Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2016, Qupperneq 42
Helgarblað 5.–8. febrúar 2016
Blökkumaðurinn
sem átti sér draum
Frábær heimildaþáttur um mannréttindabaráttu
R
ÚV sýnir iðulega áhugaverðar
heimildamyndir. Einn slíkur
heimildamyndaþáttur er
nú sýndur vikulega, er í tíu
hlutum og fjallar um sjöunda ára
tuginn, en þar var sannarlega margt
að gerast. Einn þáttur fjallaði um
morðið á Kennedy forseta og niður
staðan þar var að ekki hefði verið
um samsæri að ræða. Margir fussa
yfir því, samsæri þykir alltaf miklu
áhugaverðara og meira spennandi
en framganga sjúks einstaklings.
Kennedy kom einnig til tals
í þættinum sem sýndur var fyrr
í þessari viku, en þar var fjallað
um mannréttindabaráttu blökku
manna í Bandaríkjunum undir for
ystu Martins Luthers King. Eftir
maður Kennedys, Johnson, var
einnig áberandi í þættinum, en
King átti samskipti við báða þessa
forseta. Það má segja báðum forset
unum til hróss að þeim ofbauð of
beldið gagnvart blökkumönnum og
gripu til aðgerða.
Það sem gerir ekki síst að verk
um að maður situr límdur fyrir
framan skjáinn meðan á þáttunum
stendur er hin mikla og góða notk
un á gömlum sjónvarps myndum.
Í þættinum um baráttu blökku
manna fyrir rétti sínum voru sýndar
myndir af heiftúðugum hvítum
karlmönnum úr Suðurríkjunum
þar sem þeir misþyrmdu svörtu
fólk. Þessir sömu menn ruddu út úr
sér svívirðingum um blökkumenn
og andlit þeirra voru afmynduð af
heift. Í þessum hópi voru stjórn
málamenn og lögreglumenn sem
töldu sig vera að gæta hags almenn
ings – en í huga þeirra var almenn
ingur einungis hvítur. Þessar öfl
ugur fréttamyndir eru áminning til
okkar um að gleyma aldrei mennsk
unni. Í myndinni var einnig sagt frá
ofbeldisverkum og morðum, þar
á meðal á fjórum litlum stúlkum
í sunnudagaskóla. Það er sárt til
þess að vita að hægt sé að hata fólk,
meira að segja lítil börn, svona heitt
vegna húðlitar þess.
Martin Luther King var í for
grunni í myndinni og sýndir voru
bútar úr innblásnum ræðum hans.
Það var ekki annað hægt en að hríf
ast af þessum mælska manni sem
átti sér draum og boðaði andspyrnu
án ofbeldis. Sannarlega maður
sem átti þátt í að breyta heimin
um til hins betra. Hans verður ætíð
minnst.
Myndinni lauk á einkar
skemmtilegan hátt, en þá var sýnd
upptaka af ræðu sem Sammy
Davis Jr. hélt einhvern tíma á sjö
unda áratugnum. Þar sagði hann
að fimm ára svart barn gæti hugs
anlega orðið forseti Bandaríkjanna
eftir 50 ár. Þetta var góður endir á
frábærum þætti. Þarna voru að
standendur þáttarins greinilega að
nikka til Obama forseta. Já, sumir
draumar rætast! n
dv.is/blogg/skaklandid
Stefán Bergsson skrifar
Skáklandið
Þ
að er þekkt umræða í skák
heiminum að ríkjandi
heimsmeistari þurfi ekki
endilega að vera sterk
asti skákmaðurinn. Líkleg
ast hefur sú umræða átt rétt á sér
ansi oft; ríkjandi heimsmeistar
ar hafa síður en svo alltaf verið far
sælir á meðan þeir hafa titilinn. Og
að sama skapi er þekkt sú umræða
hverjir eru bestu skákmenn sögunn
ar sem aldrei urðu heimsmeistarar.
Hafa þar ýmis nöfn verið nefnd eins
og t.d. David Bronstein sem heim
sótti Ísland nokkrum sinnum. En nú
er ríkjandi heimsmeistari Norðmað
urinn massaði Magnús Carlsen. Á
síðasta ári tók ferill hans smá niður
sveiflu. Á EM landsliða í Laugardals
höll fór hann t.d. „niður í logum“ svo
gripið sé til þekkts skákfrasa. Stiga
munurinn á honum og hans helstu
keppinautum var þó það mikill að
hann hélt efsta sæti heimslistans ör
ugglega þrátt fyrir útreiðina í Reykja
vík. Töluverð eftirvænting ríkti eftir
TATASTEEL skákmótinu í Hollandi
sem lauk um síðustu helgi. Þar
voru komnir saman fjórtán af bestu
skákmönnum heims sem tefldu
allir við alla, alls þrettán umferðir.
Heimsmeistarinn fór rólega af stað
og gerði jafntefli í fyrstu umferðun
um. En um mitt mótið setti hann
snögglega í gírinn og vann hverja
skákina á fætur annarri. Niður staðan
var sú að hann hlaut níu vinninga
og varð einn efstur. Níu vinningar af
þrettán í svo sterku móti er ansi góð
ur árangur og var Carlsen jafnframt
taplaus: vann fimm skákir og gerði
átta jafntefli.
Það er því algerlega óumdeilt
um þessar mundir að Magnús Carl
sen er besti skákmaður heims og
jafnvel má ganga svo langt að kalla
hann „langsterkasta“ skákmann
heims. Spurningin hver sé annar
besti skákmaður heims sýnir ef til
vill hversu langbestur Magnús er.
Eflaust kæmu tíu mismunandi svör
ef 50 manns yrðu spurð. n
Carlsen er bestur!
Sjónvarpsdagskrá
RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport
Föstudagur 5. febrúar
16.55 Íslendingar (Jón Páll
Sigmarsson) e
17.45 Táknmálsfréttir (157)
17.55 KrakkaRÚV (22:365)
17.56 Um hvað snýst þetta
allt (What's the Big Idea)
18.00 Lundaklettur (2:32)
18.07 Vinabær Danna tígurs
18.20 Sara og önd (1:33)
18.28 Drekar (1:8)
18.50 Öldin hennar (8:52) e
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir (107)
19.30 Veður
19.40 Augnablik - úr 50 ára
sögu sjónvarps (6:50)
20.00 Gettu betur (1:7)
(MR - FG) Spurningar-
keppni framhalds-
skólanna þarf vart að
kynna og einkennist af
stemningu, spennu og
virkri þátttöku allra sem
að koma. Spyrill er Björn
Bragi Arnarsson.
21.10 Vikan með Gísla
Marteini
21.55 Vera Bresk sakamála-
mynd byggð á sögu
eftir Ann Cleeves um
Veru Stanhope rann-
sóknarlögreglukonu á
Norðymbralandi. Leiðir
Veru og fyrrum vinnu-
félaga hennar liggja
saman á ný þegar hinn
síðarnefndi verður fyrir
fólskulegri árás.
23.25 Twilight Saga:
Breaking Dawn 5,5
(Ljósaskipti: Dögun II)
Margverðlaunuð og
mögnuð ævintýramynd
þar sem vampírur,
varúlfar og mennskir
menn mætast í átökum
og ástum. e
01.15 Víkingarnir (3:10)
(Vikings II) Ævintýraleg og
margverðlaunuð þáttaröð
um Ragnar Loðbrók og
félaga hans . e
02.00 Útvarpsfréttir í
dagskrárlok (21)
Stöð 2 Sport 2
Stöð 3
10:30 FA Cup 2015/2016
(Carlisle - Everton)
12:10 FA Cup 2015/2016
(Colchester - Tottenh.)
13:50 Ensku bikarmörkin
14:20 Haukar - Tindastóll
15:55 Körfuboltakvöld
17:30 World Strongest Man
18:00 Bundesliga Weekly
18:30 La Liga Report
19:00 Grindavík - Stjarnan B
21:05 Road to Super Bowl 50
22:00 Körfuboltakvöld
23:35 Grindavík - Stjarnan
01:10 NBA (Strength in Num-
bers - GS Warriors)
02:30 NBA Dallas Maver-
icks - San Antonio
Spurs B
13:05 Everton - Newcastle
14:45 Sunderland - Man.
City
16:25 Premier League World
16:55 Watford - Chelsea
18:35 Football League
Show 2015/16
19:05 Leicester - Liverpool
20:45 PL Match Pack
2015/2016
21:15 Premier League Previ-
ew 2015/2016
21:45 Man. Utd. - Stoke
23:25 Arsenal - Sout-
hampton
17:35 Masterchef USA (6:19)
18:20 Ravenswood (3:10)
19:05 Guys With Kids (7:17)
19:30 Comedians (7:13)
19:55 Suburgatory (10:13)
20:20 NCIS Los Angeles
21:05 Justified (9:13)
21:50 First Dates (3:8)
Frábærir þættir þar
sem fylgst er með
stefnumótum nokkurra
einstaklinga í hverjum
þættir.
22:40 Supernatural (3:23)
Níunda þáttaröðin
af yfirnáttúrlegu
spennuþáttunum um
Winchester bræðurna.
23:25 Sons of Anarchy (4:14)
00:30 Comedians (7:13)
00:55 Suburgatory (10:13)
01:20 NCIS Los Angeles
02:05 Justified (9:13)
02:50 First Dates (3:8)
03:40 Tónlistarmyndbönd
frá Bravó
06:00 Pepsi MAX tónlist
08:00 Everybody Loves
Raymond (12:25)
08:20 Dr. Phil
09:00 Hotel Hell (4:8)
09:50 Minute To Win It
10:35 Pepsi MAX tónlist
13:15 King of Queens
13:40 Dr. Phil
14:20 America's Funniest
Home Videos (17:44)
14:45 The Biggest Loser -
Ísland (3:11)
15:55 Jennifer Falls (5:10)
16:20 Reign (10:22)
17:05 Philly (5:22)
17:50 Dr. Phil
18:30 The Tonight Show
with Jimmy Fallon
19:10 The Late Late Show
with James Corden
19:50 The Muppets (11:16)
20:15 The Voice (24:25)
21:45 The Voice (25:25)
23:15 The Tonight Show
with Jimmy Fallon
23:55 Ray Donovan (12:12)
Vandaðir þættir um
harðhausinn Ray
Donovan sem reynir að
beygja lög og reglur sem
stundum vilja brotna.
00:40 Rookie Blue (7:13)
Fjórða þáttaröðin af
lögregluþáttunum
Rookie Blue er komin
aftur á skjáinn. Fylgst
er með lífi og störfum
nýútskrifaðra nýliða í
lögreglunni sem þurfa
ekki aðeins að glíma við
sakamenn á götum úti
heldur takast á við sam-
starfsmenn, fjölskyldu
og eiga um leið við eigin
bresti.
01:25 State Of Affairs (5:13)
02:10 House of Lies (1:12)
02:35 The Walking Dead
(2:16)
03:20 Hannibal (5:13)
04:05 The Tonight Show
with Jimmy Fallon
04:45 Pepsi MAX tónlist
07:00 Barnatími Stöðvar 2
07:45 Batman: The Brave
and the bold
08:05 The Middle (15:24)
08:25 Grand Designs (2:7)
09:15 Bold and the Beautiful
09:40 Doctors (35:175)
10:25 Hart of Dixie (20:22)
11:10 Guys With Kids (17:17)
11:35 Eldhúsið hans Eyþórs
12:10 Bad Teacher (12:13)
12:35 Nágrannar
13:00 Boyhood
15:50 Foodfight
17:20 Bold and the Beautiful
17:40 Nágrannar
18:05 The Simpsons (11:22)
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:47 Íþróttir
18:55 Ísland today
19:25 Bomban (4:12)
20:15 American Idol (9:30)
21:00 American Idol (10:30)
22:25 Jarhead 7,1 (Land-
göngulúðar) Hárbeitt og
kómísk sýn á líf ungra
bandarískra landgöngu-
liða sem sendir eru lítt
undirbúnir á líkama og
sál á vígvöll blóðugra og
stjórnlausra átaka.
00:25 Paranormal Activity:
The Marked Ones 5,0
Spennutryllir frá árinu
2014 sem fjallar um
Jesse sem fer að upplifa
dularfulla hluti eftir að
nágranni hans fellur frá.
01:50 Frozen Ground 6,4
Spennumynd frá 2012
með Nicolas Cage, John
Cusack og Vanessa
Hudgens í aðalhlut-
verkum. Sönn saga
lögreglumanns sem
einsetti sér að hand-
sama fjöldamorðingja
sem myrti á milli 18 og
25 stúlkur í Alaska á
árunum 1970-1983.
03:35 Cloud Atlas 7,5 Mögnuð
mynd með einvalaliði
leikara á borð við Tom
Hanks, Halle Berry og
Hugh Grant.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Við tækið
Johnson forseti og Martin
Luther King Forsetanum ofbauð
ofbeldið gagnvart blökkumönnum.
V A R M A D Æ L U R
Gæði, þjónusta og gott verð.
Hámarks orkusparnaður.
NÝJUNG Í LOFT Í VATN VARMADÆLUM
EINFÖLD Í UPPSETNINGU
ÁLAGSSTÝRÐ
HLJÓÐLÁT
ALLT AÐ 80% ORKUSPARNAÐUR
ÍBÚÐARHÚS - SUMARBÚSTAÐ - IÐNAÐARHÚS
COP 5,0
34 Menning Sjónvarp