Fréttablaðið - 08.02.2017, Side 11

Fréttablaðið - 08.02.2017, Side 11
Enn á ný er komið fram frumvarp á Alþingi um að heimila sölu áfengis í matvöruverslunum. Verði frum- varpið að lögum verður hægt að kaupa léttvín og bjór í verslunum frá og með næstu áramótum frá klukkan níu að morgni til mið- nættis. Þetta frumvarp er lagt fram þó vitað sé að meirihluti landsmanna hefur í mörgum skoðanakönnunum lýst sig andsnúinn því að hægt sé að kaupa áfengi í matvöruverslunum. Skoðun landlæknis og umboðsmanns barna Birgir Jakobsson landlæknir hefur sagt í fjölmiðlum nýlega að fyrir- hugað frumvarp sé algjörlega í andstöðu við lýðheilsustefnu fyrr- verandi ríkis stjórnar. Landlæknir segir orðrétt: „Raunverulega er það í andstöðu við það sem alþjóðasam- tök segja; að hafi maður ekki sleppt þessu frjálsu í guðanna bænum gerið það ekki. Þetta skref verður aldrei tekið til baka og er óheillaspor.“ Þegar viðlíka frumvarp var til umræðu á Alþingi á síðasta vetri kom fram í umsögn umboðsmanns barna, Margrétar Maríu Sigurðar- dóttur, að fjölmargar rannsóknir hafi sýnt að aukið aðgengi að áfengi auki neyslu í samfélaginu og skapi verulegar neikvæðar afleiðingar fyrir börn, fjölskyldur þeirra og samfélagið allt. Viðtal við forstjóra Haga Þó fjöldinn allur af fagaðilum, einkum á sviði heilbrigðismála, hafi stigið fram og varað við þeim skað- legu áhrifum sem aukið aðgengi áfengis í matvöruverslunum hafi í för með sér er þó einn aðili sem fagnar frumvarpinu sérstaklega. Hann heitir Finnur Árnason og er forstjóri Haga, sem m.a. reka Bónus og verslanir Hagkaups. Í löngu blaðaviðtali við for- stjórann lýsir hann því yfir að það sé tímaskekkja að heimila ekki sölu áfengis í matvöruverslunum. Hagar séu nú „að byggja upp í róleg- heitum“ að koma áfengistegundum Haga í sölu í vínbúðum. Nú þegar sé fyrirtækið komið með 50 tegundir í sölu sem verði 65 talsins innan skamms. Finnur Árnason fagnar sér- staklega að líkurnar á að opna fyrir sölu áfengis í matvöruverslunum hafi aukist með nýrri ríkisstjórn og „að yngri þingmenn átti sig á því að þetta er úrlausnarverkefni sem þarf að leysa“. Við lestur þessa viðtals við Finn Árnason, forstjóra Haga, kemur skýrt fram að hann óskar þess heit- ast að umrætt frumvarp verði sam- þykkt á Alþingi og að hægt verði að kaupa áfengi í Bónus og verslunum Hagkaups eins fljótt og verða má. Nú er það svo að Hagar eru almenningshlutafélag sem skráð er á markaði í Kauphöll Íslands. Meðal tíu stærstu hluthafanna eru sjö líf- eyrissjóðir. Það má því eiginlega segja að þjóðin eigi Haga. Sú sama þjóð sem að meirihluta er á móti auknu aðgengi á áfengi í matvöru- verslunum. Hver er skoðun stjórnar Haga? Í umræddu viðtali talar Finnur ber- sýnilega sem forstjóri Haga. Hann er því ekki að reifa sínar einkaskoðanir heldur hlýtur hann að tala í umboði stjórnar Haga. Eða hvað? Ekkert hefur heyrst í stjórn Haga og engar athugasemdir borist um það að hún sé ósammála forstjóranum. Hvernig væri að fjölmiðlamenn leituðu álits stjórnar Haga hvort hún sé sammála forstjóranum um sölu léttvíns og bjórs í verslunum fyrirtækisins, þrátt fyrir aðvar- anir heilbrigðisstétta með land- lækni í forystu? Stjórn Haga getur ekki borið fyrir sig að það sé ekki á verksviði hennar að ákveða ein- staka vöruflokka í verslunum fyrir- tækisins. Málið er langtum stærra og alvarlega en það. Stjórnin hlýtur að hafa skoðun á þessu stórmáli. Hún getur ekki látið forstjórann spila einleik. Í guðanna bænum gerið það ekki Haft er eftir Kára Stefánssyni, for- stjóra Íslenskrar erfðagreiningar, að sala áfengis í matvöruverslunum sé ekki spurning um frelsi, ríkisrekstur eða ekki ríkisrekstur. Málið snúist aftur á móti um að koma í veg fyrir eitt versta heilsufarsvandamál ungs fólks sem er alkóhólismi og að koma í veg fyrir að freisting sé fyrir allra augum í matvöruverslunum. Færa má fullgild rök fyrir því að örorkulífeyrisgreiðslur lífeyrissjóð- anna muni aukast ef þetta áfengis- frumvarp nær fram að ganga. Með aukinni örorku minnkar að sama skapi geta lífeyrissjóðanna til eftir- launagreiðslna. Það er því dapur- legt ef stjórn Haga með forstjórann í fararbroddi ætlar að berjast fyrir afgreiðslu þessa áfengisfrumvarps. Í guðanna bænum gerið það ekki. „Í guðanna bænum gerið það ekki“ Hrafn Magnússon fv. fram- kvæmdastjóri Færa má fullgild rök fyrir því að örorkulífeyrisgreiðslur lífeyrissjóðanna muni aukast ef þetta áfengisfrumvarp nær fram að ganga. Með aukinni örorku minnkar að sama skapi geta lífeyrissjóðanna til eftirlaunagreiðslna. „Ég er ekkert viss um að það sé betra að lengja fjarvistina frá vinnu- markaði, út frá starfsþróun og starfs- frama. Það gæti jafnvel aukið enn frekar á kynbundna mismunun í starfsþróun.“ Viðhorf félagsmála- ráðherra til lengingar fæðingaror- lofs í Stundinni varpa skýru ljósi á vanda barna: Mikilvægar ákvarðan- ir sem varða heill barna eru teknar á forsendum annarra. Í þessu tilviki er eins og tilgangur fæðingarorlofs hafi gleymst. Málið er að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði og þörf barna fyrir foreldra sína verður nánast eins og aukaatriði. Orð ráð- herra bera vitni um afstöðu til barna sem illu heilli er talin góð og gild í samfélaginu. Því lengur sem ég vinn með ung- börn og foreldra þeirra því skýrara sé ég hversu lítið þol samfélagið hefur fyrir því að börn séu lítil, háð, þurfandi og truflandi. Nokkurra mánaða gömul eiga þau að sofa eins og fullorðið fólk, níu mánaða eiga börn að sætta sig möglunar- laust við að ókunnugt fólk annist þau og árs gömul viljum við gera þau að nemendum í skóla. Ekkert af þessu er út frá forsendum barna eða með hliðsjón af þörf þeirra fyrir tengsl. Sýni börn heilbrigð viðbrögð við þvinguðum aðskilnaði frá for- eldrum sínum eða öðrum kvíða- vekjandi aðstæðum köllum við þau erfið og skellum jafnvel á þau sjúkdómsgreiningu. Komin með greiningu er fátt um úrræði annað en biðlistar eftir þjónustu eða lyf af ýmsu tagi en íslensk börn slá ekki aðeins met í neyslu geðlyfja heldur herma nýlegar fréttir að sprenging hafi átt sér stað í ávísun svefnlyfja á börn. Virðingarleysi gagnvart þörfum barna Virðingarleysið gagnvart þörfum ungra barna endurspeglar að mínu mati ótta okkar við að vera háð öðrum. Persónulega hafa margir erfiða reynslu af því að hafa þurft að reiða sig á aðra og urðu því sjálf- stæðir löngu áður en þeir höfðu þroska eða getu til. Sameiginlega eigum við sögu um kúgun erlends yfirvalds auk sambýlis við ófyrir- sjáanlega náttúru sem verður fyrir- varalaust hamslaus og eyðileggjandi í stjórnlausum yfirgangi sínum. Ómeðvitaður vanmáttur frammi fyrir ofurefli á efalítið þátt í sjálf- stæðisþörf Íslendinga sem þjóðar en líka sem einstaklinga. Við getum ekki beðið eftir að börnin okkar verði sjálfstæð og fullorðin. Hvað eftir annað rek ég mig á að fólk stendur í þeirri trú að lítil börn sem eru hugguð „of oft“ verði annað- hvort liðleskjur eða frekjuhundar. Óttinn við að þolinmóð umhyggja skemmi börn er svo útbreiddur að hann telst eðlilegur. Sjálfstæði sem stendur undir nafni næst ekki með því að henda börnum sem fyrst út í djúpu laug- ina. Þvert á móti er raunverulegt sjálfstæði afsprengi þess að hafa fengið að vera háður öðrum eins lengi og maður þarf. Ófullnægðar þarfir fyrir nánd í bernsku leiða til óseðjandi hungurs á fullorðinsaldri, til dæmis í mat, kynlíf eða áfengi. ACE-rannsóknin sýnir svart á hvítu að beint orsakasamhengi er á milli óhóflegrar streitu í uppvextinum og sjúkdóma á fullorðinsaldri, líkam- legra ekki síður en andlegra. Þess vegna verðum við að hugsa hlutina upp á nýtt. Við erum ekki lengur fátæk þjóð sem skortir aðgang að gagnreyndri þekkingu. Hvort sem við lítum til mannúðarsjónarmiða, almennrar skynsemi eða rannsókna í geðheil- brigðis- og hagfræði er niðurstaðan alltaf sú sama: Fjármunir sem fara í að styrkja fjölskyldur fyrstu ár barna þeirra skila samfélaginu mestum hagnaði og spara með tímanum gríðarleg útgjöld. Hversu öfluga starfskrafta vinnumarkaðurinn fær í framtíðinni veltur því að verulegu leyti á að foreldrum þeirra hafi verið gert kleift að sinna þeim þegar þeir þurftu mest á því að halda. Hver er tilgangur fæðingarorlofs? Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir Flísabúðin Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is Gæði og glæsileik i endalaus t úrval af hágæða flísum Finndu okkur á facebook ÆFÐU Í LIT www.gilbert.is FRISLAND CLASSIC TÍMALAUS GÆÐI VIÐ KYNNUM Skoðaðu litríkt úrval á bros.is Bros auglýsingavörur, Norðlingabraut 14. Bros auglýsingavörur með þínu merki M ER KI Ð M IT T s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M i ð V i k u D A G u R 8 . F e B R ú A R 2 0 1 7 0 8 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :4 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 3 1 -8 A 4 4 1 C 3 1 -8 9 0 8 1 C 3 1 -8 7 C C 1 C 3 1 -8 6 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 7 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.