Morgunblaðið - 19.11.2016, Page 23

Morgunblaðið - 19.11.2016, Page 23
meðferðar dómara eftir aðal- meðferð í síðasta mánuði. Það er Aurum-málið svokallaða. Í því máli er deilt um lánveitingar Glitnis til félagsins FS38 til kaupa á bréfum í skartgripakeðjunni Aurum. Bréfin voru í eigu móðurfélags FS38, Fons. Auk þess fóru 2 milljarðar til Pálma Haraldssonar, eiganda Fons, og þaðan einn milljarður áfram á persónulegan reikning Jóns Ás- geirs Jóhannessonar fjárfestis sem með því greiddi upp yfirdrátt sinn við bankann. Aurum-viðskiptin og aðdragandi þeirra áttu sér stað yfir stóran hluta ársins 2008, en um mitt ár kom það þó tvisvar til umræðu inn- an Glitnis að notast við annaðhvort Gnúp eða dótturfélagið Stapa til að kaupa Aurum-bréfin af Fons. Á þessum tíma voru bæði Gnúpur og Stapi stórskuldug og Gnúpur nýbú- inn að fara í gegnum þvottavélina eftir að hafa verið ógjaldfært. Var eigið fé félagsins mjög neikvætt. Það vekur því spurningar um hvernig það hafi komið til að starfsmenn Baugs og Glitnis hafi talið það raunhæft að lána slíkum félögum milljarða til að fara í áhættusöm hlutabréfaviðskipti. Bæði Magnús og Þórður Már sögðu í samtali við Morgunblaðið að öll stjórn Stapa og Gnúps á þessum tíma hafi verið á hendi Glitnis. Stím og Aurum tengd saman og ruslakistan Gnúpur Á þessum tímapunkti hafði Glitn- ir komið Stapa yfir í eigu bókasal- ans Tómasar Hermannssonar. Samkvæmt frétt Vísis frá árinu 2010 virðist hann þó hafa gert sér grein fyrir því að í félaginu væru verðlitlar eða verðlausar eignir en skuldir sem voru í árslok 2008 17 milljarðar. Samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2008 er Gnúpur aftur á móti enn þarna skráður á fyrri eig- endur, þótt félagið væri undir stjórn Glitnis. Við aðalmeðferð Aurum-málsins voru svo sýndir póstar meðal ann- ars frá Pálma í Fons til Jóns Ás- geirs og Lárusar Welding, banka- stjóra Glitnis, þar sem Pálmi sagði ósanngjarnt að hann tæki einn á sig „FS38 ævintýrið“ og vísar þar væntanlega til um tveggja milljarða taps sem hann varð fyrir af Stím- viðskiptunum. Í öðrum pósti segir Jón Ásgeir við samstarfsmann sinn að með Aurum-málinu sé mál Pálma leyst án þess að hann tapi, en 2,2 milljarðar áttu að renna til hans. Spurði saksóknari sér- staklega hvort þarna væri tenging milli Stím- og Aurum-málsins, en Jón Ásgeir sagðist ekki þekkja það. Það er þó ekki bara Gnúpur og Glitnir sem tengja saman þessi fyrrgreindu mál, því Gnúpur virðist stundum eiga að enda sem eins konar ruslakista fyrir bréf sem voru í eigu Fons. Þannig fóru Landic bréf Fons inn í félagið og horft var til þess að koma Aurum- bréfunum þangað. Samkvæmt gögnum Aurum-málsins virðist Jón Ásgeir hafa verið talsvert viðriðinn málefni Fons og fékk meðal annars senda tryggingarstöðu félagsins frá Glitni, jafnvel þótt Pálmi hefði sagt fyrir dómi að það hefði ekki verið að sinni beiðni. Jón Ásgeir sem skuggastjórnandi Í Aurum-málinu er Jón Ásgeir ákærður fyrir hlutdeild í umboðs- svikum og þótt þetta sé eina málið sem hann er ákærður í af héraðs- saksóknara kemur hann til tals í öðrum málum eins og Stím-málinu. Meðal annars virðist hann ganga nokkuð hart eftir því að það mál gangi í gegn, en starfsmaður Glitn- is sagði í símtali sem lagt var fyrir dómstóla að Jón Ásgeir væri „á djöflamergnum“. Þá er minnst á afskipti Jóns Ás- geirs af ákvörðunum Glitnis gagn- vart félögum sem hann átti hlut í í rannsóknarskýrslu Alþingis. Þar eru rifjuð upp samskipti milli hans og framkvæmdastjóra Glitnis eftir að Glitnir ákveður að senda Landic Property bréf um aðgerðir bankans vegna slæmrar stöðu Landic. Svar kom fyrir hönd Landic frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni sem hófst á orðunum: „Sæll Magnús. Sem aðaleigandi Stoða sem er stærsti hluthafi í Glitni langar mig að vita hvernig svona bréf á að þjóna hagsmunum bankans.“ Í tölvubréfinu setti Jón Ásgeir fram nokkrar spurningar um málið til Magnúsar. Sú síðasta var eft- irfarandi „Gera stjórnendur sér grein fyrir því að Stoðir aðaleig- andi Landic er jafnframt með leyfi FME að fara með ráðandi eign- arhlut í Glitni hvernig heldur að þetta bréf líti út frá því sjón- armiði?“ Ekki er annað að sjá en að Jón Ásgeir hafi talið sig bæran um að koma fram bæði af hálfu stjórnar FL og Baugs. Í því ljósi verður ekki annað séð en félögin hafi verið tengd í þeirri merkingu sem hér er miðað við. Bréfið ber einnig vitni því umboði sem fulltrúar stærstu hluthafa bankans, sem ekki sátu í bankaráði, töldu sig hafa til að hlutast til um daglegan rekstur bankans. Um þetta er meðal annars deilt í Aurum-málinu, þ.e. hvort Jón Ás- geir hafi verið einskonar skugga- stjórnandi, sem stærsti eigandi FL group í gegnum Baug og þar með stærsti einstaki eigandi Glitnis. Nefndi verjandi Jóns Ásgeirs það meðal annars í málflutningsræðu sinni: „Því er mótmælt. En líka bent á að það er ekki refsivert að vera það sem kallað er skuggastjórnandi á Íslandi.“ Morgunblaðið/Kristinn Höfuðstöðvar Glitnis Fjöldi dómsmála hefur verið höfðaður gegn fyrrver- andi stjórnendum Glitnis banka vegna aðgerða þeirra áður en bankinn féll. FRÉTTIR 23Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2016 KRAFTUR - TRAUST FYRIRTÆKI Í 50 ÁR Í tilefni af 50 ára afmæli Krafts er opið hús að Vagnhöfða 1 frá kl. 12-16 laugardaginn 19. nóvember Allir velkomnir VAGNHÖFÐI 1 • KRAFTUR. ISKRAFTUR – ÖRYGGI – ENDING Til viðbótar við þau mál sem nefnd hafa verið hér var fyrr á þessu ári ákært í svokölluðu markaðsmisnotkunarmáli Glitnis. Þar ákærir hér- aðssaksóknari fyrir meint brot starfsmanna Glitnis við að halda verði bréfa bankans uppi. Er það meðal annars gert með að kaupa mikið magn bréfa á markaði og selja þau svo áfram til félaga utan markaðs þar sem kaupin voru að fullu fjármögnuð af Glitni sjálfum. Um er að ræða lán og kaup sem einkahlutafélög 14 starfsmanna bankans fengu í maí árið 2008. Frá desember 2007 til febrúar 2008 hafði bankinn áður lánað hinum ýmsu eignarhaldsfélögum yfir 20 milljarða til að kaupa bréf í bankanum, en á þessum tíma fóru hluta- bréf hans sílækkandi. Aðalmeðferð í því máli hefur ekki enn farið fram. Talsvert fleiri lánveitingar vegna kaupa á bréfum í Glitni DÓMSMÁL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.