Fréttablaðið - 03.04.2017, Page 8
Full búð af
nýjum vörum!
Verið velkomin í Verslun Guðsteins, Laugavegi 34
Síðan 1918
Láttu okkur ráða
Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is
Þarftu að ráða?
Iðnaðarmann
Bílstjóra
Bifvélavirkja
Þjónustufólk
Öryggisvörð
Lagerstarfsmann
Matreiðslumann
ekki bara öruggt start líka gæði
Er snjósleðinn tilbúinn fyrir frost og fjöll?
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta.
BÍLDSHÖFÐA 12 • 110 RVK • 577 1515 • WWW.SKORRI.IS
Samfélag Borgarráð samþykkti
á fundi sínum 46,3 milljón króna
kostnaðaráætlun vegna málefna
miðborgar. Áætlunin er vegna
verkefnisstjórnar og verkefnisstjóra
miðborgarmála sem og kostnaðar
vegna stofnunar miðborgarsjóðs.
Kostnaður vegna verkefnastjóra og
verkefna á vegum hans og verkefna
stjórnar eru 16,3 milljónir króna og
kostnaður vegna miðborgarsjóðs er
30 milljónir króna.
Í greinargerð um kostnaðar
áætlunina er bent á þau fjögur
atriði sem skýrsla og tillögur stýri
hóps um málefni miðborgar og til
laga borgarstjóra um málefni mið
borgarinnar leggur áherslu á.
Atriðin fjalla meðal annars
um stefnu um málefni miðborgar
byggð á áskorunum, tækifærum og
fyrirliggjandi stefnumótun borgar
innar. Þá á að skipa verkefnisstjórn
miðborgarmála til þriggja ára og
settur verði verkefnisstjóri sem
starfi með verkefnisstjórninni. - bb
Tugir milljóna settir í miðborgina
Það er að ýmsu að hyggja í mið-
borginni. Fréttablaðið/Ernir
Borgarmál Reykjavíkurborg hefur
veitt Símanum vilyrði fyrir lóð við
Hólmsheiði. Stærð og staðsetning
lóðarinnar verður nánar ákveðin
í deiliskipulagi en til skoðunar er
að hámarksbyggingarmagn yrði 10
þúsund fermetrar. Borgar Síminn
1.500 krónur fyrir hvern byggingar
fermetra eða 15 milljónir verði
hámarksbyggingarmagn nýtt. Sím
inn hefur sex ár til að ákveða hvort
fyrirtækið ætlar að nýta sér vilyrðið
um lóðina.
Í greinargerð um gagnaverið segir
að uppbygging slíkra gagnavera sé
fjármagnsfrek og það sé mikilvægt
að búa þannig um hnútana að auð
velt sé að stækka án þess að binda
mikið fjármagn ef aðstæður síðar
verða hagfelldar fyrir rekstur gagna
versins.
„ M e ð þ e s s u f y r i r k o m u
lagi er fjárbinding vegna við
bótarlóða í lágmarki og fyrir
tækið hefur ráðrúm til þess að
vaxa á eðlilegum hraða án þess
að þurfa að skuldsetja reksturinn
umfram efni. Fyrir Reykjavíkur
borg er það mikilvægt að stuðla
að nýsköpun og fjölbreyttum
iðnaði innan borgarmarkanna
og gera fyrirtækjum það kleift
að vaxa á sama stað. Með þessu
fyrirkomulagi myndast einn
ig hvatning fyrir fyrirtækið
að kaupa fleiri lóðir af Reykjavíkur
borg ef aðstæður þess bjóða upp
á það,“ segir enn fremur í greinar
gerðinni - bb
Síminn fær gagnaverslóð á 15 milljónir
Síminn hefur tryggt sér lóð á Hólmsheiði undir gagnaver.
SVÍÞJÓÐ Minnst þrír létust og tveir
eru lífshættulega slasaðir eftir rútu
slys í Svíþjóð í gær. Tæplega sextíu
manns voru í rútunni en á þriðja tug
voru fluttir á sjúkrahús. Sjö þeirra
voru alvarlega slasaðir.
Slysið átti sér stað snemma í gær
morgun í Härjedalen, milli Sveg og
Fågelsjö, rúmlega 100 kílómetra
suður af Östersund, í Svíaríki miðju.
Rútan átti aðeins stuttan spöl eftir á
áfangastað. Farþegarnir voru grunn
skólanemar í 8. bekk og kennarar
þeirra á leið í skíðaferðalag. Fólkið
er frá Skene, litlum bæ suður af
Gautaborg.
Ekki er vitað hvað varð til þess
að rútan hafnaði utan vegar. Flestir
farþeganna voru í fastasvefni þegar
slysið átti sér stað. Talið er að fæstir
hafi verið í bílbelti.
Allir tiltækir sjúkrabílar auk
heilbrigðisstarfsfólks var kallað
út vegna slyssins. Sömu sögu er að
segja af lögreglu og sjúkraflutn
ingamönnum. Sjúkratjald var reist
á slysstað til að hlúa að þeim sem
hlutu minniháttar meiðsl og til að
veita áfallahjálp.
„Stina var heppin. Hún vaknaði
skömmu fyrir slysið við það að
rútan vaggaði svo hún spennti á sig
beltið,“ segir Fredrik Almqvist, faðir
stúlku í rútunni, við Aftonbladet.
Hann var vakinn með símtali frá
dóttur sinni skömmu eftir slysið
en í bakgrunni heyrði hann öskur
særðra. Dóttir hans slapp með
skrámur.
„Ég myndi lýsa svæðinu eins og
vígvelli,“ segir sjúkraflutninga
maðurinn Peter Nystedt við norska
miðilinn Verdens Gang. „Særðir
farþegar lágu í skurðinum við hlið
rútunnar og á veginum. Sumir voru
enn í rútunni en aðrir köstuðust úr
Þjóðarsorg í Svíþjóð
Minnst þrír létust þegar rúta fór út af vegi í Svíþjóð. Innanborðs voru unglingar
á leið í skíðaferðalag. Sjúkraflutningamaður líkti aðkomunni við vígvöll.
Fæstir farþeganna voru með beltin spennt. Fréttablaðið/EPa
henni þegar hún fór út af. Örvingl
aðir unglingar á víð og dreif og
vissu ekki hvað þeir áttu til bragðs
að taka.“
Hinna látnu var minnst um alla
Svíþjóð með því að draga fána að
húni. Þjóðarsorg ríkir í landinu
vegna slyssins.
„Ég og allir Svíar syrgjum,“ segir
í yfirlýsingu frá Stefan Löfven, for
sætisráðherra Svíþjóðar. „Hugur
minn er hjá þeim sem létust, slösuð
ust, foreldrum þeirra, ættingjum og
vinum.“ johannoli@frettabladid.is
Með þessu fyrir-
komulagi myndast
einnig hvatning fyrir fyrir-
tækið að kaupa fleiri lóðir af
Reykjavíkurborg
Úr greinargerð borgarinnar
Ég myndi lýsa
svæðinu eins og
vígvelli
60
manns voru í rútunni þegar
slysið varð
3 . a p r Í l 2 0 1 7 m á N U D a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a Ð i Ð
0
3
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
9
7
-1
C
6
0
1
C
9
7
-1
B
2
4
1
C
9
7
-1
9
E
8
1
C
9
7
-1
8
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
2
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K