Hjúkrunarkvennablaðið - 01.02.1935, Blaðsíða 1
S ' K r R N.
Á síðasta ftmdi ’ F. I. H. var samþykt tillaga frá ritstjórninni um að breyta nafni
■blaðsins. Þotti henni nafnið "Tímarit fjelags ísl. hjúkrunarkvenna" of langt og reynsl-
an hefir synt, að í daglegu tali er það ekki notað, þegar talað er um blaðið er það
nefnt "Hjúkrunarkvennablaðið". Samkvæmt þessu var því nafnbreytingar-tillagan borin
upp og samþykt. Vonar ritstjórnin að hjúkrunarkonum líki vel nýja nafnið, og að blað-
ið megni í framtíðinni að starfa vel og dyggilega að öllum þeim málum, sem hjúkrunar-
stjettin kann að beita sjer fyrir, sjálfri sjer og öðrum til heilla.
Á síðasta fundi Fjelags ísl. hjúkrunar-
kvenna var í einu hljóði samþykt, að flýta
sem unt væri framkvæmd þess, að koma upp
sumarbústað fyrir hjúkrunarkonur.
Málið er skammt á veg komið, en hálfnað
er verk þá hafið er, og þar sem almennur,
lifandi áhugi ríkir innan stjettarinnar,
um að húsið skuli rísa á sumri komanda, er
mikið fengið. Því skyldum við ekki líka
allar, undantekningarlaust, leggja fram
okkar skerf? Ef hver hjúkrunarkona legði
-segjum ca. kr. 20.oo- af næsta mánaðar-
kaupi í húsið sitt, væri þegar komin upp-
hæð, sem um munaði. Mun húsnefndin: Frk.
Kristín Thoroddsen, Landspítalanum, frk.
Bjarney Samúelsdóttir, Pósthússtr. 17 og
frú Salóme Pálmadóttir, Kleppi, taka við
samskotunum. Hjúkrunarkonur og nemar mega
heldur ekki skerast úr leik, ef nefndin
æskir eftir hjálp þeirra á einhvern annan
hátt. Jeg er þess fullviss að engin lætur
sitt eftir liggja.
Þeim hjúkrunarkonum, sem búa úti um land'
ið, finnst máske fátt um, og hugsa sem svo,
að ekki geti þær, eins og við hinar, sem
búum í Reykjavík eða nágrenni, skotist á
frídögum, með "strætó", til að njóta góðs
af sinni eigin eign, sumarhúsinu og svæð-
inu í kring. En þær eiga mánaðar sumarfrí,
og þá skjótast þær oft til Reykjavíkur, og
mundi eflaust ánægja í að skreppa upp að
Reykjum um leið, og svo eru hjúkrunarkon-
ur ekki það staðbundnar, að gera má rá'ð
fyrir að þær sem nú eru úti á landi, eigi
e.t.v. eftir að eiga heima í Reykjavík.
Það sem þegar er búið að gera £ þessu
máli er, að nefndin hefir athugað hvar
heppilegt væri að byggja. Lagði hún undir
álit síðasta fundar, uppástungu um að fá
landspildu hjá Reykjum í Mosfellssveit, þar
sem hægt væri að nota hveravatnið til hit-
unar. Það er ekki lengra frá Reykjavík en
svo, að fastar áætlunarferðir ganga upp-
eftir. álafoss með sundlauginni er rjett
hjá. Við bæjarvegginn fengjum við dálít-
inn læk, sem upp í fjallshlíðinni fellur
£ suðandi foss. Þaðan er skammt til berja.
Reykir hafa úrval af þeim jarðargróða, sera
hægt er að rækta hjer á landi..
Æskilegt væri að við fengjum jafnframt
dálftinn landsskika, sem skifta mætti milli
spftalanna, þannig, að hjúkrunarkonurnar