Fréttablaðið - 08.02.2017, Síða 20
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Leifur Gunnarsson (t.v.) kontrabassaleikari er listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar Jazz í hádeginu. Hann mun, ásamt hjónunum Vigni Þór Stefánssyni píanóleikara og Guðlaugu Dröfn Ólafsdóttur söngkonu flytja
lög eftir franska kvikmyndatónskáldið og djasspíanistann Michel Legrand á föstudag og laugardag. Ókeypis verður inn á hvora tveggja tónleikana sem haldnir verða í Gerðubergi og í Spönginni. MYND/ANTON BRINK
Michel Legrand er margverðlaunaður
og hefur m.a. unnið þrenn Óskarsverð-
laun. MYND/GETTY NORDIC PHOTOS
Borgarbókasafn býður upp á
tvenna hádegistónleika næst-
komandi föstudag og laugardag
undir heitinu Jazz í hádeginu.
Þar munu hjónin Vignir Þór Stef-
ánsson píanóleikari og Guðlaug
Dröfn Ólafsdóttir söngkona flytja
lög eftir franska kvikmyndatón-
skáldið og djasspíanistann Michel
Le grand. Með þeim verður einnig
Leifur Gunnarsson kontrabassa-
leikari sem auk þess er listrænn
stjórnandi tónleikaraðarinnar.
Fyrri tónleikarnir verða í menn-
ingarhúsinu í Gerðubergi og þeir
síðari í menningarhúsinu í Spöng-
inni í Grafarvogi.
Tónleikaröðin Jazz í hádeginu
hófst haustið 2014 eða fljótlega
eftir að Leifur kom heim úr fram-
haldsnámi í kontrabassaleik. „Ég
fór þess á leit við forsvarsmenn
Gerðubergs að setja af stað meiri
djass í húsinu. Eitt af meginmark-
miðum þessarar tónleikaraðar er
að færa menninguna í úthverf-
in eða nær hlustandanum. Fyrir
tveimur árum varð endurskipu-
lagning hjá Menningarmiðstöð-
inni og starfsemin færð undir hatt
Borgarbókasafns. Þá skapaðist
tækifæri til að fara með tónleika
á fleiri staði, sem við höfum unnið
að, enda er mikill samhljómur þar
með markmiðum okkar. Viðtökurn-
ar hafa verið góðar frá upphafi og
fullt hús á öllum tónleikunum.“
Mjög afkastaMikill
Michel Legrand er margverð-
launaður og afkastamikill fransk-
ur djasspíanisti og tónskáld. Á
löngum ferli sínum hefur hann
hlotið tugi tilnefninga til Óskars-,
Grammy- og Golden Globe verð-
launa og m.a. unnið þrenn Ósk-
arsverðlaun. Þótt flestir þekki
Michel Legrand fyrir kvikmynda-
tónlist hans hefur hann einnig
gefið út nokkrar plötur þar sem
fjöldi heimsfrægra og áhrifamik-
illa djasstónlistarmanna léku með
honum, m.a. Miles Davis og John
Coltrane. „Legrand segir sjálfur
„I put a great deal of faith in mel-
ody“, en það er þar sem ég held að
hann sé sterkastur. Hann smíðar
melódíur úr grípandi mótívum og
endurtekur hendingar og frasa á
skemmtilegan máta sem framkall-
ar vellíðan og ró.“
Dagskrá tónleikanna er byggð
á sönglögum úr smiðju Michel
Legrand sem sum hver eru titillög
þekktra kvikmynda. Þar á meðal
verður fluttur fyrsti stóri smell-
ur hans, „La Valse des Lilas“ eða
„Once Upon a Summertime“ sem
kom út fyrst árið 1950 og er í dag
þekktur djassstandard. „Við skim-
uðum yfir feril Legrands og pikk-
uðum út það sem okkur fannst
djass-vænlegast. Á tónleikunum
munu sum laganna birtast í bún-
ingum sem eru talsvert frá upp-
haflegu útsetningunni en þó á
þann máta að laglínan kemst allt-
af vel til skila. Þetta verða síðustu
tónleikarnir í þessari tónleikaröð
í vetur. Þegar þeim er lokið leggst
ég undir feld og kem svo með nýja
dagskrá fyrir næsta haust.“
koMið víða við
Hjónin Guðlaug og Vignir eiga sér
langa tónlistarsögu. Þau stunduðu
bæði nám við Konunglega tónlist-
arháskólann í Haag í Hollandi.
Eftir heimkomuna hafa þau komið
víða við í íslensku tónlistarlífi.
Guðlaug er söngkennari við
Tónlistarskóla FÍH. Árið 2008 gaf
hún út sólóplötuna Gentle Rain og
árið 2010 gaf hún út geisladisk-
inn Skammdegisóður í samstarfi
við gítarleikarann Ásgeir Ás-
geirsson. Hún hefur einnig unnið
við radd- og söngþjálfun hjá Leik-
félagi Reykjavíkur við sýningar í
Borgarleikhúsinu og við raddþjálf-
un keppenda í sjónvarpsþættinum
The Voice.
Vignir hefur m.a. unnið mikið
í leikhúsum og verið hljómborðs-
leikari í söngleikjunum Mary
Poppins, Billy Elliott og Mamma
Mia í Borgarleikhúsinu. Í dag er
hann kennari við Tónlistarskóla
FÍH þar sem hann kennir á djass-
píanó og hljómborðsfræði.
Nánari upplýsingar um tónleikana
má finna á vef Borgarbókasafns-
ins, www.borgarbokasafn.is. Fyrri
tónleikarnir eru á föstudaginn kl.
12.15 í Gerðubergi í Breiðholti.
Seinni tónleikarnir eru á laugar-
daginn kl. 13.15 og verða haldnir í
Spönginni í Grafarvogi. Ókeypis er
inn á hvora tveggja tónleikana.
vellíðan og ró
Franska tónskáldið Michel Legrand verður í aðalhlutverki á síðustu
tónleikum tónleikaraðarinnar Jazz í hádeginu sem verða í lok vikunnar.
8 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r2 f ó l K ∙ K y n n I n G a r b l a Ð ∙ X X X X X X X X ∙ K y n n I n G a r b l a Ð V I Ð b U r Ð I r
0
8
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
1
-9
E
0
4
1
C
3
1
-9
C
C
8
1
C
3
1
-9
B
8
C
1
C
3
1
-9
A
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
7
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K