nema þau sem lengsta sigl- ingu áttu til heimahafnar. Vinnu- stöðvunin nær til um tvö þúsund und- irmanna á fiskiskipum en hefur áhrif á allar áhafnirnar og í framhaldinu á þúsundir verkafólks, ef það stendur áfram. Vélstjórar sáttir Samninganefnd vélstjóra í VM kom saman í gærkvöldi til að fara yfir drög að samningi sem forystumenn félagsins gerðu við Samtök fyrir- tækja í sjávarútvegi (SFS) seint á fimmtudagskvöld. Guðmundur Ragn- arsson formaður segir að nefndin sé sátt við efni samningsins en þó þurfi að gera einhverjar breytingar á texta. Reiknar hann með að það verði gert á fundi með útvegsmönnum í dag, áður en verkfallsfrestun félagsins rennur út, og þá verði verkfalli frestað til lengri tíma og samningur sendur í at- kvæðagreiðslu meðal félagsmanna. Bræla hefur verið meira og minna síðan verkfallið skall á þannig að lítið hefur reynt á það hvað smærri bátar geta fiskað og hvernig fiskverð þróast í verkfalli. Örn Pálsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands smá- bátaeigenda (LS), á von á því að smá- bátaeigendur reyni að róa eins og þeir geta eftir að brælunni lýkur enda eigi menn von á því að verð á fiski hækki verulega í verkfalli. í þeim samningi sem lagður var á borðið. Við ákváðum að taka samn- ingsumboðið heim í hérað og semja sjálfir fyrir okkar félagsmenn,“ sagði Einar Hannes Harðarson, formaður félagsins, seint í gærkvöldi og ræddi þá um lokatilboð útvegsmanna. Forystumenn deiluaðila ræddu óformlega saman um helgina um mögulega lausn á þeim atriðum sem steytti á þegar sjómannasamtökin slitu viðræðunum á fimmtudagskvöld og fóru í verkfall. Það leiddi til þess að ríkissáttasemjari boðaði samninga- nefndirnar til formlegs sáttafundar síðdegis í gær þar sem búist var við að hægt yrði að ganga frá samkomu- lagi. Samið við hluta sjómanna Morgunblaðið/Árni Sæberg Heim í hérað Fulltrúar Grindvíkinga yfirgáfu Karphúsið seint í gærkvöldi og héldu til síns heima þar sem þeir ætluðu að funda um framhaldið.  Samkomulag náðist við Sjómannasambandið og Vestfirðinga  Fulltrúar Grindvíkinga gengu út  Samningur við vélstjóra væntanlega í atkvæðagreiðslu „Ég áttaði mig fljótlega á því að um jarðskjálfta væri að ræða,“ segir Sigrún Hreinsdóttir jarðeðlisfræð- ingur, sem búsett er í Wellington í Nýja-Sjálandi. „Þetta er nokkuð flókinn jarðskjálfti þar sem hann byrjar þegar einn fleki fer undir annan en breytist í sniðgengis- skjálfta.“ Það veldur m.a. eftirskjálftum bæði til norðurs og suðurs frá upp- tökunum. „Eftirskjálftar eru því hér við Wellington og töluverðar skemmdir eru í borginni af þeim sökum.“ Upphaflegi skjálftinn var 7,8 stig og að minnsta kosti tveir eru látnir. » 15 AFP Skjálfti Tveir látnir í Nýja-Sjálandi. Flókinn jarðskjálfti Ein mikilvægasta forsenda þess að rafbílum fjölgi hér á landi er að gott aðgengi sé að raftenglum við heimili, ekki síst fjöleignarhús, og vinnustaði. Þetta er mat Runólfs Ólafssonar, framkvæmdastjóra Fé- lags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB). „Yfirvöld hafa ekki sinnt því í áratugi að setja þá kröfu í reglu- verkið að það séu útitenglar í ný- byggingum fyrir rafbíla,“ sagði Runólfur. Runólfur segir að skortur á raf- tenglum, einkum við fjöleignarhús, skapi vandamál. Rafbílseigandi í blokk kemst ef til vill ekki í raf- tengil til að hlaða bílinn nema í sameign. Slík mál hafa m.a. komið á borð FÍB, en verið leyst farsællega hingað til. »10 Skortur á raftenglum skapar vandamál

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.