Fréttablaðið - 08.02.2017, Qupperneq 4
Viðskipti Tæplega sjötíu prósent
viðskiptavina lyfjaverslana hér á
landi fengu ekki ráðgjöf eða leið-
beiningar þegar keypt voru ólyf-
seðilsskyld lyf í fyrra.
Samkvæmt rannsókn sem
hópur innan Samtaka verslunar
og þjónustu lét gera hafði starfs-
fólk apóteka frumkvæði að ráð-
gjöf í 13,4 prósent tilvika.
Í rannsókninni kemur jafn-
framt fram að ríflega 93 prósent
þátttakenda sem ekki fengu ráð-
gjöf þótti það ekki skipta máli.
Hópurinn, sem vill auka frelsi
í viðskiptum með lausasölulyf
þannig að almennar verslanir
geti selt minni pakkningar af
vægum lyfjum sem ekki eru lyf-
seðilskyld, lét gera rannsóknina í
upphafi síðasta árs. Þátttakendur
voru tæplega sex þúsund talsins.
Í Fréttablaðinu á mánu-
dag voru hugmyndir hópsins
viðraðar. Þar sagði Lóa María
Magnúsdóttir, formaður Lyfja-
fræðingafélags Íslands, að lyfja-
fræðingar teldu mikilvægt að
auka ekki frelsið frekar vegna
þess öryggis sem fælist í því að
lyfjafræðingur á vakt í apóteki
bæri ábyrgð á sölunni.
Brynjúlfur Guðmundsson, sem
fer fyrir hópnum um lausasölu-
lyfin, segir að rannsóknin varpi
ljósi á það hversu lítið er um ráð-
gjöf og leiðbeiningar til handa
viðskiptavinum. Viðskiptavinir
sem vilji leiðbeiningar um inn-
töku vægra verkjalyfja, ofnæmis-
lyfja og magalyfja, komi enn til
með að geta leitað til apóteka
eftir aðstoð.
Brynjúlfur segir að uppi séu
hugmyndir um að auka framboð
af smærri pakkningum verkja-
lyfja ef sala á lausasölulyfjum
verður gefin frjáls. Sem dæmi séu
hugmyndir um að selja paraceta-
mol með tíu skömmtum.
„Það er 1,6 sinnum hámarks-
skammtur samkvæmt leiðbein-
ingum frá Lyfjastofnun en það
sem þú getur keypt í apótekum
núna er fimmfaldur og allt upp
í ríflega þrjátíufaldur hámarks-
skammtur. Þannig að það eru
miklu meiri líkur á að misnotk-
unin verði af völdum pakkninga
sem eru seldar í apótekum.“ – snæ
stjórnsýsla Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, segir það hafa
verið vanhugsaða ákvörðun að flytja
Fiskistofu frá höfuðborginni til Akur-
eyrar. Þorgerður gerir þó ekki ráð
fyrir að þeirri ákvörðun verði snúið
við úr því sem komið er.
„Miklu frekar þarf að tryggja að
þessi flutningur styðji við Fiskistofu
og verði ekki til að draga úr starf-
seminni,“ segir hún.
Þorgerður leggur gríðarlega
áherslu á að Fiskistofa geti sinnt
hlutverki sínu. „Við erum með öflugt
fiskveiðistjórnunarkerfi sem þarf
stofnanir sem virka,“ segir hún.
Eyþór Björnsson, forstjóri Fiski-
stofu, fluttist til Akureyrar sumarið
2015, eftir að ákvörðun um flutning
var tekin. Hann hófst strax handa við
að ráða starfsmenn og eru þeir núna
orðnir þrettán á skrifstofunni fyrir
norðan, auk þriggja eftirlitsmanna.
Þá flutti stofnunin inn í nýtt húsnæði
á Akureyri í september og er með
leigusamning til tíu ára. „Þannig að
við erum búin að koma okkur fyrir
til næsta áratugar. Varðandi áfram-
haldið þá ræðst það af starfsmanna-
veltu fyrir sunnan,“ segir Eyþór.
Starfsmenn á höfuðborgarsvæð-
inu eru 27 auk 12 eftirlitsmanna.
„Og mér sýnist á öllu að við verð-
um alltaf með 20 manna starfsstöð
þótt flutningurinn verði afstaðinn
eftir 10, 15 eða 20 ár,“ segir Eyþór.
Hluti starfanna, til dæmis sá sem
tilheyrir upplýsingatæknisviði, geti
aldrei flutt norður.
Eyþór telur að það hafi gengið
vel að laga stofnunina að breyttum
aðstæðum. En það geti komið upp
vandamál þegar stofnunin þarf að
vera í samskiptum við aðila á höfuð-
borgarsvæðinu. Til dæmis ráðuneyt-
ið, sem hafi ekki búnað til þess halda
almennilega fjarfundi.
„Það er kannski svolítið einkenni-
legt að ráðuneytið yfir málaflokkn-
um skuli ekki vera í stakk búið til
þess að eiga fjarfundi við stofnanir.
Því bæði Fiskistofa og Matvæla-
stofnun heyra undir þetta ráðuneyti.
Líka Byggðastofnun sem er á Sauðár-
króki,“ segir Eyþór.
Að sögn Eyþórs er mjög sérstakt
að ráðuneytið sem er yfir þessum
landsbyggðarstofnunum skuli ekki
hafa búnað til að eiga góða fjarfundi.
Það kosti bæði tíma og peninga að
ferðast á milli staða.
Höfuðstöðvar Fiskistofu voru
fluttar 1. janúar 2016. Eyþór segir
að stofnunin hafi ferðakostnað ekki
sundurliðaðan eftir áfangastöðum
en sér sýnist sem þessi kostnaðarlið-
ur hafi hækkað um 10,5 milljónir frá
2015 til 2016. Samkvæmt ársskýrslu
var aksturs-, dvalar- og ferðakostn-
aður stofnunarinnar 43,6 milljónir
árið 2015.
Þorgerður Katrín segir málið með
fjarfundabúnaðinn vera eitt merki
þess að ákvörðun um flutning Fiski-
stofu hafi verið tekin án þess að
málið væri hugsað til enda.
jonhakon@frettabladid.is
Milljónaútgjöld því tæki vantar
Nýr ráðherra sjávarútvegsmála segir ákvörðun um að flytja Fiskistofu til Akureyrar hafa verið vanhugsaða en
býst þó ekki við breytingum. Ferðakostnaður Fiskistofu eykst um milljónir vegna skorts á fjarfundabúnaði.
Höfuðstöðvar Fiskistofu voru áður í Hafnarfirði. Það var Sigurður Ingi Jóhannsson, þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, sem ákvað að flytja stofnunina. FréttablaðIð/VallI
Sinnum öllum almennum bifreiðaviðgerðum.
Tæknimenn okkar eru með áratuga reynslu
af viðgerðum á flestum gerðum bifreiða.
Mikil lofthæð gerir okkur kleift að sinna viðgerðum
á húsbílum, atvinnubílum og stórum pallbílum.
Við tökum vel á móti þér.
Tímapantanir í síma 534 4433.
NÝTT OG FULLKOMIÐ
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Íslensk-Bandaríska ehf - Verkstæði og varahlutaverslun - Smiðshöfða 5 - 110 Reykjavík - Sími 534 4433
thjonusta@isband.is - www.isband.is - OPIÐ VIRKA DAGA KL. 07:45 - 18:00
n Engin
ráðgjöf
n ráðgjöf að
frumkvæði
viðskiptavinar
n ráðgjöf að
frumkvæði
starfsmanns
apóteks
✿ ráðgjöf um lausasölu-
lyf í apótekum
17,1%
13,4%
69,5%
sVÍÞjóð Sveitarfélagið í Karlstad
á að greiða jafnvirði 3,8 milljóna
íslenskra króna í sekt vegna of mik-
ils vinnuálags í þremur framhalds-
skólum.
Fulltrúi kennarasambandsins
segir kennarana í skólunum hafa
verið með suð fyrir eyrum og verki
auk þess sem þeir gnísti tönnum.
Frá þessu er greint í riti sænska
kennarasambandsins. – ibs
Sekt vegna of
mikils álags
Með eyrnasuð og gnístu tönnum.
NOrDICPHOtOS/GEttY
Sjaldnast veitt ráðgjöf er lyf eru keypt í apótekum sýnir rannsókn
DýrahalD Bændur í Dalvíkur-
byggð hafa verið ákærðir fyrir brot
á lögum um búfjárhald og vörslu
búfjár. Í tvö ár héldu þeir geldneyti
á jörð í eigin eigu en tryggðu hvorki
öryggi þeirra né annarra.
Frá ágúst 2014 til júní í fyrra
héldu bændurnir, sem eru bræður,
tugum geldneyta í landi við fjöl-
farinn þjóðveg en girðingum var
svo ábótavant að nautgripir gengu
á landi nágranna og fóru einnig
upp á þjóðveg „þar sem þeir ollu
umferðaróhöppum og mikilli hættu
fyrir umferðina um veginn“, segir
í ákæru lögreglustjórans á Norður-
landi eystra.
Allur búpeningur mannanna
hefur verið í vörslu Matvælastofn-
unar frá því í lok janúar og er nú
undir eftirliti bústjóra. – sa
Bræður ákærðir
fyrir laus naut
Miklu frekar þarf að
tryggja að þessi
flutningur styðji við Fiski-
stofu og verði ekki til að
draga úr starfseminni.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir,
sjávarútvegs- og
landbúnaðar-
ráðherra
8 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M i ð V i k U D a G U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
8
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
1
-9
9
1
4
1
C
3
1
-9
7
D
8
1
C
3
1
-9
6
9
C
1
C
3
1
-9
5
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
7
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K