Fréttablaðið - 08.02.2017, Qupperneq 12
rio opnar sig
rio Ferdinand segir að hann hafi
aldrei gefið sér nægilegan tíma til
að syrgja eiginkonu sína sem féll
frá eftir stutta baráttu við krabba
mein í maímánuði árið 2015.
rebecca Ellison, eiginkona Ferd
inands, féll frá eftir að hafa greinst
með krabbamein í brjósti. Hún var
34 ára.
„Ég held að ég hafi aldrei syrgt
almennilega,“ sagði Ferdinand í
viðtali sem birtist í heimildarþætti
á BBC um foreldra sem missa maka
sína.
„Ég hef ekki gefið mér tíma til
að setjast niður og koma öllum
mínum tilfinningum almennilega
frá mér.“
Ferdinand fékk mikið lof fyrir að
stíga fram og taka þátt í þessari
mikilvægu umræðu. Ferdinand er
einn þekktasti knattspyrnumaður
Bretlands en hann var á mála hjá
Manchester United í tólf ár og
spilaði 81 landsleik fyrir England.
rio og rebecca gengu í hjónaband
árið 2009 og eignuðust þrjú börn
saman.
Í dag
19.40 Leicester - Derby Sport
03.00 Mexíkó - Ísland Sport
Kári svarar Kristjáni ara
Landsliðsmaðurinn Kári Krist
ján Kristjánsson gefur lítið fyrir
þá skoðun Kristjáns arasonar
að hann og fleiri eigi að víkja úr
landsliðinu.
„núna eru stórar ákvarðanir sem
þjálfararnir verða að taka. við
erum með guðjón val, arnór atla,
ásgeir Örn og Kára. Ég er á því að
fá bara unga leikmenn inn fyrir
alla þessa fjóra leikmenn. Ég held
að það sé kominn tími á að liðið
hans arons pálmarssonar taki við.
við vorum með liðið hans Ólafs
stef og svo með liðið hans guðjóns
vals. Mér finnst kominn tími á að
gefa þessum yngri mönnum allt
sviðið,“ sagði Kristján í viðtali við
íþróttadeild 365 á dögunum.
Kári svaraði þessum ummælum
Kristjáns í akraborginni á Xinu.
„Helvíti er Kristjáni hugleikið að
afskrifa,“ sagði Kári beittur.
„Ég átta mig ekki alveg á þessu.
Þetta er samt bara hans skoðun og
ég ætla bara ekkert að virða hana.
Þeir sem lentu á höggstokknum
hjá honum eru til að mynda
guðjón valur. Ég held að hann sé
fimmti markahæsti leikmaðurinn í
Bundesligunni. Hart og vond skila
boð til ungra leikmanna að ef þú
standir þig svona vel eigirðu samt
ekki erindi í landsliðið. Það þykir
mér afskaplega sérstök nálgun.“
8 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r12 s p o r t ∙ f r É t t a b L a Ð I Ð
KörfUboLtI Bikarúrslitavika KKÍ
hefst í kvöld með undanúrslita
leikjum Maltbikars kvenna en þetta
verður í fyrsta sinn sem undanúr
slitaleikirnir fara fram í Laugardals
höllinni. Það geta líka orðið söguleg
úrslit í kvöld því topplið Domino’s
deildar kvenna, skallagrímur, fær þá
tækifæri til að komast í bikarúrslita
leikinn í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Það er allt aðra sögu að segja af
liðunum í fyrri leiknum þar sem
Keflavíkurkonur geta bætt við metið
sitt og komist í sinn 22. úrslitaleik
en að sama skapi geta Haukakonur
orðið fjórða félagið til að spila tíu
úrslitaleiki hjá konunum. Leikur
Keflavíkur og Hauka hefst klukkan
17.00.
skallagrímur þarf að slá út
Íslands og bikarmeistara snæfells
til að komast í sinn fyrsta bikarúr
slitaleik. snæfellsliðið hefur spilað
þrjá bikarúrslitaleiki á síðustu fimm
árum en vann bikarinn í fyrsta
skiptið í fyrra. Leikur skallagríms
og snæfells hefst klukkan 17.00.
Keflavík verður skrefinu á undan
Fréttablaðið fékk pétur Má sig
urðsson, þjálfara stjörnunnar,
til að spá um leiki kvöldsins.
Kefla víkurliðið hefur unnið alla
leikina við Hauka í vetur en þann
síðasta bara með þremur stigum.
„Ég held að þetta verði hörkuleik
ur. Bæði lið eru með unga og spræka
leikmenn og það er mikil framför í
leik Haukanna. Keflavík er hins
vegar búið að eiga betra tímabil og
er með góða leikmenn,“ segir pétur.
„Ég held að Keflvíkingarnir
verði alltaf skrefinu á undan og ef
Keflavíkurstelpurnar ná að hleypa
leiknum upp í hraðan leik þá sigla
þær yfir Haukastelpurnar. Ef Hauka
stelpurnar ná að stjórna hraðanum
þá gæti þetta orðið hörkuleikur. Ég
spái því samt að Keflavík vinni þetta
með sjö til tíu stigum,“ segir pétur.
skallagrímur hefur unnið snæfell
bæði í Borgarnesi og í stykkishólmi
í vetur. pétur Már sér fram á æsi
spennandi baráttuleik.
Ekki slagsmál en rosaleg barátta
„Þetta verður rosalegur leikur. snæ
fell vill spila hratt en bæði lið eru
mjög agressív og þetta verður ekki
beint slagsmálaleikur en rosaleg
barátta. snæfellsstelpurnar spila
rosalega öfluga vörn á hálfum velli
og treysta á hraðaupphlaupin en
aftur á móti eru skallagrímsstelp
urnar mjög öflugar í fráköstum og
stórar og sterkar,“ segir pétur.
„Þetta verður stál í stál. skalla
grímsliðið er búið að spila stöð
ugan agressívan bolta í allan vetur
þó að þær séu oft ekki að spila vel
í sókninni. Þær frákasta svo vel að
það er erfitt að spila á móti þeim,“
segir pétur og bætir við: „snæfells
stelpurnar voru í smá lægð en við
vorum að spila á móti þeim um
daginn og þá var allt annað að spila
móti þeim en tveimur vikum áður í
bikarnum. Þá var allt annað að sjá
þær og rétta snæfellsliðið mætt til
leiks,“ segir pétur.
„Þetta verða fimm stig hér, fimm
stig þar en ég held samt að snæfell
ingarnir taki þetta í restina með
fullri virðingu fyrir mínu gamla
félagi. snæfellsstelpurnar kunna
vel við sig þegar verið er að spila
um eitthvað stórt,“ segir pétur að
lokum. ooj@frettabladid.is
Stál í stál í dag
Pétur Már Sigurðsson, þjálfari Stjörnunnar, býst við
tveimur hörkuleikjum í Höllinni í kvöld þegar undan
úrslit Maltbikars kvenna í körfubolta fara fram.
Fyrirliðar liðanna fjögurra í undanúrslitum Maltbikars kvenna í körfubolta með nýja bikarinn sem verður keppt í fyrsta sinn um í ár. Talið frá vinstri: Gunnhildur Gunnars-
dóttir, Snæfelli, Erna Hákonardóttir, Keflavík, Nashika Wiliams, Haukum, og Guðrún Ósk Ámundadóttir, Skallagrími. FréTTabLaðið/EyþÓr
Nítján félög hafa átt lið í
bikarúrslitaleikjum karla og
kvenna og Skallagrímur
getur orðið það tuttugasta.
Grótta - Selfoss 20-21
Mörk Gróttu: Þórey Anna Ásgeirsdóttir 11,
Laufey Guðmundsdóttir 2, Sunna Einars-
dóttir 2, Lovísa Thompson 2.
Mörk Selfoss: Hrafnhildur Hanna Þrastar-
dóttir 11, Dijana Radojevic 3, Kristrún
Steinþórsdóttir 2, Arna Einarsdóttir 2.
Þetta var fyrsti leikurinn í átta liða úrslitum
Coca-Cola-bikars kvenna.
Í kvöld:
Stjarnan - ÍbV
Fylkir - Fram
afturelding - Haukar
bikarkeppni HSÍ, konur
Sport
0
8
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
1
-8
F
3
4
1
C
3
1
-8
D
F
8
1
C
3
1
-8
C
B
C
1
C
3
1
-8
B
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
7
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K