Fréttablaðið - 03.04.2017, Page 1

Fréttablaðið - 03.04.2017, Page 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —7 9 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 3 . a p r Í l 2 0 1 7 FrÍtt VERTU LAUS VIÐ LIÐVERKI www.artasan.is N1 kortið færir þér bæði afslátt og punkta Sæktu um N1 kortið á n1.is Munndreifitöflur 250 mg Pinex® Smelt H V ÍT A H Ú S IÐ / A ct av is 5 1 1 0 7 2 Fréttablaðið í dag sport Valur fyrsta liðið í 11 ár sem kemst í undanúrslit í Evrópukeppni. 12-15 lÍFið Hljómsveitin Agent Fresco spilaði í Armeníu á dögunum en talið er að þeir séu fyrstir íslenskra tónlistarmanna til að halda tónleika þar í landi. 22 plús sérblað l Fólk *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 Gef mér fimm! Arnar Máni Vignisson er fimm ára patti og lét sig ekki muna um að gefa forseta Íslands spaðafimmu þegar þeir hittust á Bessastöðum í gær. Arnar er einhverfur og fór ásamt hópi barna og aðstandanda þeirra á fund forseta til að vekja athygli á alþjóðadegi einhverfu sem var í gær. FréttABlAðið/Ernir stjórnMál Þingmenn Sjálfstæðis- flokksins hafa ýmist efasemdir um að rannsókn eigi að fara fram á einkavæðingu Landsbankans, eða vilja ekki taka afstöðu til málsins fyrr en eftir að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur fjallað um málið. Þingmenn hinna stjórnar- flokkanna tveggja eru aftur á móti afgerandi í þeirri afstöðu sinni að rannsaka beri sölu Landsbankans og að skýrsla um aðkomu þýska bank- ans Hauck & Aufhäuser að sölunni á Búnaðarbankanum gefi fullt til- efni til að fara í saumana á sölunni. „Þessar tvær einkavæðingar fóru fram á svipuðum tíma svo mér finnst full ástæða til að líta frekar á einkavæðingu Lands- bankans,“ segir Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar, sem situr í stjórnskip- unar- og eftirlits- nefnd.   Samkvæmt grein- argerð þingsálykt- unartillögunnar um rannsókn á erlendri þátttöku í kaupun- um á Búnaðarbank- anum, ber stjórnskip- unar- og eftirlitsnefnd Ekki önnur rannsókn nema ný gögn finnist Bæði innanríkisráðherra og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar eru efins um að rannsaka skuli einkavæðingu Landsbankans og segja að ný gögn um málið þurfi að koma fram. Þingmenn Viðreisnar og BF vilja rannsókn. að afmarka nánar mögulega rann- sókn á einkavæðingu Landsbankans og Fjárfestingarbanka atvinnulífs- ins. Á þetta bentu allir þeir þing- menn Sjálfstæðisflokksins sem Fréttablaðið ræddi við og hafa efa- semdir um hvað nákvæmlega ætti að rannsaka. Sigríður Á. Andersen dómsmála- ráðherra segist til dæmis ekki hafa heyrt nákvæmlega hvað ætti að rannsaka. „Ekki nema það kæmi eitthvað konkret upp sem þyrfti að rannsaka.“ Brynjar Níelsson, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, segir að ekki sé ástæða til þess að rannsaka sölu Landsbankans nema eitthvað nýtt komi fram sem gefi til- efni til rannsóknar. Nefndin komi til með að lesa rannsókn á einka- væðingu Búnaðarbankans og taka ákvörðun í kjölfarið. Vilhjálmur Bjarnason tekur í sama streng. „Hvað viltu rannsaka í Landsbankasölunni? Það er hægt að rannsaka og rannsaka en hver er spurningin í rannsókninni? Menn verða að leggja af stað með ein- hverja spurningu. Ég er alveg orðinn uppgefinn á þessari þvælu um að rannsaka og rannsaka.“ Björt Ólafsdóttir og Theódóra S. Þorsteinsdóttir í Bjartri fram- tíð  sögðu afdráttarlaust að þær vildu rannsókn  á Landsbank- anum. Þingmenn Viðreisnar, Pawel  Bartoszek og Hanna Katrín Friðriksson,  tóku í sama streng og Jón Steindór og sögðust vilja rannsókn á einkavæðingu Landsbankans. Áður hefur Benedikt Jóhannsson fjármálaráðherra lýst sömu skoðun yfir. – snæ Brynjar níelsson slys „Þetta snertir bæjarfélagið mjög mikið. Ekki síst af því að þetta er barn á skólaaldri og fjölskyldan tengist skólanum meira,“ segir Jón Daníelsson, prestur í Hveragerði. Íbúar í Hveragerði eru slegnir og sorgmæddir eftir að drengur, fæddur árið 2006, lést af slysförum á laugardagskvöld. Svo virðist sem drengurinn hafi klemmst af vöru- lyftu á vöruflutningabíl við heimili hans. Jón segir að þjónusta kirkjunnar hafi staðið öllum til boða um helg- ina, sem töldu sig þurfa hana. - snæ Sorg vegna slyss í Hveragerði Sigríður Á. Andersen HeilbrigðisMál Deildarstjóri á Kleppi vill skoða möguleikann á að breyta nafninu á stofnuninni. Erfitt sé að breyta hugrenninga- tengslum fólks um að Kleppur sé gamaldags geðveikrahæli „Margir telja þetta vera hæli þar sem allir eru vistmenn og dæmi eru um að sjúklingar afþakki endur- hæfingarinnlögn til okkar vegna hræðslunnar við að vera „klepparar,“ segir Manda Jónsdóttir deildarstjóri. Hún segir að nýtt nafn á Kleppi gæti verið Landspítalinn við Elliðaárvog. - sa Kleppur fælir frá Manda Jóns- dóttir, deildar- stjóri á Kleppi 0 3 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 9 6 -F 4 E 0 1 C 9 6 -F 3 A 4 1 C 9 6 -F 2 6 8 1 C 9 6 -F 1 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 2 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.