Morgunblaðið - 19.11.2016, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 19.11.2016, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2016 Tenerife Veðursæld allt árið um kring | 7. jan. | 11 nætur Verð frá: 149.900 kr. og 12.500 Vildarpunktar. Á mann m.v. 2 í herbergi með hálfu fæði á La Siesta **** Verð án Vildarpunkta: 159.900 kr. VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Ómar Friðriksson Sigurður Bogi Sævarsson „Öll orka okkar og tími fer í þetta mál. Það er algjört forgangsverkefni hjá okkur að reyna að leysa það,“ sagði Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, fyrir sátta- fundinn með samninganefnd grunn- skólakennara sem hófst kl. 13 í gær hjá Ríkissáttasemjara. Fundað er stíft í kjaradeilunni þessa dagana, bæði við samninga- borðið og í vinnuhópum í sitt hvoru lagi. Inga Rún sagði það öllu máli skipta að menn töluðu vel saman og færu vel ofan í málin. ,,Allir eru að leggja sig fram um að finna lausnir. Þá er von til að það beri einhvern árangur á end- anum,“ segir hún. Samningsstaðan er mjög þröng. Grunnskólakennarar hafa í tvígang fellt gerða samninga; í júní og september. Mjög mikill óróleiki er meðal kennara vegna launakjaranna og mjög ákveðnar kröfur gerðar um tafarlausa hækkun grunnlauna til jafns við aðra hópa með sambærilega menntun og ábyrgð. Samningurinn sem var felldur í september gerði m.a. ráð fyrir 3,5% launahækkunum frá 1. ágúst, 3% hækkun á næsta ári og 3% á því þar- næsta. Og kveðið var á um ein- greiðslu upp á 35.000 krónur í upp- hafi samningsins og aðra 52 þúsund kr. greiðslu við lok samningstíma. Bundin af launaramma Salek Kennarar eru ekki aðilar að Salek- rammasamkomulagi aðila vinnu- markaðarins, sem setur launahækk- unum ákveðnar skorður til ársloka 2018. Sveitarfélögin eru það hins veg- ar og sögðu talsmenn þeirra í september þegar kennarasamningur var felldur öðru sinni að samninga- nefnd sveitarfélaganna hefði teygt sig eins langt og hægt væri í að koma til móts við kröfur kennara og hann hefði reynt mjög á þolmörk sveitar- félaganna. Erfitt væri að bæta enn frekar í. Spurð hvort þetta hefði eitthvað breyst sagði Inga Rún að þetta væri sá rammi sem sveitarfélögunum væri settur. ,,Við erum bundin af því. Þetta er flókin staða,“ sagði hún. Samið var um verulegar kaup- hækkanir í prósentum talið í samn- ingum grunnskólakennara 2014 en þar var þó ekki nema að hluta til um hreinar kauphækkanir að ræða. Á móti gáfu kennarar ýmislegt eftir og samið var sérstaklega um innleiðingu vinnumats. Í útreikningum á meðaldagvinnu- launum kennara í Reykjavík og á Akureyri sem birtust í fréttabréfi FG í fyrra, þegar ár var liðið af samn- ingstímanum, kom fram að meðal- dagvinnulaunin væru um 366.000 kr. fyrir gildistöku samnings sem gerður var 2014 en hefðu tekið breytingum sem næmu 29% í maí 2015 og voru komin í um 472.000 á mánuði. Þau hefðu svo hækkað um 10 þús. kr. þeg- ar samningarnir runnu út í lok maí sl. Skýrsla heildarsamtaka vinnu- markaðarins um launaþróun laun- þegahópa sem kom út í sumar leiddi í ljós að regluleg laun félagsmanna í Kennarasambandi Íslands sem starfa hjá sveitarfélögunum voru að meðaltali 460 þúsund á mánuði í nóv- ember í fyrra og heildarlaunin 484 þúsund. Laun 55% kennaranna voru undir þessu meðaltali. Ekki hafa orðið aðrar launahækk- anir skv. samningum grunnskóla- kennara síðan þá nema 2% hækkun í janúar á þessu ári. Þessar tölur ættu því að endurspegla launin að nokkru eins og þau eru í dag. Athugun á launadreifingu allra launþegahópa sýndi að regluleg laun voru að meðal- tali nær 20% hærri hjá ríkinu en sveitarfélögum og regluleg heildar- laun um 30% hærri. Skref fyrir skref „Samningaviðræðurnar nú eru verkefni sem fólk tekur skref fyrir skref,“ sagði Ólafur Loftsson, for- maður Félags grunnskólakennara, í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi. Eins og fram hefur komið eru launamál og vinnutími stóru ágrein- ingsefnin í deilunni nú – og ýmsar töl- ur og staðreyndir eru þar í deiglunni. Sagði Ólafur að nú um helgina ætluðu fulltrúar samningsaðila, hvor í sinn- um ranni, að fara yfir þær upplýs- ingar sem fyrir lægju og vinna úr þeim. Afrakstur helgarvinnunnar yrði veganesti inn á næsta samninga- fund hjá Ríkissáttasemjara, sem yrði á mánudagsmorgun. Forgangsverkefni að finna lausn  Formaður samninganefndar sveitarfélaganna segir alla leggja sig fram um að finna lausnir í kennara- deilunni  Stíf fundarhöld í Karphúsinu  Samningsaðilar skoða tölur og upplýsingar um helgina Ólafur Loftsson Morgunblaðið/Eggert Skólastarf Sagt er erfitt að mæta kröfum kennara, og talsmenn sveitar- félaganna segja þau hafa teygt sig jafn langt til móts við þær og hægt sé. Inga Rún Ólafsdóttir Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, hefur boðað full- trúa Viðreisnar, Bjartrar fram- tíðar, Samfylkingarinnar og Pírata á könnunarfund í dag til að ræða hugsanlegan málefnagrundvöll fyr- ir ríkisstjórnarsamstarfi. Hún segir mikilvægt að fá skýra mynd af stöð- unni tiltölulega hratt. „Við ætlum að fara yfir þennan grundvöll með alla saman við borðið og í kjölfarið geta flokkarnir væntanlega farið inn í sitt bakland og tekið afstöðu til þess. Ég vænti þess að flokkarnir vilji svolítið fá tilfinningu fyrir stöðunni áður en þeir taka ákvörð- un hver í sínum herbúðum,“ segir Katrín. Í samtali við Mbl.is í gær sagði Katrín að dagurinn í gær hefði far- ið í að heyra í fulltrúum annarra flokka og vinna úr fundum sem fram fóru í fyrradag með for- ystumönnum allra flokka. Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, segir að Katrín hafi tjáð honum að farið verði yfir nokkur málefni á fundinum sem hún hafi ákveðið. „Þetta eru ekki eiginlegar samningaviðræður held- ur er bara farið yfir málin saman, eins konar stærri útgáfa af þeim fundi sem formennirnir áttu með henni í gær og sjónarmiðin fleiri,“ segir Benedikt. Hann segist eiga von á að rætt verði um stóru málin, t.a.m. sjávar- útvegsmál, heilbrigðismál og um- hverfismál. Aðspurður segir hann að út frá hugmyndum VG og Við- reisnar gætu verið ólík sjónarmið um skattamál. „Mann grunar að þar gætu verið ólíkar áherslur,“ segir Benedikt. Hins vegar sé snertiflötur þegar komi að vinnu við stjórnarskrá og aðgerðir í sjávarútvegi. Allir til fundar við Katrínu Morgunblaðið/Árni Sæberg Fundahöld Fundur allra forsvars- manna flokkanna fer fram í dag.  Benedikt á von á að rætt verði um „stóru málin“ Björgunarsveitir voru kallaðar út rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi til leitar að rjúpnaskyttu sem ekki skil- aði sér til hóps rjúpnaveiðimanna á Héraði síðdegis í gær. Að sögn Þor- steins G. Gunnarssonar, upplýsinga- fulltrúa hjá Landsbjörg, voru björg- unarsveitarmenn enn að leit seint í gærkvöldi. Hann sagði leitarskilyrði góð, skyggni gott og veður fínt. „Leit hófst um leið og björg- unarsveitarmenn komu á svæðið. Rjúpnaskytturnar voru saman í hópi en ákváðu að leiðir skyldu skilja áð- ur en haldið var niður af fjallinu. Svo skilaði einn sér ekki,“ sagði Þor- steinn. Spurður um stærð leitarsvæðis sagði Þorsteinn að hraðleita ætti að manninum frá þeim stað þar sem leiðir skildu. Maðurinn sem leitað var er á fertugsaldri. Hann gekk til rjúpna frá sumarhúsabyggðinni í landi Einarsstaða á Héraði. Leituðu að rjúpnaskyttu Grunnskólarapparar létu ljós sitt skína á Rímnaflæði 2016 sem fór fram í Miðbergi í Breiðholti í gær- kvöldi. Á vef Samfés segir að keppn- in njóti sífellt meiri vinsælda. Í fyrra hafi verið metþátttaka og uppselt á viðburðinn. Sú nýlunda var í ár að viðburðinum var streymt til að sem flestir gætu séð það sem fram fór. Hér má sjá Gylfa Örvarsson, sigur- vegara Rímnaflæðis 2015, láta tung- una trylla lýðinn, en meðal dómara var Sigga Ey, sem sigraði árið 2014. Sara Mjöll Stefánsdóttir úr Fé- lagsmiðstöðinni Laugó vann keppn- ina í gær. Í öðru sæti var Haki Darrason Lorenzen úr Félags- miðstöðinni 105 og í þriðja sæti lentu Helena Sif Gunnarsdóttir og Silvía Rose Gunnarsdóttir úr Fé- lagsmiðstöðin Fókus Í gærkvöldi fór fram keppni í Rímnaflæði Samfés Tungan á fleygiferð Morgunblaðið/Ófeigur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.