Fréttablaðið - 08.02.2017, Síða 18

Fréttablaðið - 08.02.2017, Síða 18
40 35 30 25 20 15 2015 Í dag 1. Febrúar 2017 Afkomuspá fyrir 2017 lækkuð um 60 -70 millj- ónir dala 30. sept. 2016 Stjórnar- maður selur bréf sín í félaginu 27. júlÍ 2016 Akomuspáin lækkuð á ný 28. aprÍl 2016 Afkomuspá fyrir 2016 lækkuð um 10 milljónir dala ✿ Í frjálsu falli Gengi hlutabréfa Icelandair Icelandair hefur verið skellt niður á jörðina. Fjárfestar, sjóðstjórar og verðbréfa-miðlarar, sem Markaðurinn hefur rætt við, eru á einu máli um að það hafi orðið „meiriháttar trúnaðarbrestur,“ eins og einn viðmælandi lýsir því, á milli stjórnenda Ice landair og hluthafa fyrirtækisins. Þeir gefa lítið fyrir það sem þeir kalla „þunnar skýringar“ félagsins, þar sem meðal annars hefur verið vísað til þess að hægst hafi á bók- unarinnflæði að undanförnu og óvissu vegna breytinga í alþjóða- stjórnmálum, og gagnrýna að ekk- ert hafi komið fram hvernig eigi að ná fram hagræðingu í rekstri og auka tekjur félagsins. „Tilkynning Icelandair kom markaðsaðilum í opna skjöldu,“ segir Daði Kristjánsson, sér- fræðingur í markaðsviðskiptum hjá Arctica Finance, í samtali við Markaðinn um kolsvarta afkomu- viðvörun sem félagið sendi frá sér rétt fyrir opnun markaða síðastlið- inn miðvikudag. Samkvæmt henni mun EBITDA-hagnaður Iceland- air – afkoma fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir – verða 140 til 150 milljónir Bandaríkjadala og dragast saman um 30 prósent 2017. Það er lækkun upp á 60 til 70 milljónir dala, eða jafnvirði rúm- lega átta milljarða króna. Eftir nánast linnulausa vel- gengni, þar sem bréf flugfélagsins meira en tífölduðust í verði 2010 til 2016 samhliða hagstæðum ytri aðstæðum og miklum uppgangi í ferðaþjónustu, hefur farið að síga á ógæfuhliðina hjá félaginu. Þrátt Fjárfestar skildir eftir í myrkrinu Bréf Icelandair lækkað um 30% á einni viku. Hluthafi segir að „tiltrú fjárfesta á félaginu sé lítil“ og að ný afkomuspá skilji eftir fleiri spurningar en svör. Breytingar á stjórninni taldar líklegar í ljósi nýjustu tíðinda. Aðgerðir eiga að skila 3,5 milljörðum í bættri afkomu. lega við þessum fréttum.“ Þetta var í þriðja sinn á níu mán- uðum sem flugfélagið lækkaði afkomuspá sína. Fjárfestar bíða þess nú með eftirvæntingu að sjá hvaða aðgerðir félagið ætlar að kynna til að snúa þessari þróun við og eins líta margir til þess hvort breytingar verði á stjórn Iceland- air á aðalfundi sem verður hald- inn 3. mars næstkomandi. Afar líklegt er talið að hluthafar, en líf- eyrissjóðir eiga samanlagt meira en helmingshlut, muni vilja fá ný andlit inn í stjórn flugfélagsins. tiltrú fjárfesta lítil Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, fjárfestir og hluthafi í Iceland- air, segir í samtali við Markaðinn að tilkynning félagsins til Kaup- hallarinnar hafi komið á óvart og valdið vonbrigðum. Fyrri yfirlýs- ingar stjórnenda, ásamt nýlegum tölum um farþegaflutninga, hafi ekki gefið til kynna að afkomuspá félagsins fyrir 2017 yrði lækkuð eins mikið og raun ber vitni. „Eins og staðan er núna er ljóst að tiltrú fjárfesta á félaginu er lítil,“ segir Svanhildur Nanna, og bætir við: „Hin nýja afkomuspá skilur eftir fleiri spurningar en svör. Við hluthafar félagsins þurf- um að öðlast meiri skilning á því hvað er að valda þessari lækkun – hvort um sé að ræða tímabundna aðlögun að óhagstæðu rekstrar- umhverfi eða varanlegri breyt- ingar sökum aukinnar samkeppni í flugi yfir Atlantshafið. Uppgjörs- fundur félagsins [sem fer fram í dag, miðvikudag] verður því enn þýðingarmeiri en ella. Fjárfestar munu vilja fá ítarlegri útskýring- ar á stöðunni og svör um hvernig félagið hyggist bregðast við þess- ari stöðu. Stjórnendur ættu líklega að taka frá góðan tíma fyrir spurn- ingar enda er það í þeirra valdi að auka trú fjárfesta á félaginu og fullvissa markaðinn um að þeir hafi stjórn á ferlinu og skýra áætl- un um hvernig þeir ætli að takast á við breyttar aðstæður.“ lífeyrissjóðir stærstir Icelandair er ekki eins og hvert annað félag á hinum íslenska hlutabréfamarkaði. Þrátt fyrir að það sé ekki lengur verðmætasta skráða fyrirtækið – Marel trónir þar á toppnum með markaðsvirði upp á meira en 200 milljarða – þá hefur það borið höfuð og herðar yfir önnur félög hvað varðar við- skipti með bréf þess í Kauphöll- inni. Þannig námu viðskipti með bréf Icelandair Group 140 millj- örðum í fyrra, eða sem nam 25 prósentum af heildarviðskipt- um með hlutabréf á öllu árinu. Þá hefur hlutabréfamarkaðurinn oftar en ekki á undanförnum miss- erum og árum sveiflast eftir því hvernig gengi Icelandair hefur verið hverju sinni. Sumir viðmæl- endur Markaðarins á fjármála- Icelandair flutti alls 3,7 milljónir farþega í millilandaflugi 2016 og fjölgaði þeim um 20% frá fyrra ári. Þrátt fyrir að bréf félagsins hafi lækkað mikið á síðasta ári þá var rekstrarniðurstaða Icelandair sú næstbesta í 80 ára sögu félagsins. fyrir erfiðara rekstrarumhverfi áttu engu að síður fáir von á því hlutabréfaverð Icelandair Group myndi hrynja um 24 prósent á aðeins einum viðskiptadegi – og 27 milljarðar af markaðsvirði félags- ins samtímis þurrkast út. Daði bendir á að greinendur hafi, áður en Icelandair sendi frá sér afkomuviðvörunina, verið að spá því að EBITDA á núverandi ári yrði á bilinu 210 til 240 milljónir dala. „Það er því skiljanlegt að markaðurinn hafi brugðist harka- Kvörtuðu undan skortsölu Kviku Á fundum sem yfirstjórnendur hjá Icelandair Group áttu með ýmsum markaðsaðilum síðastliðið sumar, þegar gengi bréfa í félaginu var farið að gefa talsvert eftir, beindu þeir óánægju sinni í garð Kviku fjárfestingabanka sem þeir sökuðu um að vera að skortselja hlutabréf flugfélagsins. Samkvæmt heimildarmönnum Markaðarins, sem áttu slíka fundi með stjórnendum Icelandair, hafði Bogi Nils Bogason, framkvæmda- stjóri fjármála, tekið saman gögn sem áttu að sýna að markaðsvið- skipti Kviku hafi verið langsamlega umsvifamest – með um og yfir 70 prósenta hlutdeild – á seljenda- hliðinni með bréf Icelandair yfir tiltekið tímabil. Lækkunarhrina hlutabréfa Icelandair hófst í lok apríl 2016 þegar fram kom í árshlutauppgjöri að EBITDA-afkomuspá félagsins fyrir það ár yrði lækkuð – um tíu milljónir dala – sem var þvert á væntingar fjárfesta á þeim tíma. Bréfin hafa stöðugt lækkað í verði frá þeim tíma og á rúmlega níu mánuðum nemur gengislækkunin samtals 60 prósentum. 60% lækkun á verði bréfa Icelandair frá apríl 2016 Eins og staðan er núna er ljóst að tiltrú fjárfesta á félaginu er lítil. Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, hlut- hafi í Icelandair Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is 8 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r6 markaðurInn 0 8 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :4 8 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 3 1 -B 1 C 4 1 C 3 1 -B 0 8 8 1 C 3 1 -A F 4 C 1 C 3 1 -A E 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 7 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.