Fréttablaðið - 08.02.2017, Side 8

Fréttablaðið - 08.02.2017, Side 8
Mættu og taktu númer OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 | LAUGARDAGA 11 - 16 BÆJARLIND 16 | 201 KÓPAVOGUR | SÍMI 553 7100 | LINAN.IS GEFÐU HÆNU gjofsemgefur.is 9O7 2OO3 Seldi kvóta úr Grímsey og fimmtán störf fjúka Útgerðarfyrirtækið Borgarhöfði hefur verið selt og flyst kvóti því úr Grímsey. Átti kvóta fyrir um milljarð og var einn burðarása atvinnulífs í eynni sem verður því fyrir mikilli blóðtöku. Fimmtán stöðugildi hverfa. Hin fyrirtækin skuldsett. Grímsey Einn burðarása í útgerð í Grímsey, fyrirtækið Borgarhöfði, hefur verið selt til Loðnuvinnsl­ unnar á Fáskrúðsfirði og allur kvóti fyrirtækisins með. Fimmtán stöðu­ gildi hverfa með fyrirtækinu í byggð sem telur innan við 90 íbúa. Þrjú útgerðarfélög í eynni skuld­ uðu Íslandsbanka rúmar þrjú þúsund milljónir í upphafi ársins 2015 og þurftu félögin að ganga til samninga við bankann til að greiða af skuldum sínum. Það hefur ekki gengið eftir í tilviki Borgarhöfða. Eigendur Borgarhöfða vildu ekki tjá sig við Fréttablaðið en sendu þess í stað frá sér yfirlýsingu. „Reynt var til þrautar að ná samkomulagi við viðskiptabanka félagsins um niðurfellingar á gengis­ tryggð um lánum en þegar ljóst var að ekki næðust ásættanlegir samningar voru rekstrarforsendur brostnar og við þau skilyrði gat rekstur ekki haldið áfram í óbreyttri mynd,“ segir í yfirlýsingunni. Eftir standa tvö fyrirtæki, Sigur­ björn ehf. og Sæbjörg ehf. sem standa ekki vel þrátt fyrir skipu­ lagningu skulda fyrirtækisins. Þau fyrirtæki eru minni en Borgarhöfði var, með um átta stöðugildi hvort um sig. KPMG segir í ársreikningi Sigur­ bjarnar ehf. fyrir árið 2015 að eigið fé þess fyrirtækis sé neikvætt um nærri 700 milljónir króna og við þær aðstæður leiki vafi á framtíðar­ rekstrarhæfi þess. Edda Hermannsdóttir, upplýs­ ingafulltrúi Íslandsbanka, segir bankann horfa til stöðu byggðalaga við ákvarðanir um stoðir veikra byggða. Bankinn hafi aðstoðað fyrir­ tæki í Grímsey og þannig stutt við byggðina. Íslandsbanki leitist við að skoða samfélagsleg sjónarmið þegar fyrirtæki í strjálum byggðum lenda í rekstrarerfiðleikum. „Íslandsbanki gerði samkomulag við fyrirtæki í Grímsey um fjárhags­ lega endurskipulagningu með tilliti til þessa. Bankinn hefur því leitast við að aðstoða fyrirtæki eftir bestu getu þó niðurstaðan hafi ekki alltaf orðið sú sem vonast var til,“ segir Edda Hermannsdóttir. sveinn@frettabladid.is Sjávarútvegur í Grímsey heldur byggðinni uppi í eynni. Fréttablaðið/Pjetur Bankinn hefur leitast við að aðstoða fyrirtæki eftir bestu getu. Edda Hermanns- dóttir, upplýsinga- fulltrúi Íslands- banka fiskeldi Landssamband veiðifélaga lýsir þungum áhyggjum af fyrirætl­ unum laxeldisfyrirtækisins Arctic Sea Farm um stóraukið laxeldi í sjókvíum í Ísafjarðardjúpi og Arnarfirði. Ekki síður gagnrýnir LV þann tví­ skinnung eiganda fyrirtækisins að stunda „grænt eldi“ í heimalandinu Noregi, en ekki hérlendis. Arctic Sea Farm, sem áður hét Dýr­ fiskur, hefur sent Skipulagsstofnun matsáætlun vegna 8.000 tonna laxeldis í Ísafjarðardjúpi og Arnarfirði. Fyrir­ tækið hefur nú þegar leyfi til eldis á norskum laxi í Dýrafirði. Fyrirtækið er í helmingseigu Norway Royal Salmon, 47,5 prósent í eigu aðila sem skráðir eru á Kýpur og 2,5 prósent í eigu Novo ehf., segir í fréttatilkynningu LV. Í matsáætluninni kemur fram að fyrirtækið vill leyfi til að flytja inn norskan laxastofn til ræktunar á Íslandi en slíkt er til að mynda bannað í Noregi, þar sem lög kveða á um að óheimilt sé að flytja inn erlenda laxa­ stofna vegna mikillar hættu á erfða­ mengun. Í tilkynningu LV kemur fram að Norway Royal Salmon hefur nú yfir að ráða 10 grænum eldisleyfum í Noregi, en slík leyfi eru háð þeim skil­ yrðum að eingöngu má nota geldan fisk til eldis. „Norway Royal Salmon ætlar hins vegar að hagnast á eldi frjórra laxa í sjókvíum hér við land með þekktum afleiðingum fyrir hinn villta íslenska laxastofn. Fyrirtækið er því tilbúið til að stunda grænt eldi heima við en ekki í íslenskri náttúru með tilheyr­ andi hættu. Notkun geldstofna ryður sér nú til rúms í Noregi og ætti að vera skilyrði norskra laxa í sjókvíum við Ísland.“ – shá Gagnrýna tvískinnung í norsku fiskeldi Erfðamengun frá sjókvíaeldi ógnar íslenska laxastofninum – enda eldis- fiskurinn af norskum uppruna. Mynd/nASF Viðskipti Íslensk stjórnvöld hafa vakið athygli framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og skrifstofu Alþjóðahugverkastofnunarinnar í Genf, eða World Intellectual Pro­ perty Organization (WIPO), á nauð­ syn þess að festa betur í sessi vernd landaheita. Þessar athugasemdir voru gerðar samhliða því að íslensk stjórnvöld, Samtök atvinnulífsins og Íslands­ stofa gerðu í nóvember kröfu um ógildingu á skráningu bresku mat­ vörukeðjunnar Iceland Foods á orð­ merkinu Iceland til Hugverkarétt­ indaskrifstofu Evrópusambandsins. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu hefur Iceland Foods frest til 24. febrúar næstkom­ andi til að bregðast við kröfunni. Búast má við að málareksturinn hjá Hugverkaréttindaskrifstofu Evrópu­ sambandsins taki að minnsta kosti eitt ár. Íslandsstofa hafði áður sótt um að skrá vörumerkið „Inspired by Iceland“ í ríkjum Evrópusam­ bandsins en fulltrúar Iceland Foods höfðu andmælt þeirri skráningu. Samkvæmt upplýsingum frá utan­ ríkisráðuneytinu hafnaði Hug­ verkaréttindaskrifstofa Evrópusam­ bandsins andmælum Iceland Foods í desember. Það mál hefur þó ekki verið leitt til lykta því að Iceland Foods hefur frest fram í seinni hluta febrúarmánaðar til að bregðast við. – jhh Vernda þarf heiti Íslands betur en nú Íslandsstofa hafði áður sótt um að skrá vörumerkið „Inspired by Iceland“ í ríkjum Evrópusambandsins en fulltrúar Iceland Foods höfðu andmælt þeirri skráningu. 8 . f e b r ú a r 2 0 1 7 m i ð V i k U d a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 0 8 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :4 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 3 1 -A 7 E 4 1 C 3 1 -A 6 A 8 1 C 3 1 -A 5 6 C 1 C 3 1 -A 4 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 7 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.