Morgunblaðið - 19.11.2016, Side 39

Morgunblaðið - 19.11.2016, Side 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2016 ✝ SigurbjörgRannveig Guðnadóttir, eða Systa eins og hún var ævinlega köll- uð, fæddist í Vest- mannaeyjum 29. desember 1935. Hún lést á Dval- arheimilinu Hraun- búðum 2. nóvember 2016. Foreldrar henn- ar voru Anna Eiríksdóttir, f. 24. okt. 1902 í Vestmannaeyjum, d. 4. jan. 1988, og Guðni Jónsson, f. 6. júní 1903 í Vestmannaeyjum, d. 12. febrúar 1944. Systkini Systu voru Eiríkur Ágúst, f. 1933, d. 1987, Jón Berg- Guðmundi Herði Þórarinssyni, sem oftast var nefndur Týssi, húsasmið, frá Háeyri í Eyjum, f. 10. des. 1936, d. 1997. Þau voru barnlaus. Systa og Týssi bjuggu alla tíð í Eyjum, lengst af á Brekkugötu 5, húsi sem þau byggðu sér á sjö- unda áratugnum. Þau stunduðu ferðalög, fóru heimsálfa á milli, fljúgandi og siglandi, léku bæði golf og voru í Golfklúbbi Vestmannaeyja en þar var Systa formaður árin 1989-91, eina konan sem hefur gegnt því starfi. Systa tók átt í ýmsum öðrum fé- lagsstörfum, m.a. í Oddfellow- stúkunni Rebekku nr. 3, Vilborgu, þar sem hún var í stjórn og yfir- meistari um tíma. Hún sat í stjórn Slysavarnadeildarinnar Eykynd- ils og var í Skátafélaginu Faxa. Útför hennar fer fram frá Landakirkju í dag, 19. nóvember 2016, og hefst athöfnin klukkan 14. ur, f. 1934, d. 1935, Gylfi, f. 1937, og Hjálmar, f. 1940, d. 2006. Systa ólst upp á Vegamótum, húsi sem stóð við Urðarveg en er nú horfið undir hraun. Gagnfræða- prófi lauk hún í Reykjavík frá Gagn- fræðaskóla Austur- bæjar. Að því loknu fór hún aftur heim til Eyja og fór að vinna í Vinnslu- stöðinni þar sem hún vann næstu 53 árin. Hún byrjaði í bókhaldi, varð svo gjaldkeri og skrif- stofustjóri í mörg ár. Systa giftist 29. des. árið 1956 Systa stóra! Systa systir heitir eftir henni, þannig að það varð okkur systkinunum svo eðlilegt að kalla Systu frænku stóru til að greina á milli þeirra. Hún var ekki bara sú stóra í huga okkar, heldur hafði hún svo stórt hjarta að margir áttu þar stað. Systa stóra og Týssi mættu alltaf í af- mælin og gáfu stóra pakka, það var bara alltaf svo gaman í kring- um þau, glaðværðin, smitandi hláturinn og uppátækin. Þeir voru margir bíltúrarnir sem þau tóku okkur með í og ísilmurinn fyllti gjarnan bílinn. Það er bless- un að eiga svona margar og góð- ar minningar um hana frænku sem alltaf tók manni vel og varla fór maður út úr húsinu öðruvísi en að eitthvert góðgæti fyllti munninn á leiðinni niður tröpp- urnar á Brekkugötunni. Það ylj- aði mér að mæta brosinu hennar þegar við hjónin birtumst á Hraunbúðum, hún hafði gaman af því að vera hugguleg til fara og naut sín vel með starfsmönnum og nábúendum sínum þar. Við kveðjum Systu stóru með sökn- uði og ekki síður þakklæti fyrir ótal minningar og gefandi sam- leið í lífinu. Guðni. Ég var að leita mér að vinnu með skólanum, þá táningur að aldri, þegar mamma stakk upp á að ég talaði við Systu frænku, því hún starfaði sem skrifstofustjóri hjá Vinnslustöðinni í Vestmanna- eyjum. Ég hringdi og kynnti mig og bað um Systu stóru. Tvær systur mínar sprungu úr hlátri og gerðu gys að óformlegheitun- um. Ég fór hjá mér og skellti á og varð af hugsanlega starfinu. Við kölluðum hana þetta alltaf heima og fyrir mér var hún aldrei önnur en Systa „Stóra“ rétt eins og um millinafn væri að ræða, með stóru S-i. Ekki nóg með að hún væri yfir meðalhæð, heldur var hún mjög göfuglynd með stórt bros og stórt hjarta og sér- lega gjafmild. Það var eiginlega skrítið að kalla hana eitthvað annað. Hún bar reyndar mjög fallegt nafn, Sigurbjörg Rann- veig, í höfuðið á móðurömmu sinni, en hún var stóra systir pabba og ein systir mín hét í höf- uðið á henni, svo við systkinin kölluðum hana alltaf Systu stóru. Pabbi og hún voru svolítið lík, glaðleg og fríð. Hláturinn hennar er mér mjög minnisstæður, svo dillandi með örlitlu flissi inni á milli. Þegar við systkinin vorum yngri fylltumst við eftirvæntingu þegar til stóð að fara í heimsókn til Systu og ekki skemmdi fyrir stríðnin í Týssa heitnum. Gest- risnin var einstök og alltaf eitt- hvað skemmtilegt að bralla. Hún var uppáhaldsfrænka, ein af fyr- irmyndunum, skaraði fram úr í því sem hún tók sér fyrir hendur. Það geta ekki margir státað af Ís- landsmeistaratitli í golfi, en það gat hún. Hún ferðaðist víða, ekki síst út af golfinu og færði okkur oft og iðulega nammi þegar heim kom, jafnvel gjafir frá stöðunum sem hún og Týssi heimsóttu. Hún átti sína harma, hún missti föður sinn ung að aldri og hjálpaði til við að hugsa um tvo yngri bræður sína. Sjálf fékk hún berkla sem barn, þar af leiðandi varð henni og Týssa ekki barna auðið. Kannski þess vegna var hún svo natin við okkur og mörg önnur frændsystkini, börn systk- ina sinna og hans. Hún var eiginlega upphafs- maður „bökunarfríanna“ fyrir jólin, líkt og Reykjavíkurborg veitir nú starfsmönnum sínum, en hún bauð okkur systkinunum stundum heim einn laugardag í desember til að föndra, sem gaf mömmu þá svolítið rými til að baka eða kaupa jólagjafir. Þá vantaði ekki nokkurn hlut, hún var búin að kaupa nýjustu jóla- föndurblöðin og allt efni sem til þurfti til að gera kramarhús, fléttaða nammipoka á jólatréð, servíettuhringi og alls kyns skraut. Ekki klikkuðu veiting- arnar heldur og fengum við ávexti, smákökur, nammi og gos eins og við gátum í okkur látið. Góðgætið var nýtt til fullnustu sem kostaði stundum uppköst um nóttina hjá sumum systkinanna. Þegar við vorum vaxin úr grasi sendi hún jólagjafir og sængur- gjafir til barnanna okkar þegar þau fóru að koma í heiminn og var með puttann á púlsinum hvað tísku snerti. Síðustu árin þegar ég var að heimsækja hana á elliheimilið í Eyjum, síðast í sumar, var hún sama yndislega Systa stóra, með sinn dillandi hlátur. Nú er ævi hennar á enda og ég á þá von að hitta hana aftur hjá Guði, föður okkar á himnum. Blessuð sé minning hennar. Ásta Hjálmarsdóttir. Í dag kveðjum við elskulega föðursystur mína, hana Systu, hinstu kveðju. Á æskuheimili mínu, Vega- mótum, var hún ávallt kölluð Systa stóra, til aðgreiningar að eitt af okkur systkinunum ber nafnið hennar. Stóra gat líka átt við, að allt sem hún var okkur krökkunum var stórt. Hvort sem það var hlýjan, góðmennskan eða móttökurnar á Brekkugötunni, sama hvar bar niður. Allt var stórt. Ég vil þakka þér, elsku Systa, fyrir samferðina og fyrir það sem þú varst mér og mínum. Þú varst okkur svo kær. Blessuð sé minn- ing þín. Kveðja, Anna Kristín. Kynni okkar Systu hófust þeg- ar við Hjalli, maðurinn minn og bróðir hennar, fórum að vera saman. Alla tíð var hún einstök vinkona, kærleiksrík og góð. Hún var í miklu uppáhaldi hjá börn- unum okkar, það var alltaf gam- an að koma á Brekkugötuna til hennar og Týssa, þau höfðu alltaf tíma. Ein dóttir okkar Hjalla ber nafnið hennar, sem veitti henni mikla gleði. Blessuð sé minning hennar. Kristjana (Dadda). Í dag kveð ég elskulega föð- ursystur mína Sigurbjörgu R. Guðnadóttur, sem oftast var köll- uð Systa. Ég hef alltaf verið stolt af því að bera nafnið hennar Systu frænku vegna þess hve vænt mér þótti um hana og hve góð hún var mér alla tíð. Á yngri árum okkar systkinanna kölluðum við hana alltaf Systu stóru til að greina okkur nöfnurnar í sundur. Það var sannarlega réttnefni vegna þess hve stórt hjarta hún hafði og var svo einstaklega gjafmild og hlý. Æskuárin mín eru lituð af ótal yndislegum minningum um Systu og Týssa. Þau voru á háum stalli í huga okkar systkinanna og í miklu uppáhaldi enda sýndu þau okkur sanna væntumþykju og tóku okkur ævinlega fagnandi. Það var ósjaldan á sunnudags- morgnum sem við systkinin rölt- um upp á Brekkugötu því við vissum að þar kæmum við ekki að tómum kofanum. Eflaust hafa þau stundum viljað sofa ögn leng- ur en alltaf tóku þau á móti okkur með opinn faðminn og breitt bros. Var okkur þá boðið inn í stofu þar sem Systa dró fram ým- islegt góðgæti og Týssi sagði skemmtilegar sögur, sýndi töfra- brögð eða við litum í mynda- albúm af mörgum ferðalögum þeirra. Í desember á hverju ári bauð Systa okkur í jólaföndur og var það orðinn fastur liður á aðvent- unni og þess ávallt beðið með mikilli eftirvæntingu hjá okkur systkinunum. Var þá á boðstólum alls kyns föndur og kruðerí eins og smákökur og konfekt sem féll vel í kramið hjá okkur krökkun- um. Afraksturinn var svo alls kyns jólapokar, jólasveinar og annað skraut. Gjafmildi þeirra Systu og Týssa sýndi sig vel á af- mælum og jólum og glöddu þau okkur svo margoft með veglegum og fallegum gjöfum. Dúkkuvagn- inn sem ég fékk frá þeim í sex ára afmælisgjöf er gott dæmi um það enda var hann sá flottasti sem ég hafði séð og margar litlar vinkon- ur sem litu hann hýru auga. Í dag segi ég börnunum mín- um sögur af uppáhaldsfrænku minni þegar ég var á þeirra aldri og hafa þau sjálf fengið að njóta gjafmildi hennar. Í þau skipti sem við höfum heimsótt hana á Elló nú í seinni tíð í ferðum okkar til Eyja hefur hún iðulega gaukað að þeim pening eða náð í litlar styttur úr hillunni hjá sér til að gefa þeim. Það eru ótal minningar um hana Systu frænku sem munu ylja okkur um ókomin ár. Þó að heimsóknirnar hafi verið færri í seinni tíð þá á hún alltaf sérstak- an stað í hjarta mér. Elsku Systa, ég kveð þig með þakklæti fyrir einstakan kær- leika þinn og gjafmildi. Farðu í friði og góður Guð þig geymi. Þín frænka og nafna, Sigurbjörg R. Hjálmarsdóttir. Nú er ég kveð Systu í hinsta sinn er mér efst í huga þakklæti og gleði að hafa átt hana að. Ég var lánsamur að hafa fengið að búa hjá Systu og Týssa á mínum unglingsárum í Vestmannaeyjum og minnist ég þess tíma með gleði í hjarta. Á þeim árum stundaði ég fótbolta af kappi og var hvatning þeirra og stuðningur ómetan- legur. Það var alltaf svo bjart yfir þeim Systu og Týssa og mikil gleði á heimilinu og leið mér ávallt vel hjá þeim. Golfið átti hug þeirra allan og má segja að golfá- hugi minn hafi kviknað í kringum þau og áttum við þetta áhugamál alltaf sameiginlegt. Systa var alltaf tilbúin að gera allt fyrir alla og var ég þar engin undan- tekning. Því mun ég aldrei gleyma. Eins erfitt og það er að kveðja hana þá yljar það að vita af henni hjá elsku Týssa. Að leið- arlokum þakka ég elsku Systu fyrir allt sem hún var mér. Sofðu, hvíldu sætt og rótt, sumarblóm og vor þig dreymi! Gefi þér nú góða nótt guð, sem meiri’ er öllu’ í heimi. (G. Guðmundsson) Hvíl í friði, elsku Systa. Samúel (Sammi). Fyrirtæki er og verður aldrei annað en fólkið sem þar vinnur. Starfsfólkið skapar í sameiningu menningu vinnustaðarins og fátt er eftirsóknarverðara í fyrirtæki en lipurð, gott viðmót og dugn- aður. Einmitt þetta einkenndi Systu, Sigurbjörgu R. Guðna- dóttur, starfsmann Vinnslustöðv- arinnar í Vestmannaeyjum í 52 ár. Eftirminnileg nærvera henn- ar leitar mjög á hugann á kveðju- stundu. Hún hóf störf á skrifstofu fyrirtækisins 18 ára gömul og hætti þegar hún varð sjötug. Systa var andlit Vinnslustöðvar- innar í liðlega hálfa öld, tók einkar hlýlega á móti fólki, svar- aði í síma með þýðri rödd og vann að bókhaldi, launamálum og öðr- um skrifstofustörfum. Það voru erfiðir tímar í Vinnslustöðinni fyrst eftir að undirritaður tók við sem fram- kvæmdastjóri. Starfsfólk upplifði óvissu og öryggisleysi um störf sín og skynjaði reyndar vel að ekki væri gefið mál að sjálft fé- lagið lifði af erfiðleikana sem að steðjuðu. Ekkert fékk hins vegar haggað ró Systu, þótt undir niðri hafi óvissa eflaust nagað hana líka. Hún hugsaði vel um alla og í morgunkaffinu á föstudögum tók hún til hliðar væna sneið af hefð- bundinni köku dagsins fyrir þann sem ekki hafði tök á að mæta í kaffið á réttum tíma. Þeirra sneiða fékk ég oft að njóta. Systa var trú sínu fólki og vinnustaðnum sínum ævina á enda. Í sumar var tekið við hana óbirt viðtal í tilefni sjötugsafmæl- is Vinnslustöðvarinnar núna í desember. Þá kvaðst hún eingöngu eiga góðar minningar frá starfsferlin- um og yljaði sér við þær. Aldrei hefði hvarflað að sér að skipta um vinnustað. Það er lán hvers fyrirtækis og samstarfsmanns að njóta starfs- krafta fólks eins og Systu. Hún var sannkölluð kjölfesta sem tók breytingum sem eðlilegum hlut og vann að þeim af heilum hug. En nú er hún öll og fyrir hönd Vinnslustöðvarinnar og sam- starfsmanna þakka ég henni samfylgdina. Hún sagði í sumar að bjart væri yfir Vinnslustöð- inni. Við segjum á móti: Það mun alltaf ríkja mikil birta og hlýja í kringum minningu okkar um Systu. Sigurgeir B. Kristgeirsson. Sigurbjörg Rann- veig Guðnadóttir Útfarar- og lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Snævar Jón Andrésson Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undirbúnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánar- bússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Áskær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HELGA INGUNN TRYGGVADÓTTIR, Meistaravöllum 19, lést á hjúkrunarheimilinu Eiri föstudaginn 11. nóvember. Útför mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. . Kristján Pétursson, Birkir Pétursson, Margrét Sveinsdóttir, Bera Hraunfjörð, Jón G. Guðmundsson, Óttar Pétursson, Zofia Barbara Urbanik, Bára Pétursdóttir, Gaukur Pétursson, Elínborg Bjarnadóttir, Brynja Pétursdóttir, Ragnar Antonsson, ömmubörn, langömmubörn, langalangömmubörn og aðrir aðstandendur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KONRÁÐ GUÐMUNDSSON frá Landlyst, Vestmannaeyjum, Lundi 86, Kópavogi, lést á heimili sínu 14. nóvember. Útförin fer fram kyrrþey að ósk hins látna. . Elín Leósdóttir, Kristbjörg Konráðsdóttir, Lúðvík H. Gröndal, Brynjar Konráðsson og barnabörn. MARÍA BJARKAR ÁRELÍUSDÓTTIR, Lækjarbrún 8, Hveragerði, er látin. Útförin verður auglýst síðar. . Steinar Berg Björnsson Skarphéðinn Berg Steinarsson Sigríður Jóhannesdóttir Ingvar Berg Steinarsson Arna V. Kristjánsdóttir Sverrir Berg Steinarsson Ragnhildur A. Jónsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SONJA VALDEMARSDÓTTIR verslunarkona, Sóleyjarima 7, áður að Lindargötu 30, lést á hjúkrunarheimilinu Eiri, mánudaginn 14. nóvember. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 23. nóvember klukkan 11. . Kristín Erlingsdóttir, Valgerður Kummer, Magnús S. Ármannsson, Ragnar Kummer, Þóra Björk Sigurþórsdóttir, Dagný Erlingsdóttir, Ágúst J. Guðmundsson, Sonja Erlingsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.