Morgunblaðið - 19.11.2016, Side 48
48 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2016
Guðjón Guðjón Helgi Guðjónsson, einkaþjálfari í Sporthúsinu, á40 ára afmæli í dag. „Ég er búinn að vera í þessu í 20 ár. Bootcamp og crossfit er mesta breytingin sem hefur orðið á síðustu
árum og hefur verið mjög vinsælt.
Ég sjálfur er í þessum klassísku lyftingum, vaxtarræktarlyftingum
fyrst og fremst. Svo er ég í útivistinni, á skíðum og hjóla aðeins.
Guðjón hefur keppt bæði í vaxtarrækt og fitness gegnum árin. „Ég
keppi ekki á hverju ári heldur hefur þetta verið á fjögurra, fimm ára
fresti þegar ég hef verið í stuði. Ég hef yfirleitt náð 2. og 3. sæti, hef
verið duglegur við það,“ segir Guðjón spurður um helstu afrek. „Það
kemur alltaf einhver djöfull og hirðir efsta sætið. Ég hef líka keppt í
hluta af vaxtarræktarlyftingum eins og réttstöðulyftu. Svo var ég í ís-
hokkíi, fótbolta og þessum boltagreinum í gamla daga.“
Guðjón er staddur í París og mun eyða þar afmælisdeginum. „Við
frúin skelltum okkur þangað í helgarferð og í dag ætlum við að njóta
lífsins, fara út að borða eitthvað gott og skoða mannlífið.“
Eiginkona Guðjóns er Sara Ósk Wheeley, flugfreyja hjá Icelandair
og kennari í Vatnsendaskóla. Börn þeirra eru Eyþór Wheeley Guð-
jónsson 9 ára og og Sylvía Wheeley Guðjónsdóttir 3 ára.
Afmælisbarnið Guðjón, enn 39 ára, daginn fyrir afmælið.
Nýtur lífsins með
frúnni í París
Guðjón Helgi Guðjónsson er fertugur í dag
R
agnheiður Runólfsdóttir
fæddist á Akranesi 19.
nóvember 1966. Hún
ólst þar upp í Króka-
túninu sem er gata sem
liggur við Krókalónið.
„Útsýnið er magnað yfir sjóinn út á
Snæfellsnes. Jökullinn gaf okkur fag-
urt sólarlag og útsýnið var eins og
málverk. Leiksvæðið hjá okkur
krökkunum var fjaran og klettarnir.
Mikill krakkaskari var í hverfinu og
þess vegna mikið brasað og brallað.
Ég átti áhyggjulaus og hamingjurík
æskuár á Skaganum með vinum og
vandamönnum.
Íþróttir áttu hug minn allan og
stundaði ég þær flestar sem voru í
boði á Akranesi. Síðan á sumrin fór
ég í íþróttaskóla hjá Sigga á Leirá og
ég fékk líka að fara aðeins í sveitina á
Kalastaði í Hvalfjarðarsveit. Sumar-
störfin voru að sjálfsögðu í frysti-
Ragnheiður Runólfsdóttir, sunddrottning og þjálfari – 50 ára
Fjölskyldan Ragnheiður og börnin stödd fyrir sunnan, en nú fer fram Íslandsmeistaramótið í sundi í Ásvallalaug í
Hafnarfirði. Að sjálfsögðu er fjölskyldan mætt á mótið, bæði til að þjálfa og keppa.
Lífið heldur áfram
að snúast um sund
Ljósmynd/Þröstur Ernir
Sundþjálfarinn Ragnheiður fór strax að þjálfa og kenna sund eftir að hún
hætti að keppa og núna er hún yfirþjálfari hjá Óðni á Akureyri.
Hafnarfjörður Heiðar Páll
Gíslason fæddist 31. maí
2016. Hann vó 16 merkur og
var 51,5 cm langur. For-
eldrar hans eru Gísli Páll
Jónsson og Ingibjörg
Haraldsdóttir.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isSmáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is – fyrir dýrin þín
Bragðgott, ho
llt
og næringarrí
kt