Fréttablaðið - 08.02.2017, Qupperneq 36
Young Thug, sem heitir réttu nafni Jeffery Lamar Williams og er fæddur árið 1991, hóf feril sinn eins og svo margir rapparar frá
höfuðborg Georgíu-fylkis – með
því að gefa út mixteip upp á eigin
spýtur og fá í kjölfarið spilun á
útvarpsstöðvum borgarinnar sem
einbeita sér að rapptónlist. Í fram-
haldinu hitti Young Thug Gucci
Mane sem fékk hann til starfa hjá
plötufyrirtæki sínu 1017 Records.
Gucci Mane hefur verið duglegur
við að fá til sín unga tónlistarmenn
og koma þeim upp á stjörnuhimin-
inn – en áður hefur hann haft
Migos, Waka Flocka Flame og Mike
Will undir verndarvæng sínum.
Í framhaldinu gefur Young Thug
út mixteipið 1017 Thug sem vakti
nokkra athygli hjá flestum þeim
sem fylgjast með þessari tónlist af
einhverri alvöru. Á mixteipinu var
augljóst að um nokkuð sérstakan
tónlistarmann var að ræða sem var
ekki mikið að hugsa um hvað telst
hefðbundið í nokkrum skilningi
þrátt fyrir að uppgangur hans í tón-
listarsenu Atlanta-borgar hafi verið
nokkuð klassískur.
Eins og Gucci Mane virðist Kanye
West aldrei vera langt undan þegar
rapparar byrja að fá á sig geisla
sviðsljóssins en í tilfelli Young
Thug var það nokkuð óbeint –
lagið Danny Glover með Young
Thug varð gríðarlega heitt þegar
það kom út árið 2013 og þá sér-
staklega þegar myndband nokkurt
fór á flug á netinu þar sem Kanye
West sást, augljóslega mjög drukk-
inn, á næturklúbb „fíla“ Danny
Glover gríðarlega mikið. Stundum
þarf ekki meira til. Lagið vakti ekki
síður athygli fyrir sérstaka skræka
rödd Young Thug, lagið skartaði líka
afar sérstökum myndlíkingum þar
sem Young Thug líkir meðal annars
hæð peningastaflans síns við „tvo
dverga,“ og nánast ankannaleg til-
finning hans fyrir hrynjandi sem
mátti heyra í öðru versi lagsins sem
ásamt undarlegri og síbreytilegri
rödd hans hefur spilað stóra rullu í
velgengni hans allt til dagsins í dag.
Risaleki og útvarpsvænn lífsstíll
Þessi einkenni rapparans sem
glitti í í Danny Glover áttu eftir að
brjótast fram í næstu verkefnum
hans. Hann skrifaði árið 2014 undir
samning hjá plötufyrirtækinu 300
Entertainment sem er í eigu hins
nánast goðsagnakennda Lyor
Cohen, mannsins sem uppgötvaði
til að mynda hljómsveitirnar A
Tribe Called Quest og De La Soul og
í framhaldinu gefur Young Thug út
gífurlegt magn tónlistar. Þó var ekki
öll þessi tónlist gefin út í þökk hans,
en nokkur hundruð laga sem Young
Thug var að vinna að láku úr stúdíó-
inu. Lekanum svaraði hann með því
að gefa út Slime Season seríuna af
mixteipum – en þau urðu þrjú og á
þeim gaf hann mikið af þessari leka-
tónlist frítt eftir að lögin höfðu verið
mixuð og masteruð.
Lagið Lifestyle með Young Thug
og rapparanum Rich Homie Quan
fékk gríðarlega spilun sumarið 2014
og var klárlega lag sumarsins. Þar
með sannaðist að Young Thug var
ekki bara tónlistarmaður sem virk-
aði á mixteipum heldur hafði hann
líka möguleika í meginstraumi tón-
listariðnaðarins.
Á síðasta ári gaf Young Thug svo
út plötuna No, my name is Jeffery,
en hún vakti strax mikla athygli og
þá sérstaklega fyrir plötuumslagið
sjálft en þar var ljósmynd af honum
klæddum upp í íburðarmikinn kjól.
Einnig vakti myndbandið við lagið
Wyclef Jean athygli, en það snýst allt
um hversu óáreiðanlegur og erfiður
Young Thug er í umgengni og er
frekar fyndið.
Stórt ár í vændum
Nú er að ganga í garð nokkuð
spennandi ár fyrir feril Young Thug
– hann hefur sagst ætla að gefa út
sína fyrstu eiginlegu breiðskífu
- Hy!£UN35 (já, þetta er væntan-
legur titill hennar) og er að fara á
tónleikaferðalag um Evrópu með
Drake. Lyor Cohen er nú hættur
hjá 300 Entertainment en hann
færði sig yfir til YouTube Music –
svo það verður mjög forvitnilegt að
sjá hvaða stefnu ferill Young Thug
tekur. stefanthor@frettabladid.is
Mjúkur fantur
frá Atlanta
Rapparinn Young Thug, sem mun spila
í Laugardalshöllinni í sumar, er nokkuð
merkilegur drengur og oft bent á hann sem
holdgerving þeirrar stefnu sem rapptónlist
nútímans hefur verið að taka síðustu árin.
Rapparinn Young Thug mun mæta til landsins í sumar og kæta margan rappáhugamanninn. NORDICPHOTOS/GETTY
Mennirnir bAkvið
tjöldin
Gucci Mane
Kom Young Thug á framfæri
fyrstu árin.
Lyor Cohen
Lyor er einn helsti áhrifamaður í
hiphop-geiranum og hefur verið
með fingurna í bransanum síðan
sirka 1984. Var áður stjórnandi
plötufyrirtækisins sem Young
Thug er á mála hjá.
Birdman
Young Thug hefur oft verið orð-
aður við hiphop-mógúlinn Bird-
man sem stofnaði meðal annars
Cash Money Records.
Alex Tumay
Að lokum má nefna upptöku-
stjórann Alex Tumay sem hefur
átt stóran hlut í því að gefa Young
Thug sérstakan hljóm sinn en var
einnig svo óheppinn að stjórna
upptökum á efninu sem lenti í
stóra lekanum.
Plötur
Young Thug hefur ekki enn gefið
út plötu. Hann hefur gefið út
fjöldann allan af mixteipum og
hér eru aðeins svokölluð „comm-
ercial mixtapes“:
Barter 6 (2015)
I’m Up (2016)
Slime Season 3 (2016)
Jeffery (2016)
8 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r20 L í f I Ð ∙ f r É T T a b L a Ð I Ð
Lífið
0
8
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
3
1
-A
7
E
4
1
C
3
1
-A
6
A
8
1
C
3
1
-A
5
6
C
1
C
3
1
-A
4
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
7
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K