Fréttablaðið - 08.02.2017, Side 30
„Nýjustu verðlaun Hjartasteins voru til-
kynnt um síðustu helgi en það voru Lorens-
verðlaun fyrir besta kvikmyndaframleið-
andann á Gautaborgarhátíðinni í Svíþjóð
sem í ár var haldin í fertugasta sinn. Verð-
launin eru kennd við hinn fræga framleið-
anda Lorens Malmstedt sem lést árið 1966
en honum var t.a.m. talið til tekna að hafa
uppgötvað hæfileika leikstjórans Ingmars
Bergman og aðstoðað hann á vegferð hans
inn í sögubækurnar sem einn af bestu kvik-
myndagerðarmönnum heims,“ segir Anton
Máni Svansson, aðalframleiðandi kvik-
myndarinnar Hjartasteins. Fram leiðend ur
mynd ar inn ar eru fjór ir alls, auk Antons eru
það Lise Or heim Stend er, Jesper Mort horst
og Guðmund ur Arn ar Guðmunds son.
Verðlaunin voru veitt í samstarfi við
Kodak og Focus Film, en þeim fylgja 50
rúllur af 35 mm kvikmyndafilmu og frí
framköllun fyrir næstu kvikmynd fram-
leiðanda.
„Þetta er þriðja helgin í röð á þessu ári
sem Hjartasteinn vinnur til verðlauna, en
síðustu helgi vann hún þrenn verðlaun
þegar hún var frumsýnd í Frakklandi og
þar á undan ein verðlaun við frumsýning-
una í Noregi,“ segir Anton þakklátur.
Hjartasteinn vann einnig nýverið svo-
kallaða Scope100 keppni bæði í Portúgal
og í Svíþjóð en sú keppni var sett á lagg-
irnar af dreifingaraðilum og virkar þannig
að valdar eru 10 nýjar hágæðamyndir sem
100 kvikmyndaunnendur í hverju landi fá
að horfa á og gefa atvæði. Sú mynd sem fær
flest atkvæði í hverju landi vinnur keppn-
ina og hlýtur í verðlaun dreifingarsamning
í því landi.
„Hjartasteinn kemur því í kvikmynda-
hús í Svíþjóð og Portúgal á næstunni en
nú þegar er lokið samningum við yfir 10
lönd og fleiri samningar í bígerð,“ segir
hann og bætir við að viðurkenningin sé
gífurlegur heiður þar sem þetta er stærsta
kvikmyndahátíðin í Skandinavíu þar sem
þau keppa við allar bestu nýju norrænu
myndirnar.
„Það er ekki svo oft sem framleiðendur
fá sérstaka viðurkenningu á kvikmynda-
hátíðum og því þykir mér einstaklega
vænt um þessi verðlaun. Svona viður-
kenningar skipta auðvitað miklu máli í
bransa sem snýst svo mikið um að byggja
upp sterkt og traust nafn fyrir framtíðar-
verkefni og til að vekja enn frekari áhuga
hjá næstu mögulegu samstarfsaðilum,“
útskýrir Anton.
Nóg er um að vera hjá Antoni, meðal
annars fleiri verkefni hjá Join Motion
Pictures.
„Hjartasteinn er bara byrjunin. Guð-
mundur er á fullu að skrifa næstu mynd
sína samhliða því að ferðast um heiminn
með Hjartastein. Við vonumst til að sú
mynd komist í framleiðslu á næsta ári
ásamt næstu mynd Hlyns Pálmasonar.
Hlynur útskrifaðist úr Danska kvik-
myndaskólanum 2014 og er ásamt Guð-
mundi talinn einn af mest spennandi nýju
leikstjórunum í Danmörku,“ segir Anton.
Leikstjóri Hjartasteins, Guðmundur
Arnar Guðmundsson, og Anton kynnt-
umst á svipuðum tíma og hann fékk hug-
myndina og hóf að skrifa fyrstu drög að
handritinu.
„Hjartasteinn er um 10 ára ferðlag fyrir
mig og leikstjórann. Árið 2011 tókum við
ákvörðun um að leggja okkur alla fram
næstu tvö árin við framleiðslu tveggja
mjög metnaðarfullra stuttmynda í þeim
tilgangi að sýna að við hefðum það sem
til þyrfti til að gera Hjartastein á þeim
gæðastandard sem okkur fannst sagan
krefjast. Í framhaldi af því hafa báðar stutt-
myndirnar, Hvalfjörður og Ártún, ferðast
um hátt í 250 kvikmyndahátíðir og unnið
um 70 alþjóðleg verðlaun. Velgengni
þeirra gerði okkur svo kleift að fjármagna
Hjartastein og fá til liðs við okkur sterka
samstarfsaðila á öllum sviðum þannig að
mögulegt var að vanda enn betur til verka
við gerð hennar en okkar fyrri verka,“ segir
Anton ánægður og bætir við að þetta sé
mikil vinna og hann óski sér þess reglu-
lega að fleiri klukkustundir væru í sólar-
hringnum. gudrunjona@frettabladid.is
Besti framleiðandi ársins
Anton Máni Svansson, framleiðandi kvikmyndarinnar Hjartasteins, sem hlotið hefur
einróma lof gagnrýnenda, hlaut á dögunum verðlaun sem besti kvikmyndaframleiðand-
inn á Gautaborgarhátíðinni í Svíþjóð sem þetta árið var haldin í fertugasta sinn.
Anton Máni Svansson, aðal fram leiðandi Hjarta steins. FréttAblAðið/Anton brink
Anton Máni tekur við verðlaunum.
Mynd/Anton
Okkar elskaði
Helgi Jóhannsson
er látinn.
Hjördís M. Bjarnason
Gunnar Fjalar Helgason Kristrún Kristjánsdóttir
Óttar Örn Helgason Þorgerður Arna Einarsdóttir
Hallur Már Helgason
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, sonur og bróðir,
Björgvin Sveinsson
Torfastöðum II,
Grafningi,
lést þann 1. febrúar. Útför hans fer fram
frá Selfosskirkju föstudaginn 10. febrúar
kl. 13.00. Jarðsett verður í Úlfljótsvatnskirkjugarði.
Rúna Einarsdóttir
Helena Björgvinsdóttir
Elín Snorradóttir
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar
og tengdamóðir,
Helga Jónsdóttir
dvalarheimilinu Grund, er látin.
Útför hennar fer fram fimmtudaginn
9. febrúar 2017 kl. 13.00 frá Neskirkju.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Hjördís Sigurðardóttir Hans Þór Jensson
Gerður S. Sigurðardóttir Eyjólfur Þór Sæmundsson
og fjölskyldur þeirra.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Eiður Svanberg Guðnason
fyrrv. sendiherra,
Bjarkarási 18, Garðabæ,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
fimmtudaginn 9. febrúar klukkan 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Sumarbúðir í Reykjadal fyrir fötluð börn og ungmenni,
reikningsnúmer: 525-26-755, kt. 630269-0249.
Helga Þóra Eiðsdóttir Ingvar Örn Guðjónsson
Þórunn Svanhildur Eiðsdóttir Gunnar Bjarnason
Haraldur Guðni Eiðsson Ragnheiður Jónsdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigríður Sigurjónsdóttir
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
lést á dvalarheimilinu Höfða
föstudaginn 3. febrúar. Útförin fer fram frá
Akraneskirkju föstudaginn 10. febrúar kl. 13.00. Þeim sem
vilja minnast hennar er bent á dvalarheimilið Höfða.
Guðrún Þórðardóttir Ingileifur S. Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Vegna útfarar Guðmundar Péturssonar,
fyrrverandi forstöðumanns, verður lokað í dag,
miðvikudaginn 8. febrúar, frá kl. 12.30.
Tilraunastöð Háskóla Íslands
í meinafræði að Keldum
Ástkær móðir okkar,
Elínborg Gunnarsdóttir
Læk, Skíðadal, til heimilis að
dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík,
lést 27. janúar síðastliðinn. Hún
verður jarðsungin frá Dalvíkurkirkju,
föstudaginn 10. febrúar kl. 13.30. Þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Vallakirkju.
Jóhanna Sigurjónsdóttir Hreinn Andres Hreinsson
Gunnar Sigurjónsson Guðrún S. Hilmisdóttir
Sigurður Sigurjónsson Elena Teuffer
Anna Sólveig Sigurjónsdóttir Rögnvaldur Stefánsson
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar kæru
Katrínar Árnadóttur
frá Skógum í Öxarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hlévangs
sem annaðist hana af alúð og hlýju.
Gunnar Már Yngvason Ásta Pálína Stefánsdóttir
Sigríður Katrínar Yngvadóttir
Hrefna Yngvadóttir
ömmubörn og langömmubörn.
8 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r14 t í M a M ó t ∙ f r É t t a b L a Ð I Ð
tímamót
0
8
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
3
1
-8
A
4
4
1
C
3
1
-8
9
0
8
1
C
3
1
-8
7
C
C
1
C
3
1
-8
6
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
7
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K