Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2016, Page 36
Helgarblað 5.–8. febrúar 2016
Göldrótt súpa og
gómsætur humar
Eyrarbraut 3, Stokkseyri · Sími: 483 1550
info@fjorubordid.is · www.fjorubordid.is
Minnistöflur
www.birkiaska.is
Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem
er undir álagi og fæst við flókin verkefni.
Hentar vel eldri borgurum, lesblindum og
nemendum í prófum. Dregur úr streitu,
eykur ró og bætir skap.
Netlu-, túnfífla- og birkilaufs töflur örva
brennslu og meltingu og eru bjúglosandi.
Sérstaklega er mælt með vörunni til að
hreinsa líkamann.
Colonic Plus
Kehonpuhdistaja
Bodyflex
Strong
Bodyflex Strong mýkir liðamót og dregur
úr verkjum í þeim og styrkir heilbrigði
burðarvefja líkamans. Inniheldur hvorki
laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Birkilaufstöflur
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á vökva-
jafnvægi bæði líkama og húðar og örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum, losar vatn úr líkamanum og
dregur úr bólgum.
Evonia færir hárrótinni næringu og styrk
til þess að efla hárvöxt. Evonia er hlaðin
bætiefnum sem næra hárið og gera það
gróskumeira.
Bætiefni ársins í Finnlandi 2012.
Evonia
28 Sport
Þ
að kann að vera ábata-
samt að vera íþróttamaður í
fremstu röð í sinni grein, sér-
staklega í vinsælum íþrótta-
greinum, en það er ekkert
slor að vera fyrrverandi íþróttamað-
ur heldur ef marka má lista Forbes
yfir íþróttamenn sem hafa hætt
keppni. Þeir sem komast í slíka stöðu
eru almennt íþróttamenn sem unnu
hörðum höndum að því að byggja
upp sjálfa sig sem eftirsóknarverða
markaðsvöru. Þeir skrifuðu und-
ir auglýsingasamninga, voru sýni-
legir sem góðar fyrirmyndir og not-
uðu samböndin sem þeir komust í
á meðan þeir voru á toppnum til að
tryggja framtíð sína.
Á listanum má meðal annars
finna Michael Jordan. Hann var um
árabil besti körfuboltamaður heims.
Jordan, í samstarfi við íþróttavöruris-
ann Nike, kom á fót vörumerki þar
fyrir innan sem er enn eitt það allra
vinsælasta og í fyrra var hann um-
talsvert launahærri en félagar hans
sem enn eru í sportinu. Jordan hafði
100 milljónir dollara upp úr krafs-
inu árið 2014, meira en hæstlaun-
aði íþróttamaður heims fékk á sama
tíma. Íþróttavörulína hans hjá Nike
velti 2,6 milljörðum dollara árið
2015, sem var 17 prósenta aukning
milli ára.
Á „eftirlaunum“
Þeir sem eru efstir á lista Forbes
yfir íþróttamenn „á eftirlaun-
um“ eru langflestir körfubolta-
menn eða golfarar, en þó kom-
ast fleiri greinar á blað. Þeir eru
allir karlkyns og á aldrinum 33–
85 ára. Efstur er, sem áður
sagði, körfuboltastjarnan
Michael Jordan.
Þar næstur er Dav-
id Beckham, fótbolta-
maðurinn knái, með 75
milljónir dollara í tekjur.
Hans helstu tekjur koma
frá auglýsingasamningum en þær
gerðu það einnig á meðan hann var
enn að spila. Hann hafði 75 milljónir
dollara upp úr krafsinu.
Golfarinn Arnold Palmer, sem
er 85 ára gamall, vann síðast PGA-
mótaröðina árið 1973 en skapar sér
enn gríðarlegar tekjur sem tengj-
ast nafni hans vegna framleiðslu
íþróttavöru og drykkjarfanga. Beinar
tekjur hans voru 42 milljónir dollara.
Golfarinn Jack Nicklaus hætti
keppni árið 2005 en hann hefur stór-
grætt á hönnun golfvalla og hefur
fyrirtæki hans hannað 390 á heims-
vísu. Þá eru íþróttavörur tengdar
nafni hans sem mokseljast. Hann
hafði 28 milljónir dollara í laun.
Jerry Richardsson hefur ekki
spilað fyrir lið í ameríska fótbolt-
anum frá árinu 1960, en hann var
klókur, stofnaði veitingastaði og
keypti svo NFL-liðið Carolina
Panthers. Hann hafði 23
milljónir dollara í laun.
Körfuboltamaður-
inn Shaquille O'Neal
hætti árið 2011 að
spila, en með snjallri
markaðssetningu hef-
ur hann gert aug-
lýsingasamninga, framleitt drykki,
skartgripi og fótbolta með sínu nafni
og stórgrætt á því. Hann fékk því 21
milljón dollara í laun.
Annar körfuboltamaður, Magic
Johnson, hefur gert það gott frá því að
hann hætti að spila árið 1996. Hann
er eigandi The Los Angeles Dodgers
og kvennaliðsins Los Angeles Sparks.
Hann fékk því, eins og O'Neal, 21
milljón dollara í laun. Hann fékk því
20 milljón dollara í laun.
Fótboltamaðurinn Pele er orðinn
74 ára gamall og fékk talsvert í sinn
hlut, sérstaklega eftir heimsmeist-
aramótið í fótbolta árið 2014 í Bras-
ilíu þegar fjárfestar og fyrirtæki
vildu ólm tengjast goðsögninni.
Hann er með samninga við Proct-
er & Gamble, Volkswagen, Subway
og flugfélagið Emrites, og þá eru
bara fáeinir nefndir. Alls 16 milljónir
dollara urðu því hans.
Greg Norman hætti í golfi árið
2012, en núna einbeitir hann sér
að markaðssetningu á eigin vörum,
starfar sem golfsérfræðingur hjá
Fox-sjónvarpsstöðinni og framleið-
ir vín, gleraugu og fleira. Fyrir þetta,
og fleira, hafði hann 16 milljónir
dollara í laun. n
Hættir að spila og
mokgræða
Michael Jordan hefur komið sér sérstaklega vel fyrir
Gerir það gott
Michael Jordan er
ekki á flæðiskeri
staddur.