Fréttablaðið - 03.04.2017, Blaðsíða 32
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Sigurbjörg Sigurðardóttir
Seltjarnarnesi,
lést fimmtudaginn 30. mars. Útför
fer fram frá Seltjarnarneskirkju
fimmtudaginn 6. apríl kl. 13.00.
Kristinn Hraunfjörð
Dagbjört H. Kristinsdóttir Páll Bragason
Magnús H. Kristinsson Gígja Sigurðardóttir
Bjarki H. Kristinsson Jóna Björk Viðarsdóttir
Axel Kristinsson Rán Ólafsdóttir
barnabörn og Buffy.
Okkar yndislega
Sesselja Hauksdóttir
fyrrverandi leikskólafulltrúi,
verður kvödd hinstu kveðju
í Grafarvogskirkju föstudaginn
7. apríl klukkan 15.
Blóm og kransar eru einlæglega afþökkuð
en þeim sem vilja minnast Sesselju er bent á
Krabbameinsfélagið eða líknardeild Landspítalans.
Þorsteinn G. Benjamínsson, Júlía Guðmundsdóttir,
Freyja Hlíðkvist Ómars- og Sesseljudóttir,
Haukur Hlíðkvist Ómarsson, Helga P. Finnsdóttir, Hrafn
Hlíðkvist Hauksson, Salka Hlíðkvist Einarsdóttir, Hekla
Hlíðkvist Hauksdóttir, Hugrún Hlíðkvist Hauksdóttir,
Guðmundur Valgeir Þorsteinsson,
Inga Dögg Þorsteinsdóttir, Kjartan Ásþórsson,
Arnar Þór Þorsteinsson, Aron Smári Kjartansson,
Karen Dís Kjartansdóttir, Thelma Sól Kjartansdóttir
Þetta rit, Manntalið 1703, arfur okkar allra, er skrifað og tekið saman af því til-efni að manntalið 1703 var tekið inn á skrá UNESCO, Memory of the World
Register, árið 2013. Þeim, sem eru með
svona heimildir á sinni könnu, ber að
kynna það og við erum að efna það lof-
orð og kynna ritið fyrir íslensku þjóð-
inni,“ segir Eiríkur G. Guðmundsson
þjóðskjalavörður en í dag verður Þjóð-
skjalasafn Íslands 135 ára.
Af því tilefni hefur verið gefið út lítið
rit um manntalið frá 1703 og er það 48
blaðsíður að lengd og prýtt myndum og
margvíslegu skýringarefni. Kristjáni Þór
Júlíussyni, mennta- og menningarmála-
ráðherra, verður afhent fyrsta eintakið á
afmælishátíð safnsins í dag.
Dönsk stjórnvöld tóku ákvörðun
um fyrsta heildarmanntal á Íslandi
árið 1702. Vegna kvartana Íslendinga
undan slæmu árferði og harðindum
í lok 17. aldar taldi stjórnin í Kaup-
mannahöfn rétt að kanna aðstæður
hér á landi m.a. með því að láta gera
„eitt fullkomið registur yfir allt fólkið
í landinu“ eins og segir í fyrirmælum
Árna Magnússonar og Páls Vídalíns til
sýslumanna. Sýslumenn báru ábyrgð
á framkvæmd manntalsins en þeir
fengu hreppstjóra til að annast sjálfa
talninguna. Verkið tókst vel og verður
að teljast mikið afrek. Talið var í öllum
hreppum og eru allar manntalsskrárn-
ar til enn þann dag í dag, varðveittar í
Þjóðskjalasafni.
Sérstaða manntalsins 1703 felst í því
að það er elsta varðveitta manntal í
heiminum sem nær til allra íbúa í heilu
landi þar sem getið er nafns, aldurs,
heimilisfangs flestra og þjóðfélags- eða
atvinnustöðu allra þegnanna. Engin
önnur þjóð í heiminum á jafnnákvæm-
ar lýðfræðiupplýsingar frá þessum tíma.
„Þarna er Jón Hreggviðsson og hans fólk
frá Reyn á Akranesi. Talningin fór fram
að hausti og hann er tekinn af lífi í júlí,
á svipuðum tíma sem sýslumenn eru að
skila manntalinu.“
Þegar Þjóðskjalasafn átti 130 ára
afmæli árið 2012 sótti það um að mann-
talið færi á skrá UNESCO, Memory of the
World Register. Árið eftir var sú umsókn
samþykkt. Nú fimm árum síðar í tilefni
af 135 ára afmæli safnsins gefur safnið út
lítið rit um manntalið.
„Það er alveg ljóst í mínum huga og
gerð grein fyrir því í ritinu að Árni Magn-
ússon taldi úr manntalinu skömmu eftir
að það var tekið. Þessu hefur ekki verið
almennt haldið á lofti en við athugun
mína þá er gömul kenning staðfest. Það
er nýjung. Sú talning varð aldrei opin-
ber.“ benediktboas@365.is
Gefa út veglegt rit um
elsta manntal heims
Þjóðskjalasafnið er 135 ára í dag og af því tilefni er gefið út rit um Manntalið 1703 sem
dönsk stjórnvöld ákváðu að framkvæma. Það er elsta varðveitta manntal í heiminum
sem nær til allra íbúa í heilu landi og er það á heimsminjaskrá UNESCO.
Eiríkur G. Guðmundsson þjóðskjalavörður með ritið góða sem selt verður í safninu frá og með deginum í dag.
Í dag er liðið ár frá því að Panamaskjala-
þáttur Kastljóssins fór í loftið. Skömmu
eftir að þátturinn fór í loftið tók
Sigurður Ingi Jóhannesson við embætti
forsætisráðherra af Sigmundi Davíð
Gunnlaugssyni.
Í þættinum var fjallað um gagna-
leka frá panamísku lögmannsstofunni
Mossack Fonseca en skjöl úr lekanum
sýndu meðal annars hvernig þrír ráð-
herrar ríkisstjórnarinnar áttu tengsl við
aflandsfélög. Þar var líka sýnt viðtal við
Sigmund Davíð Gunnlaugsson, þáver-
andi forsætisráðherra, en hann endaði á
því að strunsa úr viðtalinu.
Daginn eftir fóru fram fjölmenn
mótmæli á Austurvelli en áætlað er að
yfir 20 þúsund mótmælendur hafi látið
sjá sig. Yfirskrift þeirra var „Kosningar
strax“.
Degi síðar brunaði Sigmundur Davíð á
Bessastaði eftir fund með Bjarna Bene-
diktssyni. Markmið þess fundar var að
fá heimild til að rjúfa þing og boða til
kosninga. Ólafur Ragnar Grímsson, þá
forseti Íslands, féllst ekki á bónina.
Það fór svo að ríkisstjórnin starfaði
áfram í hálft ár í viðbót en með Sigurð
Inga Jóhannesson í brúnni. Sigmundur
Davíð steig til hliðar. Kosningar fóru
fram 29. október hálfu ári fyrr en áætlað
var í upphafi.
Þ ETTA g E R ð i ST 3 . A P R Í l 2 0 1 6
Sigmundur Davíð gekk út
Sigmundur Davíð lét af embætti for
sætisráðherra í kjölfar mótmæla fyrir ári
síðan. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
1882 Útlaginn og lestarræninginn Jesse James var myrtur
af Robert Ford. Ford var meðlimur í gengi James og vonað-
ist til að fá verðlaunaféð sem í boði var fyrir líf leiðtogans.
1882 Bergur Thorberg, landshöfðingi Dana á Íslandi,
tilkynnti að stofnuð yrði geymsla fyrir skjalasöfn æðstu
embætta landsins. Það lagði grunninn að Þjóðskjalasafni
Íslands.
1888 Fyrsta fórnarlamb Kobba kviðristu fannst látið í
London. Alls fundust ellefu konur látnar á þriggja ára tímabili
sem talið er að Kobbi hafi myrt. Morðinginn fannst aldrei.
1895 Réttarhöld hófust yfir Oscar Wilde en hann var að
endingu sakfelldur fyrir samkynhneigð.
1922 Joseph Stalín varð ritari sovéska Kommúnista
flokksins.
1936 Bruno Hauptmann var tekinn af lífi fyrir að hafa rænt
og myrt son flugmannsins rómaða Charles Lindbergh.
1948 Harry S. Truman, forseti Bandaríkjanna, skrifaði undir
löggjöf sem ýtti Marshall-aðstoðinni
úr vör.
1973 Martin Cooper, starfs-
maður Motorola, hringdi fyrsta
símtalið úr farsíma.
1975 Bobby Fishcer neitaði
að tefla heimsmeistara-
einvígi við áskorandann
Anatolíj Karpov. Með því
tapaði hann krúnunni sem
hann vann af Boris Spasskíj
í Reykjavík þremur árum
áður.
1984 Banni við hundahaldi í
Reykjavík var aflétt. Það hafði
þá verið í gildi í þrettán ár.
2010 Fyrsti iPadinn,
framleiddur af Apple-
fyrirtækinu, kom
út.
Merkisatburðir
3 . a p r í l 2 0 1 7 M Á N U D a G U r16 t í M a M ó t ∙ F r É t t a B l a ð i ð
tímamót
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
0
3
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
9
7
-0
D
9
0
1
C
9
7
-0
C
5
4
1
C
9
7
-0
B
1
8
1
C
9
7
-0
9
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
2
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K