Fréttablaðið - 08.02.2017, Qupperneq 2
Lognið á undan storminum
Þessi kona á Selfossi fékk sér hressandi göngu með hundinn í gær. Hætt er við að hundi verði ekki út sigandi fyrr en undir kvöld í dag því Veður-
stofan spáir suðaustan roki eða ofsaveðri og talsverðri rigningu. Gert er ráð fyrir að illviðrið gangi norður yfir landið síðdegis. Fréttablaðið/Eyþór
Veður
Suðaustan rok eða ofsaveður um landið
vestanvert í dag, 23-30 m/s, hvassast
við Breiðafjörð og á Norðurlandi vestra
kringum hádegi. Lægir talsvert síðdegis.
Suðaustan 18-25 um landið austanvert,
en lægir þar í kvöld. sjá síðu 16
HOLLAND Ólögleg leiga á ellefu
íbúðum í Amsterdam í gegnum
Airbnb kostaði bæði eigandann
og leigusalann 297 þúsundir evra
samtals í sekt eða um 36 milljónir
íslenskra króna. Eftir að nágrann-
ar kvörtuðu undan hávaða komust
borgaryfirvöld að því að íbúðirnar
voru leigðar út ólöglega.
Í nýliðnum desember tóku gildi
reglur um að ekki megi leigja út hús-
næði sitt í gegnum Airbnb lengur
en 60 daga á ári. Leigusali verður að
vera eigandi húsnæðisins og ekki
má leigja fleiri en fjórum í einu.
Sekt vegna ólöglegrar leigu á einni
íbúð er 13.500 evrur eða um 1,6
milljónir íslenskra króna. – ibs
36 milljóna sekt
vegna Airbnb
Í amsterdam má leigja í gegnum airbnb
í 60 daga á ári. NOrDiCPHOtOS/GEtty
Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni verður haldinn
fimmtudaginn 16. febrúar 2017 og hefst kl. 15.30 í Ásgarði, Stangarhyl 4,
Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári
3. Ársreikningar félagsins fyrir árið 2016
4. Kosning stjórnar
5. Afgreiðsla tillagna og erinda
6. Ákvörðun um árgjald félagsmanna árið 2017
8. Önnur mál
Fundurinn verður haldinn, sem fyrr segir, fimmtudaginn 16. febrúar og
hefst kl. 15.30. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér
félagsskírteini fyrir árið 2016.
Stjórn FEB - Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni
Aðalfundur FEB
árið 2017
KNAttspyrNA Félög á landsbyggðinni
eru uggandi yfir kostnaðinum sem
fylgir því að fara til Vestmannaeyja
og kjósa um nýjan formann KSÍ. Sér-
staklega ef þarf að kaupa tvö flugsæti,
til Reykjavíkur annars vegar og Vest-
mannaeyja hins vegar.
Flugfélagið Ernir verður með fimm
aukaflug í tengslum við ársþingið og
kostar hvert flugsæti 25 þúsund krón-
ur. Þá hefur KSÍ tekið frá herbergi í
Vestmannaeyjum fyrir þingfulltrúa
en sambandið greiðir ekki fargjaldið
eða gistinguna fyrir fulltrúana. Það
býður þó til kvöldverðar eftir þingið.
Minni félög í landinu hreinlega
geta ekki séð af fé í þennan kostnað
samkvæmt samtölum við nokkra
formenn. Flestir hafa þeir greitt fyrir
ferðina á ársþingið undanfarin ár úr
eigin vasa.
Ársþing KSÍ fer fram á laugardag.
Ekki verður aðeins kosið um nýjan
formann sambandsins heldur verður
einnig kosið í aðalstjórn, kosnir aðal-
fulltrúar landsfjórðunga, varamenn í
aðalstjórn og kosið í nefndir. Alls eiga
153 fulltrúar rétt til setu á ársþingi en
ljóst er að ekki koma allir á þingið, en
146 voru skráðir á þingið í fyrra og
mættu um 120. Í gær voru 83 búnir
að skrá sig. Spennan er mest um for-
mannsembættið. Tveir eru þar í kjöri,
Björn Einarsson og Guðni Bergsson.
Til þess að ná kjöri sem formaður þarf
meirihluta greiddra atkvæða.
Náist ekki meirihluti við fyrstu
kosningu skal kjósa á ný. Í seinni
umferðinni ræður einfaldur meiri-
hluti atkvæða. Verði frambjóðend-
urnir aftur jafnir skal kjósa á ný með
sama hætti. Verði þeir enn jafnir
ræður hlutkesti.
Klara Bjartmarz, framkvæmda-
stjóri KSÍ, segir að 30 ár séu frá síðasta
ársþingi sem fram fór í Vestmanna-
eyjum.
„Ég skil alveg að þetta er kostnaður
sem er hærri en venjulega en það
á ekki að stoppa fólk. Að vera með
svona kosningaþing, það hefði vissu-
lega verið auðveldara að hafa það á
heimavelli. Þá hefðum við haft okkar
tæki og tól en við sendum stóran
pakka með Herjólfi á fimmtudag
ásamt tveimur starfsmönnum til að
undirbúa þingið,“ segir Klara.
Félögin í efstu deild hafa fjögur
atkvæði en minnstu félögin í landinu
hafa eitt atkvæði. Önnur hafa tvö
til þrjú atkvæði. „Við eigum von á
spennandi þingi. Yfirleitt hefur það
verið búið um klukkan 16 en það gæti
teygst til 18 vegna allra kosninganna,“
segir Klara. benediktboas@365.is
Ferðakostnaður gæti
haft áhrif á kosningar
Kosið verður um formann KSÍ á laugardag. Þá verður kosið í aðalstjórn, kosnir
aðalfulltrúar landsfjórðunga, varamenn í aðalstjórn og kosið í nefndir. 153 full-
trúar hafa rétt til þingsetu en ekki koma allir. Kostnaður of mikill fyrir lítil félög.
Guðni bergsson og björn Einarsson eru í kjöri til formanns KSÍ.
Fréttablaðið/aNtON briNK
Hvernig fer?
Samkvæmt visir.is virðist Björn
njóta meiri stuðnings meðal
félaga í Íslenskum toppfótbolta
(ÍTF). Guðni á atkvæði vís frá Val
en ekkert bendir til þess að ÍTF
ætli að koma sér saman um að
styðja annan frekar en hinn. Vísir
heyrði nýlega í formönnum knatt-
spyrnudeilda á landsbyggðinni.
Mátti greina áhyggjur yfir því að
báðir frambjóðendur tengist fé-
lögum í efstu deild og hve miklu
meiri peninga stærri félögin fái
en þau minni og óttast er að sú
misskipting gæti aukist. Bæði for-
mannsefnin eru úr Reykjavík og
með litla tengingu út á land.
DómsmáL Maður hefur verið ákærður
fyrir að hóta Páleyju Bergþórsdóttur,
lögreglustjóra í Vestmannaeyjum,
barsmíðum og öðrum lögreglumanni
á vakt þann 7. september 2015 lífláti.
Einnig hafði hann umrætt kvöld
brotið gegn valdstjórninni með því
að taka lögreglumanninn hálstaki og
ná honum niður í jörðina þannig að
áverkar hlutust af.
Þegar á lögreglustöðina kom á
ákærði að hafa sagst vita hvar lög-
reglumennirnir ættu heima og að
hann ætti vini sem þeir ættu að vita
hvers væru megnugir.
Verði maðurinn fundinn sekur
getur hann átt yfir höfði sér fangelsis-
dóm. Refsiramminn veitir heimild til
að fangelsa menn í sex ár fyrir slík
brot. – sa
Ákærður fyrir
hótanir gegn
lögreglustjóra
DómsmáL Deilan um kaup ríkisins
á Felli í Suðursveit er komin fyrir
Hæstarétt eftir að Héraðsdómur
Suðurlands vísaði málinu frá.
Ríkið virkjaði forkaupsrétt sinn
í jörðinni Felli við Jökulsárlón í
byrjun janúar. Fögrusalir höfðu
keypt jörðina á uppboði í byrjun
nóvember á rúman einn og hálfan
milljarð króna. Telja forsvarsmenn
Fögrusala að ákvörðun ríkisins hafi
komið of seint og því væri gerningur
sýslumannsins á Suðurlandi um að
veita ríkinu heimild til að kaupa
jörðina ólöglegur.
Hæstiréttur mun í mars ákvarða
hvort taka eigi málið til efnislegrar
meðferðar í héraði. – sa
Fell í Hæstarétt
8 . f e b r ú A r 2 0 1 7 m I ð V I K u D A G u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t A b L A ð I ð
0
8
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
1
-8
5
5
4
1
C
3
1
-8
4
1
8
1
C
3
1
-8
2
D
C
1
C
3
1
-8
1
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
7
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K