Fréttablaðið - 03.04.2017, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 03.04.2017, Blaðsíða 11
S jaldan hefur sést annar eins söfnuður af forviða fólki og íslenskir ráða-menn tíunda áratugarins voru í síðustu viku þegar þeir fréttu, eftir öll þessi ár, að þýski héraðsbankinn og kjölfestufjárfestirinn í Búnaðar- bankanum hefði í raun bara verið leppur fyrir Ólaf Ólafsson. Dj-Dabbi&Dóri Þetta þurftu þau að láta segja sér þrisvar, Finnur Ingólfsson, Val- gerður Sverrisdóttir, Davíð Odds- son og Geir Haarde. Hann Ólafur?!? Brögð í tafli? Ha? Leynt eignarhald? Leynireikningar? Hann Ólafur?!? Við hin vitum ekki alveg hvort við eigum að leika með í leikritinu enn einn ganginn, og leyfa þeim að halda að við ætlum að leyfa þeim að trúa því að við hin trúum þeim. Sem við gerum auðvitað ekki – eins og þau vita öll. En það rifjast upp þessir tímar, þegar stórar eignir í almannaeigu voru færðar vildarmönnum í nafni einhverrar hugmyndafræði sem sagði að óhjákvæmilegt væri að eftirláta einkaaðilum bankavið- skipti. Það tók íslenska einkafram- takið örfá ár að keyra allt í þrot. Þetta voru leiðindatímar. Umskiptin stóru í íslensku þjóðlífi urðu þarna um miðjan tíunda ára- tug síðustu aldar þegar Framsókn- armenn og Sjálfstæðisflokkurinn náðu saman í ríkisstjórn og stjórn- uðu landinu í tíu ár. Gáfu vinum, lögðu niður stofnanir, ofsóttu óvini. Fóru fram með frekjulátum og sigri hrósandi markaðshyggju sem boðaði okkur endalok sögunn- ar á þeirri forsendu að Berlínarm- úrinn féll og Sovétríkin hrundu, eins og það gerði óðakapítalisma eitthvað gáfulegri að kommún- isminn reyndist svindl og svínarí. Með aðild að EES sáu þessi flokkar til þess að hér var innleidd séríslensk útgáfa af kapítalisma; nokkurs konar sérstök svindl- og-svínarísútgáfa þar sem því var sleppt að innleiða reglurnar sem gilda víðast á Evrópumarkaði en þeim mun meira gefið laust. Eftir- lit í orði kveðnu, eins og átti eftir að koma á daginn rækilega. Leiðindatímar. Og leiðinda- hugarfar sem ríkti þá, og vekur hjá manni ónot þó að erfitt kunni að vera að koma orðum að því. Nú þegar við sameinumst öll í óbeit okkar á Ólafi Ólafssyni og viðskiptaháttum hans – ekki síst Forviðaflokkurinn sem forðum gekk undir nafninu Framsóknar- flokkurinn – er kannski ágætt að rifja upp að hann var ekki einn að verki, hann var ekki undantekning, ekki minkurinn í hænsnabúinu. Hann var bara einn af mörgum sem hleypt var út úr búrinu og sagt að gera svo vel. Hann var bara einn group-gaurinn og rétt eins og Bakkavararbræður og Kaupþing- smenn, Baugsmenn og Milesto- nemenn, Vafningsmenn, S-hóp- smenn og Landsbankamenn var hann barn síns tíma, afurð aldar- innar, niðurstaða kerfis, hugsjón óðakapítalismans holdi klædd – hlýddi kallinu að ofan og dansaði eftir þeim takti sem dunaði undir stjórn þeirra Dj-Dabba&Dóra. Nýir group-gaurar Bólufurstarnir urðu ekki til í tóma- rúmi. Það verðum við að muna og alveg sérstaklega núna. Bankar eru kannski ekki jafn mikilvægir og spítalar og skólar – og ekki jafn arðberandi – en mikilvægir engu að síður. Þeir geyma og ávaxta sparifé vinnandi fólks og hjálpa fólki við að hrinda úr vör arðsömum og fal- legum verkefnum, þeir geyma jafn- vel fjöregg heilu fjölskyldnanna. Þegar vel tekst til eru þeir blóðið í þjóðarlíkamanum sem flytur nær- ingu á milli. Það á ekki að þurfa máladeildar- stúdent og fallista í reikningi á borð við mig til að segja ráða- mönnum að það sé með öllu ólíð- andi að slíkar stofnanir séu í eigu ókunnra aðilja, manna sem hafa ekki meiri samfélagslega ábyrgð en svo að þeir kjósa að dyljast bak við ókennileg númer og nöfn sem skráð eru í skúmaskotum fjármála- heimsins. Gætu þess vegna verið sömu group-gaurarnir aftur. Það er aldrei markmið banka að vera rekinn eingöngu með hámarks- gróða hluthafa að leiðarljósi. Það getur aldrei verið markmið neinn- ar starfsemi. Þetta snýst ekki um sérstakan kar- akterbrest tiltekinna einstaklinga. Þetta snýst um leikreglur samfélags- ins, sem settar eru af stjórnmála- mönnum í umboði okkar. Kapítal- isminn ýtir undir og þrífst á löstum á borð við græðgi og eigingirni og óheiðarleika; og mikilvægt er að samfélagið sendi með vönduðu regluverki skýr skilaboð um sið- ferðislega ábyrgð þeirra sem fara með fé sem annað fólk hefur trúað þeim fyrir. Einkaframtakið er gott, eins og forsætisráðherrann okkar minnti okkur á nú um daginn, í kjöl- farið á nýjustu uppljóstrunum á hneykslinu kringum einkvæðingu bankanna hinna fyrri. Mikið ósköp. En er endilega víst að það eigi við í bankarekstri hér á landi? Erum við sem sagt ekki nógu brennd af einkavæðingu banka eftir Hrunið og Icesave og allt bóluruglið sem upphófst hér í kjölfar fyrri einkavæðingar? ORKUSALAN OG PEPSI MAX KYNNA MEÐ STOLTI Í HÖLLINNI MIÐASALA HEFST Á FIMMTUDAG KL. 10 Á TIX.IS/PALLI 16. SEPTEMBER Forviðaflokkurinn Í dag Guðmundur Andri Thorsson Flestir geta tekið undir að fólk eigi að hafa jöfn tækifæri til að njóta gæða samfélagsins. Hugtakið án aðgreiningar er gjarnan notað til að orða þessa hugsun og vísar til enska orðsins „inclusion“ í samfélagi, skóla, menntun, atvinnulífi og fleira. Hugtakið án aðgreiningar birtist í skólakerfinu í því að allir nemendur eigi að fá tækifæri til að ganga í grunn- skóla í heimabyggð. Koma á til móts við náms- og félagslegar þarfir þann- ig að allir eigi jöfn tækifæri til náms. Ef nánar er að gáð tryggir svona skóli án aðgreiningar, þrátt fyrir góðan ásetning, ekki jöfn tækifæri til náms. Kennsla barna með heyrnarskerð- ingu er gott dæmi um þetta og þá sérstaklega barna sem tala íslenskt táknmál. Aðrir nemendur í heima- skóla tala íslensku og námsefni er sömuleiðis á íslensku. Þetta felur í sér hindrun fyrir heyrnarskert og tákn- málstalandi börn. Þau njóta því ekki jafnra tækifæra og hin heyrandi. Þessa stöðu má yfirfæra á allt sam- félagið. Á sambýlum og elliheimilum, sem eru heimili heyrnarlauss fólks, er ekki táknmálsumhverfi. Fólkið hefur því ekki sömu tækifæri til þess að njóta lífsgæða og aðrir. Í atvinnulífinu er réttur táknmálstalandi starfsfólks til túlkunar ekki tryggður og það á hvorki sama aðgang að símenntun og aðrir né framgangi í starfi og heldur ekki sama aðgang að samstarfsfólki eða yfir- mönnum. Þetta þýðir að sjálfsögðu einnig að atvinnulífið getur ekki nýtt til fulls framlag táknmálstalandi fólks. Innan atvinnulífsins má þó benda á nýlegt jákvætt dæmi. Nú í byrjun febrúar valdi Startup Tourism við- skiptahugmyndina „Deaf Iceland“ til þátttöku í 10 vikna viðskiptahraðli. Með því gefst forsvarsmönnum Deaf Iceland tækifæri til að þróa viðskipta- hugmynd, um sérsniðna þjónustu og afþreyingu fyrir ferðamenn á tákn- máli, undir leiðsögn reyndra frum- kvöðla, fjárfesta, lykilaðila innan ferðaþjónustu og annarra sérfræðinga þeim að kostnaðarlausu. Þess má geta að fyrirtækin sem farið hafa í gegnum viðskiptahraðal eru öll starfandi í ferðaþjónustu þannig að góðar líkur eru á að við sjáum táknmálstalandi framkvæmdastjóra í atvinnulífinu innan skamms (með táknmálstúlk sér við hlið?). Réttan skilning vantar Hugmyndin um samfélag án aðgrein- ingar lýsir vilja til að koma góðu til leiðar. Það sem á vantar er þó réttur skilningur og farsæl framkvæmd. Núverandi framkvæmd stefnu um skóla án aðgreiningar getur til dæmis beinlínis hindrað nám og í henni getur falist alvarleg kerfislæg kúgun. Við þurfum því að endurskoða hvað felst í þessari hugmynd. Skóli þar sem táknmálstalandi börn eru í bekk með börnum sem tala íslensku er ekki skóli án aðgreiningar sem tryggir jafna stöðu nemenda. Atvinnulíf sem sér ekki til þess að tryggja fulla atvinnuþátttöku fólks, sem talar íslenskt táknmál, er ekki heldur atvinnulíf án aðgreiningar. Sam- félag sem býður öldruðu og fötluðu heyrnarlausu fólki upp á heimili þar sem starfsfólk talar við hvert annað og heimilismenn á íslensku en ekki íslensku táknmáli er ekki samfélag án aðgreiningar. Til að fjarlægja hindranir fyrir námi, atvinnuþátttöku, starfsþróun og lífsgæðum fólks með skerta heyrn þarf skilning á því að fólkið heyrir ekki talaða íslensku. Það á hins vegar íslenskt táknmál sem ríkt og fallegt mál. Réttur þess til að njóta þess að lifa með íslensku táknmáli er vernd- aður í lögum. Sá réttur endurspeglast ekki í samfélaginu okkar. Merking enska orðsins „inclusion“hefur því miður ekki komist til skila með hug- takinu án aðgreiningar. Í stað þess hafa jafnvel orðið til meiri kerfislægar hindranir fyrir táknmálstalandi fólk heldur en áður voru. Forsenda jöfnuðar er að við skiljum að samfélagið er okkar allra en ekki bara sumra. Í því felst að gera skóla án aðgreiningar að skóla án hindr- ana, atvinnulíf án aðgreiningar að atvinnulífi án hindrana fyrir tákn- málstalandi fólk og sömuleiðis elli- heimili og sambýli. Þessu fylgir einn- ig sá ávinningur að samfélagið fær að njóta framlags táknmálstalandi fólks. Það er okkar ábyrgð að gera nauðsyn- legar breytingar til að svo verði. Tryggir skóli án aðgreiningar jöfn tækifæri nemenda? Valgerður Stefánsdóttir forstöðumaður Samskipta- miðstöðvar heyrnarlausra og heyrnar- skerta S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 3 . a p R Í L 2 0 1 7 0 3 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 9 6 -F E C 0 1 C 9 6 -F D 8 4 1 C 9 6 -F C 4 8 1 C 9 6 -F B 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 2 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.