Morgunblaðið - 14.11.2016, Side 15
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Minnst tveir eru látnir og margir eru
slasaðir eftir öflugan jarðskjálfta
sem skók Nýja-Sjáland í gær. Óttast
er að tala látinna kunni að hækka en
fyrir fimm árum fórust 185 manns í
öflugum jarðskjálfta sem átti upptök
sín undir borginni Christchurch.
„Ólíkt jarðskjálftanum fyrir fimm
árum voru upptök þessa skjálfta á
strjálbýlu svæði eða um 90 km frá
borginni Christchurch,“ segir Magn-
ús Tumi Guðmundsson jarðeðlis-
fræðingur.
Upphaflega mældist skjálftinn 7,4
stig og fann fólk fyrir jarðskjálftan-
um í um 200 km radíus frá upptök-
unum. Við endurmat reyndist
skjálftinn vera 7,8 stig en Magnús
segir það ekki óalgengt að einhver
frávik séu frá fyrstu mælingum
nærri upptökum jarðskjálfta.
„Jarðskjálfti sem þessi mælist um
allan heim og búið er að staðfesta að
hann var um 7,8 stig og það segir
okkur að í honum var 30 sinnum
meiri orka en í Suðurlandsskjálftun-
um hér á landi.“
Jarðskjálftar á þessu svæði eru
ekki óalgengir að sögn Magnúsar en
Kyrrahafsflekinn og Ástralski flek-
inn koma saman við Nýja-Sjáland.
Almannavarnaflautur þeyttar
Talin var hætta á flóðbylgjum á
austurströnd landsins í kjölfar jarð-
skjálftans. Íbúar í höfuðborginni,
Wellington, og nágrenni sem ekki
vöknuðu við jarðskjálftann voru því
vaktir með almannavarnarflauti en
óttast var að flóðbylgjur allt að fimm
metrar á hæð gætu fylgt jarðskjálft-
anum.
Fjöldi manna flúði því heimili sín
en samkvæmt frétt breska ríkisút-
varpsins reyndust fyrstu flóðbylgjur
sem skullu á landi ekki vera nema
tæpir tveir metrar á hæð. Dregið var
úr flóðbylgjuviðvöruninni í kjölfarið
en fólk engu að síður beðið um að
hafa varann á.
Eignatjón töluvert
Töluvert tjón hefur orðið á eignum
fólks en lausir munir fóru á fleygi-
ferð í skjálftanum auk þess sem trjá-
gróður og annað sem losnaði hefur
lent á húsum og farartækjum.
Mest tjón er í bænum Kaioura en
hann er næst upptökum jarðskjálft-
ans.
Rafmagns- og símalínur slitnuðu í
skjálftanum og vegir eru víða ófærir.
Björgunar- og sjúkraflutningamenn
frá borginni Christchurch voru í
töluverðan tíma að komast að
Kaioura en óttast er að þar sé tölu-
verður fjöldi fólks slasaður og eigna-
tjón mjög mikið.
Tveir látnir og fjöldi
slasaðist í jarðskjálfta
Öflugur jarðskjálfti reið yfir Nýja-Sjáland Mældist 7,8 stig
WELLINGTON
300 km
NÝJA SJÁLAND
Tasmanhaf
Stærð: 5.0 - 6.2
Christchurch
Heimild: USGS
Kl. 11.02
Stærð: 7,8
Dýpt: 10 km
AFP
Flúðu af skjálftasvæðinu Á svæðum nærri upptökum jarðskjálftans hefur
fólk flúið heimili sín og heldur til á opnum svæðum fjarri mannvirkjum.
AFP
Tjón Töluvert eignatjón varð af völdum jarðskjálftans. Víða brotnuðu rúð-
ur, munir og annað lauslegt fór úr hillum og hús skemmdust.
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2016
Vesturhrauni 3, 210 Garðabæ | Sími 480 0000 | sala@aflvelar.is | aflvelar.is
Vagnar og
kerrur frá
OPIÐ mánudaga til föstudags 8:00-17:00
Hafið samband í síma 480 0000
Síðumúla 20, 108 Reykjavík • Sími 551 8258 • storkurinn.is
Unaðslegt garn
Opið:
Mán.-F
ös.
11-18
Lau. 11
-15
Donald Trump, verðandi forseti
Bandaríkjanna, sagði í viðtali í
fréttaskýringarþættinum 60 Min-
utes á CBS að hann mundi standa
við kosningaloforð sitt um að flytja á
brott milljónir ólöglegra innflytj-
enda.
„Það sem við ætlum að gera er að
ná fólkinu sem fremur glæpi og er á
sakaskrá, meðlimum glæpagengja,
eiturlyfjasölum, þetta er margt fólk,
líklega tvær milljónir, gætu jafnvel
verið þrjár milljónir. Við verðum að
fá þau burt úr landinu okkar eða við
fangelsum þau,“ sagði Trump í við-
talinu.
Einnig lagði Trump áherslu á ör-
yggi við landamæri Bandaríkjanna
og Mexíkó og svaraði því játandi að
hann mundi reisa múr á landamær-
unum.
„Það gæti verið einhver girðing,“
sagði Trump í viðtalinu, þ.e. á
ákveðnum svæðum en múr þar sem
það hentaði betur.
„Ég er mjög góður í þessu. Þetta
kallast byggingarframkvæmdir,“
sagði verðandi forsetinn.
AFP
Viðtal Donald Trump ætlar að reisa
múrinn fræga á landamærunum.
Múrinn
mun rísa
Girðing að hluta
Hillary Clinton, fyrrverandi for-
setaframbjóðandi Demókrata-
flokksins í Bandaríkjunum, sakaði
James Comey, forstjóra bandarísku
alríkislögreglunnar, FBI, um að
hafa haft af henni sigurinn í for-
setakosningunum í síðustu viku.
Þetta var meðal þess sem kom fram
á símafundi hennar með helstu
styrktaraðilum sínum.
Fréttaveitan Reuters greinir frá
þessu en heimildarmennirnir eru
tveir af þeim styrktaraðilum sem
tóku þátt í símafundinum. Flest
benti til þess að Clinton hefði betur
í kosningunum en mótherji hennar
Donald Trump, frambjóðandi
Repúblikanaflokksins. Þar á meðal
flestar skoðanakannanir. Clinton
hefur látið lítið fyrir sér fara eftir
að hafa flutt ræðu á miðvikudaginn
þar sem hún viðurkenndi ósigur
sinn.
BANDARÍKIN
Kennir forstjóra
FBI um ósigurinn
Nokkuð sterkur
jarðskjálfti skók
norðvesturhluta
Argentínu í gær-
dag eða klukkan
tvö að íslenskum
tíma.
Upptök skjálft-
ans voru um sex-
tán kílómetra frá
borginni Chile-
cito í héraðinu
La Rioja og mældist hann 6,2 stig,
að sögn argentínskra fjölmiðla.
Ekki er vitað til þess að mannfall
hafi orðið af völdum jarðskjálftans.
Þá hafa engar fregnir borist af
skemmdum. Fyrr í mánuðinum var
skjálfti upp á 6,4 stig í nágranna-
ríkinu Chile.
ARGENTÍNA
Jarðskjálfti
upp á 6,2 stig
Jarðskjálfti varð í
Argentínu.
Sigrún
Hreinsdóttir
jarðeðlis-
fræðingur
sem býr í
Wellington á
Nýja-
Sjálandi
segir lestir
hættar að
ganga í
höfuðborginni og ferjur vegna
skemmda á mannvirkjum.
„Strákurinn minn fór ekki í
skólann í morgun enda gler-
brot um alla borg og skemmd-
ir víða.“ Hún segir töluvert
um eftirskjálfta við borgina
og enn sé fólk ekki farið heim
til sín.
Lestir hættar
að ganga
JARÐSKJÁLFTI
Sigrún Hreinsdóttir