Fréttablaðið - 08.02.2017, Page 36

Fréttablaðið - 08.02.2017, Page 36
Young Thug, sem heitir réttu nafni Jeffery Lamar Williams og er fæddur árið 1991, hóf feril sinn eins og svo margir rapparar frá höfuðborg Georgíu-fylkis – með því að gefa út mixteip upp á eigin spýtur og fá í kjölfarið spilun á útvarpsstöðvum borgarinnar sem einbeita sér að rapptónlist. Í fram- haldinu hitti Young Thug Gucci Mane sem fékk hann til starfa hjá plötufyrirtæki sínu 1017 Records. Gucci Mane hefur verið duglegur við að fá til sín unga tónlistarmenn og koma þeim upp á stjörnuhimin- inn – en áður hefur hann haft Migos, Waka Flocka Flame og Mike Will undir verndarvæng sínum. Í framhaldinu gefur Young Thug út mixteipið 1017 Thug sem vakti nokkra athygli hjá flestum þeim sem fylgjast með þessari tónlist af einhverri alvöru. Á mixteipinu var augljóst að um nokkuð sérstakan tónlistarmann var að ræða sem var ekki mikið að hugsa um hvað telst hefðbundið í nokkrum skilningi þrátt fyrir að uppgangur hans í tón- listarsenu Atlanta-borgar hafi verið nokkuð klassískur. Eins og Gucci Mane virðist Kanye West aldrei vera langt undan þegar rapparar byrja að fá á sig geisla sviðsljóssins en í tilfelli Young Thug var það nokkuð óbeint – lagið Danny Glover með Young Thug varð gríðarlega heitt þegar það kom út árið 2013 og þá sér- staklega þegar myndband nokkurt fór á flug á netinu þar sem Kanye West sást, augljóslega mjög drukk- inn, á næturklúbb „fíla“ Danny Glover gríðarlega mikið. Stundum þarf ekki meira til. Lagið vakti ekki síður athygli fyrir sérstaka skræka rödd Young Thug, lagið skartaði líka afar sérstökum myndlíkingum þar sem Young Thug líkir meðal annars hæð peningastaflans síns við „tvo dverga,“ og nánast ankannaleg til- finning hans fyrir hrynjandi sem mátti heyra í öðru versi lagsins sem ásamt undarlegri og síbreytilegri rödd hans hefur spilað stóra rullu í velgengni hans allt til dagsins í dag. Risaleki og útvarpsvænn lífsstíll Þessi einkenni rapparans sem glitti í í Danny Glover áttu eftir að brjótast fram í næstu verkefnum hans. Hann skrifaði árið 2014 undir samning hjá plötufyrirtækinu 300 Entertainment sem er í eigu hins nánast goðsagnakennda Lyor Cohen, mannsins sem uppgötvaði til að mynda hljómsveitirnar A Tribe Called Quest og De La Soul og í framhaldinu gefur Young Thug út gífurlegt magn tónlistar. Þó var ekki öll þessi tónlist gefin út í þökk hans, en nokkur hundruð laga sem Young Thug var að vinna að láku úr stúdíó- inu. Lekanum svaraði hann með því að gefa út Slime Season seríuna af mixteipum – en þau urðu þrjú og á þeim gaf hann mikið af þessari leka- tónlist frítt eftir að lögin höfðu verið mixuð og masteruð. Lagið Lifestyle með Young Thug og rapparanum Rich Homie Quan fékk gríðarlega spilun sumarið 2014 og var klárlega lag sumarsins. Þar með sannaðist að Young Thug var ekki bara tónlistarmaður sem virk- aði á mixteipum heldur hafði hann líka möguleika í meginstraumi tón- listariðnaðarins. Á síðasta ári gaf Young Thug svo út plötuna No, my name is Jeffery, en hún vakti strax mikla athygli og þá sérstaklega fyrir plötuumslagið sjálft en þar var ljósmynd af honum klæddum upp í íburðarmikinn kjól. Einnig vakti myndbandið við lagið Wyclef Jean athygli, en það snýst allt um hversu óáreiðanlegur og erfiður Young Thug er í umgengni og er frekar fyndið. Stórt ár í vændum Nú er að ganga í garð nokkuð spennandi ár fyrir feril Young Thug – hann hefur sagst ætla að gefa út sína fyrstu eiginlegu breiðskífu - Hy!£UN35 (já, þetta er væntan- legur titill hennar) og er að fara á tónleikaferðalag um Evrópu með Drake. Lyor Cohen er nú hættur hjá 300 Entertainment en hann færði sig yfir til YouTube Music – svo það verður mjög forvitnilegt að sjá hvaða stefnu ferill Young Thug tekur. stefanthor@frettabladid.is Mjúkur fantur frá Atlanta Rapparinn Young Thug, sem mun spila í Laugardalshöllinni í sumar, er nokkuð merkilegur drengur og oft bent á hann sem holdgerving þeirrar stefnu sem rapptónlist nútímans hefur verið að taka síðustu árin. Rapparinn Young Thug mun mæta til landsins í sumar og kæta margan rappáhugamanninn. NORDICPHOTOS/GETTY Mennirnir bAkvið tjöldin Gucci Mane Kom Young Thug á framfæri fyrstu árin. Lyor Cohen Lyor er einn helsti áhrifamaður í hiphop-geiranum og hefur verið með fingurna í bransanum síðan sirka 1984. Var áður stjórnandi plötufyrirtækisins sem Young Thug er á mála hjá. Birdman Young Thug hefur oft verið orð- aður við hiphop-mógúlinn Bird- man sem stofnaði meðal annars Cash Money Records. Alex Tumay Að lokum má nefna upptöku- stjórann Alex Tumay sem hefur átt stóran hlut í því að gefa Young Thug sérstakan hljóm sinn en var einnig svo óheppinn að stjórna upptökum á efninu sem lenti í stóra lekanum. Plötur Young Thug hefur ekki enn gefið út plötu. Hann hefur gefið út fjöldann allan af mixteipum og hér eru aðeins svokölluð „comm- ercial mixtapes“: Barter 6 (2015) I’m Up (2016) Slime Season 3 (2016) Jeffery (2016) 8 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r20 L í f I Ð ∙ f r É T T a b L a Ð I Ð Lífið 0 8 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :4 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 3 1 -A 7 E 4 1 C 3 1 -A 6 A 8 1 C 3 1 -A 5 6 C 1 C 3 1 -A 4 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 7 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.